Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1912, Side 75

Skírnir - 01.01.1912, Side 75
Ritfregnir. 75 fivipur á rót sína að rekja til þessarar stælihvatar. <»M a n w i r d d a s, w a s man s i e h t« (mennirnir verða eins og það, Bem þeir sjá), segir þyzkt skáld. En nú drepa nýjar spurningar á dyr. A hverju þekkjum vér hugarástönd manna í látæði þeirra og fasi, limaburði, svipbrigðum, andlitsfalli, í stuttu máli, hið innra á hinu ytra? Reynslan kennir barninu, hvað það eigi í vændum, þá er móðir þess brosir við því, ef hún er vön að gefa því sætindi um leið. I þessu dæmi er brosið merki væntanlegra athafna. Af þessu sóst, að svipur getur þýtt hluti og atburði, er reynslan sýnir, að eru honum samfara. Þetta má kalla efnisþýðing. En nú er angistaróp, t. d., ekki einungis boði geigvænlegra atburða. Það fræðir oss líka um hugarástand þess, er rekur það upp, að hann só hræddur. Vór heyrum hræðsl- una í hljóðinu og sjáum gleðina í brosinu. Ef eg horfi á einhvern. sem eg sé ánægjuna í andlitinu á og heyri í honum kætina á hlátri hans, er ánægja mín öðruvísi, eu þegar eg gleðst af einhverju, sem mór kemur einum við. Darwin spurði barn að, hvað væri að vera í góðu skapi, >>Hlæja, skrafa, kyssast«, svaraði barnið, og hann bætir við, að betri skilgreining á því sé torfundin. En öllum hláturtilbreyt- ingum eru ánægjubrigði samfara. Sáskilur þessi skapbrigði be/.t, er'fær bezt stælt líkamshreyfingar þær, sem þau hafa í för með sér. Vór virð- umst skilja hugarástönd manna að sama skapi, sem oss tekst að líkja eftirþeim.líktog d-ið varð oss skýrara, ei vór stældum það, ogframburð- ur útlenda orðsins Ijósari, er oss heppnaðist að herma hann eftir. En nú verður að gæta þess, að skynjanir vorar á umheiminum og öll afstaða gagnvart honum fer að nokkru eftir hugarástandi voru og hugmyndum af honum. Sumir hafa t.d. viðbjóð á hrossaketi. En þeir borða það með beztu list, ef þeir hafa ekki hugboð um,að það er hros8aket. Það er í rauninni ekki ketið sjálft, er kl/gjunni veldur, held- ur hugmyndin, sem því er tengd. Af þessu sóst, að það er sitt- hvað, áhrif hlutanna sjálfra á oss, og áhrif þau, er stafa frá hug- myndum, sem bundnar eru við þá. Og skapferli vort og hugar- ástand hefir áhrif á skynjanir vorar, ræður miklu um, hvernig um- hverfið og fyrirbrigði þess koma oss fyrir sjónir. »Sömu hlutir og atburðir koma oss misjafnlega fyrir sjónir, eftir því hvernig á oss liggur, eins og sama landslag sýnist oss mismunandi, eftir því, hvernig birtuna ber á það«, segir Höffding prófessor. Alls konar ömurlegar myndir, bæði af sjúkdómum og fátækt, myrkrum og óveðrum, sækja á draumþing þunglyndra manna. En þá er kæti og lífsgleði gagntaka oss, svífa myndir af vorgrænum blómum, sól og sumri fyrir hugskotssjónum vorum. Alt sýnir þetta, að stell-

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.