Skírnir - 01.01.1912, Side 27
Gröngu-Hrólfr.
27
kölluðu bróður Hrólfs »Gurim«, því að réttu nöfiiin á
frændum Hrólfs hafa eflaust verið farin að fyrnast með
frakknesku kynslóðinni í Normandí.
Samkvæmt því, sem hér hefir verið tekið fram, virðist
hinn upphaflegi kjarni í sögusögn Dúdós um uppruna og
útför Hrólfs, forföður Rúðujarla, vera þessi: Ríkur höfð-
ingi á Norðurlöndum hefir lagt undir sig lönd þar í grend
(milli Norðurlanda og Skotlands?, eða í Austurvegi?).
Víkingar hafa haft friðland í ríki sona hans, en konungur
frændi þeirra fer með her á hendur þeim og fellir annan
þeirra, en hinn fer landflótta. Drög til alls þessa má
flnna í norrænu arfsögninni um Göngu-Hrólf og frændur
hans1), og var við að búast, að suðræna sögusögnin (í
Norðmandí) blandaði saman með tímalengdinni þeim
bræðrum Rögnvaldi r í k a og Sigurði r í k a, og sömuleiðis
sonum þeirra: annarsvegar Goðþormi, Ivari og Hallaði,
er duttu brátt úr sögunni (eins og »Gurim« hjá Dúdó), en
hins vegar Hrólfi og Einari, er fóru báðir landflótta fyrir
konungi (eins og »Rollo« hjá Dúdó). Það virðist öllu
sennilegra, að saga Dúdós um upphaf Hrólfs sé af þess-
ura rótum runnin, heldur en að hún stafi eingöngu frá
útför þeirra Goðröðar og Sigfröðar frá Danmörku (svo
sem G. Storm hefir haldið fram), með því að Dúdó telur
Hrólf eigi konungsson, en þeir Goðröðr og Sigfröðr
•eru kallaðir konungar í samtíðarritum, og hafa eflaust
verið konungbornir menn, en sjálfsagt hefir þó saga
þeirra sem foringja víkingahersins á undan Hrólfl haft
áhrif á sögusögnina urn hann, og blandast saman við
hana, svo sem fvr var sagt2), enda má sjá ljósan vott til
*) Fall ívars Rögnvaldssonar mátti segja að hlytist af konungi,
þótt hann félli fyrir vikingum (sbr. orð Hrolleifs íVatnsd. 24. k.: „Fað-
ir minn féll i liði föður þins ok Jngimundar, ok hefir þat af þér hlot-
izt ok þínum mönnum“).
*) Þar sem sagan lætur Hrólf ganga að eiga Gislu, dóttur
Karls Frakkakonungs, mun honum vera blandað saman við Goðröð, er
gekk að eiga konungsdóttur með þvi nafni (árið 882 eða 883), þvi að
•Gisla Karlsdóttir hefir annaðhvort verið ófædd eða nýfædd árið 911, og
önnur Gisla er alls eigi nefnd meðal dætra Karls einfalda i ættartölu
Karlunga frá miðri 10. öld. (Krit. Bidr. I. 154).