Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1912, Page 60

Skírnir - 01.01.1912, Page 60
60 Lífsskoðun Stepháns G. Stephánssonar. Um bersvæði þúsund, nm þúsundir ára, lét þúsundum frækorna sáð þín bára. Hann rennur fram hjá bóndabænum og ræktar landið í flóðvöxtum sínum. Þá barstu út akarn um hrjóstur og heiðar, sem hefir nú orðið að laufguðum meiðnm. Grösin þekja moldina á láglendinu og skógurinn, en lyngið flóttar sig um fjallsbrúnina og klæðir fjallið að ofau. Lífsskoðun Stepháns verður jafnan klökk í máli, þegar föður- landið ber á góma. Eg tek til dremis kvreðið um ,Patrek frænda'. Hann var írletidingur að ætterni, en fluttist vestur um haf og nam sór þar land og bjó til elli. Stephán kallar Patrek f r æ n d a, ef eg skil liann rótt, af því að Patrekur lifir við sviplík æfikjör sem sjálfur höfundurinn: er ættjarðarlaus í raun og veru, og börn hans eru að hverfa út í hringiðu hafsins — þjóðahafsins. írinn segir meðal annars: Eg þekki hvað seinna vor híður, er gæfuna höfum vér æfilangt elt, sem undan í flæmingi ríður. En hvar helzt i veröld sem vonbrigði hlóð sér valköst, er Irlandi margtekið blóð. Hór munar um einn staf aðeins. Ef þarna stæði s fyrir r, þá væri það um Island og það væri satt engu stður en hitt, svo oft hefir Fjallkonunni blætt nærri því til ólífis á æfi sinni. En Irinn elskar þessa blóðteknu beinagrind, ættjörðina. Hann segir þetta : En okið er léttast á írlandi þó, og ailsbysið bitur þar sljóast. Þó vouunum hnignaði, befir nú samt mín heimfýsn með aldrinnm þróast. Eg bjóst við að flytja heim erlendan arð í önd, eða hönd, þegar kveðja það varð. En þegar það brást, fyrir börnunum samt eg bjóst við sú heill mundi liggja; sem konungur Davið eg efnið dró að, sem úr skyldi sonurinn byggja. En ættjörð min fær hvorki fé eða son, nú féll hún í dag þessi síðasta von.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.