Skírnir - 01.01.1912, Síða 85
Útleiular fréttir.
85
landinu verði stjórnað samkvæmt fyrirskipunum þeim, er hann gefi
þar um, þangað til endanlegar ákvarðanir verði settar um stjórn
þar á löglegan hátt. Þessi boðskapur var hátíðlega lesinn upp í
Trípólis 7. nóvember af Caneva yfirhershöfðingja. En Tyrkjastjórn
taldi þá þennan boðskap fjarstæðu, með því þeir héldu enn uppi
vörnum fyrir landið með vopn í hóndum og játuðu enn enga upp-
gjöf á því fyrir ítölum.
Síðan'hefir alt gengið þar í sama þófinu, og er stríðinu ólokið
enn. Fregnirnar segja, að Italir hafi ætlað að taka af Tyrkjum
eitthvað af eyjum þeirra við Asíustrendur og þröngva kosti þeirra
á fleiri hátt heima fyrir, en því aftri stórveldin. Aftur á móti
hafa þau ekki viljað taka fram fyrir hendur Itala í Trípólis, þótt
Tyrkir hafi æskt þess. Er þó ófriðurinn alment talinn yfirgangur
og ofbeldisverk frá ítala hálfu gegn Tyrkjum.
Sjálfsagt má telja, að Italir haldi yfirráðum yfir Trípólis. En
meðal Tyrkja og Araba rikir nú svo ákaft hatur á þeim, að langir
tímar verða án efa að líða til þess að yfir það grói.
Horgarastyrjöld í Mexikó. Það hefir gerst þar í ár, að
Porfiríó Diaz forseta hefir verið steypt frá völduin. Hann befir
verið forseti lyðveldisins Mexikó samfleytt frá 1884 og má heita að
hann hafi ríkt þar sem einvaldur væri. Mesti merkismaður hefir
hann verið alla æfi og hefir komið stórum umbótum á í landinu.
En harðskiftinn hefir hann þótt við þá, sem móti honum hafa
rÍ8Íð. Þegar um forsetakosningar hefir verið að tefla, hefir hann
oft varpað helztu mótstöðumönnum sínum í fangelsi og geymt þá
þar, þangað til öllu var lokið. Auðvitað hefir slíkt einræði vakið
sterka mótstöðu. En þá mótstöðu hefir forsetanum jafnan tekist
að bæla niðor, þar til nú í ár.
Uppreisn var gerð í Mexiko seint á síðastliðnu ári með því
markmiði, að fella forsetann frá völdum, og varð úr borgarastyrjóld,
sem stóð fram á síðastliðið sumar. Uppreisnarmannaforinginn heitir
Francisko Madeiró, nierkur stjórnmálamaður. Uppreisnarmenn
sögðu sig undan stjórnarforráðum Diazar forseta, kusu Madeiró í
hans stað og kölluðu hann rótt kjörinn forseta lvðveldisins. Upp-
reisnarmenn höfðu hersveitir á sínu bandi og urðu oft orustur milli
þeirra og stjórnarhersins, og veitti ýmsum betur. Svo ískyggileg
var þessi borgarastyrjöld orðin, að Bandaríkjastjórnin setti her í
hreyfingu síðastliðið vor til þess að stilla til friðar í Mexikó, ef á
þyrfti að halda, og hólt þeim her suður að landamærunum. En