Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1969, Page 151
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1968
155
gó'ðan spöl frá bænum og nýtur hann sín því fullkomlega, auk þess
sem gestaheimsóknir ættu ekki að valda heimafólki teljandi ónæ'ði.
Ekki varð af því, að Gamla búðin á Eskifirði yrði flutt á árinu,
en safnið hafði boðizt til að taka þátt í kostnaði við það verk. Þó var
undirbúningur hafinn, meðal annars fór Þorsteinn Gunnarsson
arkitekt austur á Eskifjörð og mældi og teikna'ði húsið mjög nákvæm-
lega. Greiddi safnið kostnaðinn við það. Væntanlega kemst flutningur
hússins í kring á næsta ári, og verður þá hægt að hefja viðgerð þess.
Eskifj arðarhreppur er eigandi hússins, og hefur hreppsfélagið sýnt
áhuga á varðveizlu þess.
Bjarni Ólafsson smi’ður kom að Sjávarborg í Skagafirði á vegum
safnsins og skoðaði gömlu kirkjuna þar, sem minnzt var á í sfðustu
skýrslu. Skilaði Bjarni skýrslu um athugun sína, en enn er vel unnt
að flytja kirkjuna af þeim stað sem hún er nú, en finna þarf henni
betri stað og sem næst upphaflega kirkjustæðinu, sem mun þó sjálft
ekki hentugt kirkjustæði. Stefán Jónsson arkitekt var hjálplegur við
að fá mann til að búa húsið undir veturinn og styrkja það til bráða-
birgða. Hins vegar hrakar því mjög ár frá ári, og þarf að ráðast í
flutning og vi'ðgerð þess fljótlega, ef það á að takast án alltof mikils
kostnaðar.
Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um bæinn í Selinu í Skafta-
felli, en sá bær er mjög illa farinn, og þyrfti að smíða hann algerlega
upp að nýju, ef hann á að varðveitast. Ilins vegar er hann gott
sýnishorn af skaftfellskum bæ með fjósbaðstofu, og þar sem Skafta-
fell er nú orðið þjóðgarður, væri á ýmsan hátt æskilegt, ef hægt væri
að endurbyggja þennan bæ og hafa til sýnis á þessum merka og
skemmtilega stað, en fyrirsjáanlegt er, að fer'ðamannastraumur mun
aukast mjög að Skaftafelli og í öræfin eftir að bílfært er orðið
þangað. í Skaftafeili eru einnig mjög merkileg útihús, einkum hlöður
með fornu byggingarlagi, sem brýn nauðsyn er að varðveita og þyrfti
að athuga það húsamál allt í heild.
Til stóð á þessu ári, að safnið veitti liðsinni til að taka ofan og
merkja baðstofu á Brekku í Hróarstungu, er Menningarsamtök Hér-
aðsbúa hafa keypt og hyggjast varðveita á byggðasafni, þegar tök
verða á. Sökum breytinga á starfsliði og anna safnmanna varð þessu
ekki komið við, en áformað er að vinna þetta verk að vori. Búast má
við, að í framtíðinni verði meira farið inn á þessa braut í verndun
gamalla bygginga, sem sé að varðveita einstök hús á safni, en þó
verður aðeins hægt að varðveita tiltölulega takmarkaða parta gam-
alla bygginga eins og sveitabæja á þennan hátt. Gömlu húsin, stofan