Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1969, Qupperneq 142
146
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Eins og undanfarin ár hafði Hjörleifur Sigurðsson listmálari á
hendi leiðsögn um safnið fyrir gagnfræðaskólanemendur úr Reykja-
vík og nágrenni, og skoðuðu 1266 nemendur safnið undir leiðsögu
hans. Ýmsir handavinnukennarar, bæði hannyrðakennarar og teikni-
kennarar, hafa í auknum mæli komið í safnið hin síðari ár með nem-
endur sína til að sækja fyrirmyndir þangað, og er þetta nú að heita
má orðinn fastur liður í fyrirgreiðslu safnsins, þótt þáð sjái að vísu
ekki sjálft um leiðbeiningar á þessu sviði.
Sé gert ráð fyrir, að um 3000 manns skoði safnið utan venjulegs
sýningartíma, sem mun ekki ofmælt, mun láta nærri, að heildargesta-
talan verði um 48.000.
Sjálft hafði safnið eina sérsýningu á árinu, og bar hún nafnið
Grænland hið forna, og var það hin mikla og vinsæla sýning danska
Þjóðminjasafnsins, Erik den Rodes Gronland, sem það hafði þegar á
síðastliðnu ári lofað að Iána hingað til lands, eins og um getur í síð-
ustu ársskýrslu. Var hún fyrst sýnd hér utan Danmerkur, en búizt
var við, að hún yrði síðan lánuð til fleiri landa, og héðan var hún
send til Noregs. Sýningin var haldin í Bogasalnum og enn fremur
öllum innsta hluta anddyrisins, og var þiljað fyrir framan hann og
svo allt umhverfis til þess að fá veggrými. Á sýningunni voru margs
konar hlutir, sem fundizt hafa í norrænu byggðunum á Grænlandi,
svo og stórar ljósmyndir og skýringarmyndir, og allt til samans var
þetta mjög vel fallið til þess að varpa ljósi yfir daglegt líf og háttu
manna á Grænlandi á miðöldum og endalok byggðarinnar þar. Sýn-
ingin var opnuð 10. febrúar og stóð til 3. marz. Við opnun sýningar-
innar voru forseti íslands, ráðherrar og sendiherrar og fjöldi annarra
boðsgesta. Þjóðminjavörður flutti ávarp, en menntamálaráðherra opn-
aði sýninguna. Safnið bauð Knud J. Krogh arkitekt að vera við opnun
sýningarinnar, og hjálpaði hann allmikið til við að leggja síðustu
hönd á hana. Einnig flutti hann ávarp við opnunina, en hinn 12.
febr. flutti hann opinbert erindi um Grænlandsrannsóknir. Erindið
var flutt í Háskólanum, en á vegum Þjóðminjasafnsins.
Grænlandssýningin er myndarlegasta sérsýning, sem safnið hefur
haldið fram að þessu. Hún vakti mikla athygli og gestafjöldi var
óvenjulega mikill. Sérstakar þakkir ber að færa Þjóðminjasafninu í
Kaupmannahöfn fyrir þá miklu velvild að lána þessa sýningu hingað,
og eiga yfirvöld þess safns og margir starfsmenn þar óskiptan hlut
að máli.
Safnið veitti sem oft áður ýmiss konar fyrirgreiðslu með lán á
hlutum á sýningar innan lands og utan. Allmargt gripa var lánað á