Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.01.1912, Síða 68

Skírnir - 01.01.1912, Síða 68
68 Ritfregnir. fyrir henni, sem hann samdi að bið góðra sagnritara (t. d. Snorra), í því skyni að gera grein fyrir œtlunarverki sínu og heimildum. Safnandi vorrar Sturlungu hefur haft fyrir sór annað styttra safn frá hendi Sturlu, er hafði inni að halda þetta þrent: 1. Ættartölur, 2. Sturlusönu (hvorttveggja eftir eldri höfunda) og 3. íslendinga sögu (eftir Sturlu sjálfan). A milli 2 og 3 rak safnandiun sig á formála Sturlu. Hann rótar honum ekki úr stað, en breytir hon- um meira eða minna eftir geðþótta sínum. Þetta sóst best á þvl, að heimildirnar, sem formálinn tilgreinir, eru ein- mitt þær heimildir, sem Sturla hlytur að hafa haft fyrir sér, er hann samdi Isl.s., en aðrar ekki. Enda verður nú formálinn allur auðskilinn, eins og hann liggur fyrir, og þá fyrst og fremst deilu- greinin sæla. Hún fellur eins og flís við brot milli þess, er á und- an fer og á eftir kemur. Hún bindur enda á upptalningu Sturlu á þeim ritum, er skráð höfðu verið fyrir hans daga um atburði sam- tíða þeim, er safn hans (Sturlus. og Isl.s.) átti um að fjalla. Sturla byrjaði eðlilega á að gera grein fyrir, hvað þegar hefði 'verið fært í letur af öðrum um það tímabil, sem hann ætlaði sér að lysa. I því efni skifti um eftir dauða Brands biskups. Fyrir þann tíma þurfti Sturla frá fáu að segja (— enda er Isl.s. hans fram að því næstum eingöngu ættarsaga þeirra Sturlunga), en úr því víkkaði verkaviðið, vegna þess að sögur eldri höfunda náðu fáar lengra; saga hans verður úr því saga alls landsins. I næsta kafla formál- ans tilgreindi hann svo, við hvaða heimildir hann ætlaöi að styðjast við samning sögu sinnar (þ. e. fróðra manna frásagnir, bróf og vit- neskju af eigin syn). — Því næst sýnir höf., hversu vel þessi efnis- þráður í formála Sturlu kemur heim við rit hans, eins og það var áður en safnandi Sturlunguskaut inn í það þáttum úr öðrum ritum. Aðalniðurstöðuatriðin af rannsókn höf. eru þá þessi: Formál- inn er saminn upp úr formála Sturlu fyrir ísl.s., hefur enn að geyma meginatriði hans og sýnir, hvernig Sturla lagði niður fyrir sór verkefni sitt. Af deilugreininni (»Flestar allar sögur« o. s. frv.) verður ekkert ráðið um aldur þeirra sagnarita, sem hljóða um at- burði sögualdarinnar svonefndu. Hún lýtur eingöngu að samtíðar- sögum Sturlungusafnsins. Yonandi er »formála«-dei!an þar með á enda kljáð. Síðari ritgerðin hljóðar um Gunnlaugssögu. Sú saga hefur til þessa verið talin meðal hinna elstu og áreiðanlegustu ís- lendingasagna. Hún komi ágætlega heim við aðrar sögur, só í fullu samræmi við tímatal Ara og rituð á frábærlega snjöllu máli og af
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.