Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1912, Side 14

Skírnir - 01.01.1912, Side 14
14 Listin að lengja lifið. og hraustir, en samsvarar í rauninni því, sem forfeður vorir kölluðu að vera »vel at sér görr«), en það var í þeirra augum vegurinn til að verða uioð-sot, (guðum líkir). Hómer lýsir dauða Hektors með þessum fögru orð- um: »Þá sveif yíir hann algjör dauði, en sálin fór til Hadesarheims, harmandi forlög sín, er hún þurfti að skilja við þroskann og æskuna®.1) — Þessi orð lýsa vel hinni næmu tilfinningu og smekk Forngrikkja fyrir fögrum og vel-þroskuðum líkama. Líkaminn var að þeirra áliti veg- legt musteri, sem sálin kunni vel við sig í og var leið á að þurfa að skilja við. Páll postuli sagði lika: Þér eruð musteri heilags anda, sem í yður býr. Bæði Hómer og Páll hafa komist þar meistaralega að orði. Og hvort sem vér trúum því, að sálin fari til Had- esarheims eða til himnaríkis, þá er ekki nema alveg sjálf- sagt, að vér eigum að stuðla að því af fremsta megni, að líkaminn geti verið svo veglegt musteri, að sálin uni þar hag sínum hið bezta og sjái sárt eftir að skilja við hann. Steingrímur Matthiasson. ‘) Þýðing' Svb. Egilssonar á llionskviðu XXII. bls. 258. Með sömu orðum fylgir Hómer Patroklus yfir í annan heim.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.