Skírnir - 01.01.1912, Page 24
24
Göngu-Hrólfr.
og er þar vikið að herna.ði víkinga á lönd konungs1).
Þá segir Snorri: »Göngu-Hrólfr fór síðan vestr um haf
til Suðreyja, ok þaðan fór hann vestr í Valland, ok herj-
aði þar ok eignaðist jarlsríki mikit ok bygði þat mjök
Norðmönnum, ok er þar síðan kallat Norðmandí«. í öðr
um íslenzkum sögum (svo sem Landnámu, Orkneyinga-
sögu, Fagrskinnu) er þess minst með fám orðum, að
Göngu-Hrólfr, er vann Norðmandí, hafi verið sonur Rögn-
valds Mærajarls og bróðir Einars Orkneyjajarls, og vikið
að víkingaferðum hans, en eigi sérstaklega getið útlegðar
hans. Það er og tekið fram í »Heimskringlu«, að Orkn-
eyjar haíi verið víkingabæli fram á daga Haralds hár-
fagra. Enginn veit, hvenær Hrólfr Rögnvaldsson hefir
farið vestur um haf, og getur vel verið, að hann hafi.
komið til Orkneyja meðan Ooðþormr bræðrungur hans
réð þar fyrir, þótt eigi verði það ráðið af því, sem sög-
urnar segja2). En það má sjá af sögu Snorra (í Hkr.) að.
eftir dauða Rögnvalds jarls reis ófriður milli sonar hans,
Einars Orkneyjajarls, og Haralds konungs hárfagra, og
varð jarl að flýja land sitt um stund. Sögurnar geta þess
að vísu ekki, að þeir bræður Hrólfr og Einarr hafi átt
neitt saman að sælda, en líklegt má telja, að Hrólfr hafi
fyrst farið til Orkneyja, er hann hélt vestur um haf, enda
styrkist það af latnesku ágripi af Noregskonungasögum
(»Historia Norwegiæ«), sem ritað er í.Noregi á 12. eða
13. öld, og segir þar, að víkingar af ætt Rögnvalds (jarls
ríka)3 * * *) hafi lagt Orkneyjar (ásamt Suðureyjum) undir sig
og haft þar vetursetu, en herjað þaðan á ýms lönd á.
*) F. J.: Skjaldedigtning: B. 27. bls.:
„ilt’s við ulf at ylfask,
Yggr valðríkar, slikan;
munat við hilmis hjarðir
hœgr, ef rinnr til skógar“.
2) Sagnamenn vorir hafa gert sér ýmsar hugmyndir um það, hvers
vegna Hrólfr varð eigi jarl í Orkneyjum, og er engar reiður á sliku
að henda (shr. Hkr., Landn., Oran.), en Snorri virðist hafa hugsað sér
útlegð Hrólfs á undan sendiför Einars vestur nm haf.
s) „Quidam piratæ prosapia robustissimi principis Rognvaldi11..