Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1912, Side 9

Skírnir - 01.01.1912, Side 9
Listin að lengja lifið. 9 an er erfið og of mikið safnast fyrir af þeim, finnur lík- aminn það á sér, segir til með þreytu og heimtar hvíld. Fáist ekki hvíldin, er það skaðræði fyrir frumlurnar, og líkaminn gefst upp. ef áfram er haldið í trássi við kröf- ur hans. Hvíldarþurfa erum við öll, en misjafnlega, eftir því hvað við erum stór og sterk, en því miður er of sjaldan tekið tillit til þessa. Margir húsbændur mundu fá meiri arð af vinnu hjúa sinna, ef þeir íhuguðu, hvað mikla vinnu má bjóða þeim að ósekju og hvað sum þeirra eru meira hvíldarþurfa en önnur. — En það eru viss úrgangsefni sem myndast við starf frumlanna, sem verka þannig á heilann, ef þau fá að safnast fyrir að vissu marki, að þau framleiða svefn. Þessi úrgangsefni eru svefnlyf, sem líkaminn byrlar sér sjálfur, og meðan þau eru að verka, á líkaminn að vera í næði. Börn eiga að fá að sofa sem allra lengst þau geta. Full- orðnum heilbrigðum starfandi mönnum er 8 tíma—9 tíma svefn á sólarhring nægilegur; en gamalmenni komast af með töluvert minna. Eftirmáli. Hér eru þá heilræðin upptalin og fljótt yíir sögu farið, því auðvitað mætti fjölyrða langtum meira um hvert ein stakt þeirra. En þetta verður að duga i þetta skifti. Heilsugóðir vilja allir vera, en þá er að fylgja heil ræðunum. Ottinn við sjúkdóma og þjáningar ætti að herða á mönnuin til þess, því sá ótti er mikill hjá flestum, slag- ar að líkindum hátt upp í þann ótta, sem margir hafa fyrir eilífum kvölum í öðru lífi. Sú tillaga, sem færi fram á að losa mannkynið við alla sjúkdóma, inundi vera ein af þeiin fáu tillögum, sem mannkynið i heild sinni mundi koma sér saman um að samþykkja, því þó að einhverjir læknar yrðu henni mótfallnir, þá mættu þeir ekki við margnum og mundu missa alla aðsókn fyrir gikks- háttinn.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.