Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1959, Page 6
GRÖP í ÖRÆFUM
9
og moldinni á milli stéttar og bæjarveggs). Yfir skelinni lá 30 til
50 sm þykkt lag af grófum hreinum vikri, en þar yfir lag af smáum
fokvikri blönduðum mold. Þykkt þessa lags var um 40 sm. Þá kemur
lag af sköruðum þakhellum og rofmold og er það efalaust þak
bæjardyranna. Yfir þaklaginu er síðan enn fokvikur, eins og undir
því, en þó eru í foklaginu fyllur af grófum vikri. Þetta lag fyllir
Þverskurður í bæjardyrum. a. Gólfslcán. b. Rofmold. c. Gróðurmold. d. Moldar-
blandinn vikur. e. Hreinn vikur. f. Hleðslusteinar. g. Hellur. h. Leirskel. —
Section through the outer door. a. Floor. b. Roof turves. c. Humus. d. Pumice
mixed with soil. e. Pure pumice. f. Stones. g. Flagstones. li. Clay crust.
bæjardyrnar (upp í 105—135 sm hæð), en yfir er gróðurmold og
gras.
I stofu var skipan sú, að neðst voru víða troðnir allt að 7 sm
þykkir vikurkögglar ofan í gólfskánina. Sumstaðar lá rofmold (úr
þaki) á sjálfu gólfinu, en þó voru fáeinir vikurkögglar undir henni.
Á öðrum stöðum voru flekkir af hreinum grófum vikri, en yfir
var fokinn moldarblandinn vikur með fyllum af hreinum, stórgerð-
um vikri og hlutar úr þaki, hellur og mold, voru hér og hvar innan
um fokvikurinn. Tóftin var barmafull af honum. í stofunni bar ekki
á hinni hörðu, leirkenndu skel, sem var fremst í dyrum og á stéttar-