Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1912, Side 81

Skírnir - 01.01.1912, Side 81
lítlendar fréttir. Marokkódeilan. í »Ski'rni« frá 1906 og 1907 er nokkuð skyrt frá Marokkó og deilum, sem þá risu út af því milli ýmsra Evrópu- þjóöa. Það er aö nafninu til sjálfstætt ríki, en sífeldar deilur og strfö hafa verið þar meðal innlendra höföingja og innlendra flokka um yfirráðin. Af Evrópuþjóðunum hafa Frakkar og Spánverjar mest hlutast þar til um deilumálin innanlands, enda hafa þær þjóðir báðar haft forgöngu í ýmsnm tyrirtækjum þar f landi. En bæði Þjóðverjar og Englendingar hafa einnig látið Marokkódeilurnar mjög til sín taka á undanförnum árum, og eins nú. í vetur, sem leið, varð þar, eins og oftar, uppreisn, og vildu uppreisnarmenn velta soldáninum, Mulai Hafid, af stóli. En Frakkar veittu þá soldáni lið og bældu niður uppreisnina með hervaldl. Hólt hershöfðingi Frakka, Monier, með lið sitt til höfuðborgarinnar Fes og sat þar um hríð, þar til alt var kyrt orðið. Með þessu juku Frakkar mjög völd sín f Marokkó, og höfðu nú, eins og geta má nærri, soldán alveg á sínu bandi, því án hjálpar þeirra hefði hann eigi ráðið við uppreisnarmenn. En Þjóðverjar litu illum augum á uppgang Frakka þarna. I júlí flaug um sú fregn, að þeir hefðu sent herskip suður til Agadir, sem er höfn á vesturströnd Marokkórfkis, og þóttu þetta mikil tíðindi. Var sagt, að hugmynd Þjóðverja væri, að deila yfirráðum yfir Marokkó með Frökkum og fá sór flotastöð þar á norðvesturströnd Afríku. Hvað eftir annað gengu þær fróttir, að þá og þegar mundi slá í ófrið út af þessu milli Þjóðverja öðru megin, en Frakka og Englendinga hins vegar, og síðustu upplýsingar staðfesta, að minst hefir á vant- að, að ófriður yrði. Samningagerðir um málið fóru fram f Berlín, og stóð mjög lengi á þeim. Aðalmaðurinn frá Frakka hálfu var sendiherra þeirra þar, Cambon, en frá Þjóðverja hálfu utanríkis- ráðherra þeirra Kiderlen-Wáchter. Þegar liðið var langt fram á haust, tókust loks samningar. 6

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.