Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1901, Síða 66

Eimreiðin - 01.05.1901, Síða 66
146 dansinn byrjaði fyrst. Hitt hafði að eins verið inngangur. Pað var dansað og dansað, og menn vissu varla seinast, hvort menn voru að dansa eða hvort menn voru að líða í loft upp langt burt frá öllum áhyggjum og andstreymi þessa lífs; en þegar svo var komið, hertu menn sig ennþá meira við dansinn, eins og menn væru að því komnir að ná einhverju hnossi. Úti fyrir hvein vind- urinn, og hríðin buldi á gluggunum, en enginn sinti því, og það var eins og meðvitundin um muninn á vistinni úti og inni æsti tilfinningar manna ennþá meira en hreyfingin og hljóðfærið, og kæmi mönnum til þess aö hendast ennþá harðara áfram alveg ósjálfrátt. Nú komu vasaklútarnir sér vel, því nú var fólkinu farið að volgna. Margir urðu fegnir að hvíla sig um stund, og notuðu þeir tækifærið til þess að tala við náungann í hálfum hljóðum úti í skálahornunum; var auðséð, að þar bar eitthvað skemtilegt á góma, því kvennfólkið hló í klúta sína, en karlmennirnir brostu; en óðara en mæðin var runnin, og bráðustu forvitninni var fullnægt, og nokkrar sveitaþvaðurssögur voru komnar á kreik, þá var farið að dansa aftur, dansa og dansa og dansa. Pegar klukkan var orðin átta, varð einhverjum litið út, og sagði hann, að nú væri kornin óratandi stórhríð. Menn litu hver til annars steinþegjandi, og var eins og hrollur færi um suma gest- ina, líkt og þegar tilfinning sú, sem nefnd er samvizkubit, gerir vart við sig. En þessi óþægilega tilkenning leið frá aftur þegar í stað, og menn fóru að bera sig saman um, hvernig bezt yrði ráðin bót á þessu óhappi. Menn sögðust ekki skilja, hvernig því gæti verið varið, að hríðin hefði skollið á svona snögglega, og loksins kom mönnum saman um, að hver yrði að vera þar, sem hann var kominn, enda fór veðrið altaf versnandi og varð seinast svo grimt og ofsalegt, að enginn mundi eftir öðrum eins ósköpum. Áður en langt um leið, var farið að dansa aftur, eins og ekk- ert hefði í skorist, til þess að það, sem eftir var af kvöldinu, yrði ekki ónýtt, en þó þurftu gestirnir, sem flestir voru forsjálar meyjar, að skjótast frá sem snöggvast, ein eða tvær í einu. Eær sögðust kunna betur við að biðja um húsaskjól en að setjast upp alveg þegjandi. Nú vildi svo til, að prestsdóttirin var ekki heima, og komu jungfrúrnar sér varla að því, að bera bænir sínar upp við prestinn, og þá var ekki annars kostur, en að biðja Signýju gömlu, ráðskonuna, að ganga á milli; en Signý var orðin gömul og gleðilaus

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.