Skírnir - 01.01.1912, Side 92
Island 1911.
Árið 1911 má yfirleitt heita fremur gott ár. Veturinn var mildur,
en vorið og sumarið kalt. Hafís lá landfastur við Austfirði um tímaT
og við Vesturland og Norðurland tepti hann einnig skipaferðir við og
við frá því i marz og fram í maí. Var þó alstaðar horfinn fyrir maí-
lok. Gras spratt seint og varð töðubrestur nokkur. Á Suðurlandi var
þó heyafli alt að því í meðallagi, og i sumum héruðum annarstaðar á
landinu að minsta kosti eigi minni. Garðávextir sömuleiðis undir það í
meðallagi um Suðurland, en lakari í öðrum landshlutum. Gott verð á
innlendum búnaðarafurðum, einkum smjöri. Sláturhús eru nú orðin
nær 20.
Hausttiðin hefir verið hin bezta, desemher óvenjulega hlýr og góð-
viðrasamur.
Vetrarvertið var afbragðsgóð, enda veðráttan þá'svo hagstæð, sem
framast mátti verða. Vor- og sumarvertið i lakara meðallaga. Haust-
vertíð i meðallagi. Á Austfjörðum var mjög rýrt aflaár. í Vestmanna-
eyjum með langbezta móti. Á Vestfjörðum gott meðalár. En i lakara
lagi við Norðurland. Síldarafli góður, en verð lágt. Hvalveiði minni
en áður, enda eru nú allir hinir helztu 'avalveiðamenn að færa veiðar
sinar sem mest til Suðurhafanna.
Botnvörpuskipaútgorðin hefir mjög eflst hér við Suðurland og gefið
góðan arð, svo að útlit er fyrir, að sá útvegur fari enn vaxandi á kom-
andi árum. Einn íslenzki botnvörpungurinn, „Lord Nelson“, er keyptur
var frá Englandi fyrir einu ári, fórst 20. nóv. af árekstri við Skotlands-
strendur, en menn hjörguðust.
Alþing kom saman 15. febrúar. Stjórnmáladeilur höfðu verið miklar
tvö síðastliðin ár og var því eigi við þvi búist, að þetta yrði neitt friðar-
þing, enda skreið þar skjótt til skara. Vantraustsyfirlýsing til Björns
Jónssonar ráðherra var samþykt með allmiklum atkvæðamun 24. febrúar.
Hafði flokkur sá, er honum fylgdi 1909, nú klofnað út af þessu máli, og
voru það nokkrir úr þeim flokki, sem báru fram vantraustsyfirlýsinguna
og greiddu henni atkvæði ásamt Heimastjórnarmönnum. Um útnefn-
ingu hins nýja ráðherra urðu deilur á þinginu og drógst hún því fram
tii 14. marz. Þá var Kristján Jónsson yfirdómstjóri útnefndur. Urðu nú