Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1912, Page 39

Skírnir - 01.01.1912, Page 39
Steinbiturinn. 39 daufari og bláhvítari, eftir því sem neðar dró í djúpið, þar til alt rann saman í blágrænum sorta niður við botn- inn. Hver ýsan eftir aðra hlunkaðist blýþung inn í bát- inn. Þar lá hún stein-þegjandi og hreyfingarlaus, reyndi ekki einu sinni að sprikla með sporðinum. Rann að eins yfir sleipa skrokkana á systrum sinum, sem fyrir voru, þangað sem vel fór um hana. Þar lá hún rótlaus og varð vel við dauða sínum. Hver ýsan rak aðra inn i bátinn, hver hlunkurinn annan, svo þungur og stór, að báturinn skalf við. En alt af var nóg utanborðs. Ef til vill þurfti í land frá hálf-dreginni lóðinni til að afferma. Þetta »einu sinni« kom fyrir, þegar Jónas í Nausta- vík komst á fætur á undan Páli. Jónas í Naustavík var argasti óvinur hans. Hann var aflamaður á við hann og jafnvel meiri, og það var hann, sem oftast erti Pál með steinbíts-nafninu. Við sáum til Jónasar kvöldið áður. Hann lagði lóð- ina sína fáeina faðma frá okkar lóð, ofurlítið utar í firðinum. Hitt vissi eg ekki fyr en löngu, löngu seinna, að Jónas hafði skotið hnísu fyrir fám dögum og beitti alla lóðina sína með úldnum hnísugörnum. Það er tálbeita fyrir ýsuna. Þegar sú beita er í sjónum, lítur hún ekki við öðru. Það var skiljanlegt, að Jónas vildi ná í lóðina sína á undan Páli að þessu sinni. Enda var hann kominn fram á fjörð áður en við komum á fætur — klukkan 3 um nóttina. Eg gleymi ekki steinbíts-svipnum á Páli þegar hann sá það. Við vorum ekki lengi úr landi út að duflinu okkar. Jónas dró lóð sina örskamt frá okkur. Tveir drengir á aldur við mig voru á bát með honum og andæfðu. Það var ýsa á hverjum öngli hjá honum. En þegar Páll var búinn að draga upp stjórann, brá svo kynlega við, að ekki sást ein einasta ýsa á lóðinni

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.