Eimreiðin - 01.05.1901, Blaðsíða 27
107
Hjá æöri dýrum hverfa þessir kirtlar og nýrun koma í staðinn.
Eftir að fiskarnir hafa náð þessu stigi, taka þeir aðeins litlum
breytingum í fósturlífi, en hin dýrin hætta eigi við svo búið,
heldur halda áfram að breytast og vaxa.
Lítum vér á næstu myndaröð (4. mynd), sjáum vér fóstur
mannsins orðið mánaðargamalt, og því til samanburðar fóstur hinna
sömu dýra sem fyr. Öll hafa þau breyzt töluvert; fiskurinn og
salamandran hafa þegar að mestu leyti náð því útliti, sem þau
síðar hafa, hin eiga enn þá langt í land. Enn þá vottar fyrir
tálknopunum, en hins vegar eru útlimir komnir og rófan orðin
Skjaldbaka.
Hæns.
Svín.
Kálfur. Kanína.
3 mynd.
Rarn.
greinilegri. Enn er erfitt að þekkja að fóstur manns og t. d.
svíns, og að allri byggingu er það mjög svipað fóstri skjaldbök-
unnar og annarra skriðdýra.
Breytingarnar halda stöðugt áfram smátt og smátt, tálknopin
hverfa og lungu koma í þeirra stað, nýrun rnyndast, meltingar-
færin, hjartað og taugakerfið, í stuttu máli alt vex og breytist.
Skoðum vér fóstur mannsins tveggja mánaða gamalt, er orðið aug-
ljóst, að úr því verður hvorki fugl né fiskur, en mjög svipar því enn
þá til hundsfósturs á líkum aldri (sbr. 5. mynd). Að litlum tíma liðnum
er þó munurinn orðinn svo mikill að ekki er um að villast. Meðgöngu-