Skírnir - 01.01.1912, Page 22
22
Gröngu-Hrólfr.
er skírði víkingana (árið 912). Það var því beint að búast
við, að hann slengdi öðrum víkingahöfðingjum saman við
Hrólf, þar sem hann segir frá komu »mikla hersins« til
Frakklands og hernaði hans þar í landi fyrstu árin eftir
879, enda má síðar sjá deili til þess, að hann hafl slengt
Haraldi Danakonungi (blátönn) saman við Harald höfðingja
í Bayeux og Sigtrygg konung (frá Suður-Jótlandi), er kom
til Vallands 943. Þess ber líka vel að gæta, að Dúdó er
með öllu ókunnugur landaskipun á Norðurlöndum. Hann
slengir þeim saman við Dakíu (»Dacia«) milli Dunár og
Theiss, kallar íbúa þeirra ýmist »Daci« eða »Dani« og
talar þar um »há fjöll« (Karpatafjöllum slengt saman við
Kjölinn?)1), enda nefnir hann í sambandi við Dani bæði
Duná (»Danubius«) og Asóvshaf (»Palus Mæotis«) og ýms-
ar þjóðir (Geta = Gota [eða Gauta?], Sarmata, Alana o.
fl.) nálægt Svartahafl, sem hann heflr lesið um í latnesk-
um ritum. — Eftir þessu sýnist enginn vegur til þess að
s a n n a það af sögu Dúdós, að Hrólfr hafi fremur verið
danskur en Norðmaður eða »frændi hans« Danakonungur
fremur en Noregskonungur, því að um Noreg sem sérstakt
ríki hefir Dúdó annaðhvort haft mjög óljósa eða alls enga
hugmynd, sem sjá má af því, að meðal víkinga frá Norð-
urlöndum (»Dacia«), sem komu til Vallands nálægt 963,
nefnir hann í sama liðinu (eða sem samlanda) bæði
»Dacigenæ« (Dani) og »Northguegigenæ« (Noregsmenn)
og enn fremur »Hirenses« (Ira) og »Alani« (Alana)2), en
getur annars hvergi Noregs né Noregsmanna né íra.
‘) Ef þessi lýsing stafaði frá endurminningum Norðmenninga um
ættjörð forfeðra sinna, þá benti hún fremur til Noregs en Danmerkur.
*) Þar sem Ira er getið í sambandi við þetta lið, er líklegast, að
það hafi komið frá Bretlandseyjum (Irlandi, Suðureyjurn eða Norðimbra-
landi). Mátti þá búast við, að Skotar væri lika við herförina riðnir, og
hefir S.Bugge (N.hist. Tidskr. 1901, 50. bls. n. 4) getið til, að „Alani“
væri hór sett fyrir „Albani11 og átt við Skota, því að írar kölluðu Skot-
land „Alba“ eða „Alban“. Eins og Dúdó gerði „Dacia« úr „Dania“
(Danmörk), gat hann gert „Alania11 úr „Alba(n)“.