Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1912, Side 16

Skírnir - 01.01.1912, Side 16
16 Gröngu-Hrólfr. áþekkar hreystisögunum af fornaldarhetjum vorum1). Þá ,unnu þeir og England (1066) undir merkjum Vilhjálms bastarðs, jarls í Rúðuborg (Rouen), er var hinn mesti hreystimaður og skörungur í hvívetna, og er það einn af merkustu atburðum mannkynssögunnar og upphaf að frægð og veldi Englands, er enginn útlendur höfðingi hefir unnið síðan. Vilhjálmur var kominn að langfeðgatali frá Hrólfi, er latnesk miðalda-sagnarit kalla »Rollo«, en Hrólfr sá var foringi víkinga þeirra, er settust í Rúðuborg um upp- haf 10. aldar og gengu síðan að sáttum við Frakkakonung árið 911. Hans er að eins lauslega getið í samtíðar-sagna- ritum, en á ofanverðum dögum sonarsonar hans, Ríkarðs hins fyrsta (f 996), kom til Rúðuborgar munkur einn frakk- neskur, sem Dúdó (Dudo) er nefndur, lærður vel að hætti þeirrar tiðar. Var hann fenginn til að rita sögu forfeðra jarlsins, og vann að því starfi á dögum Ríkarðs II., sonar hans (um 1000—1020), með tilsögn gamals höfðingja, er var nákominn jarlsættinni. Nú hafa ýmsir fræðimenn, einkum danskir sagnfræðingar (Estrup, Worsaae, Joh. Steenstrup2), dregið þá ályktun af frásögn Dúdós, að Hrólfr hafi verið kynjaður frá Danmörku og einn af konungsættinni dönsku3 * * * * 8), og viljað rengja hina norrænu arfsögn, sem stendur í sögum vorum, að Hrólfr hafi verið upprunninn frá Noregi, sonui’ Rögnvalds Mærajarls, Ey- ') Mælt er, að einn þeirra Norðmenninga, er fóru til Italíu, Þor- steinn að nafni, hafi gripið ]jón með annari hendi, þar sem hann stóð vopnlaus, og fleygt þvi yfir hallarvegg í Salernó-horg. í annað skifti segir sagan, að sviknrum nokkrum hafi tekist að teygja hann þangað, er fyrir var voðalegur dreki eða höggormur, og drap Þorsteinn hann, en fekk hana af eitri hans (sbr. goðsögnina um Þór og Miðgarðsorminn). 2) Sjá hið mikla rit Steenstrups: Normannerne I—IV., einkuin fyrsta bindið (Kh. 1876). I „Danmarks Riges Historie", sem nýlega er kom- in út, er því enn haldið fram, að meira sé að marka sögn Dúdós en nor- rænu arfsögnina um Hrólf. Þó er Hrólfs eigi getið þar fyr en árið 911, enda höfum vér engar sannar spurnir af athöfnum hans fyrir sunnan sæ fyr enn um þær mundir. 8) Flestir síðari sagnamenn Norðmenninga (svo sem Wace og Benoít) hafa beint farið eftir sögu Dúdós og verða því ekki til greina teknir sem vitni í þessu máli.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.