Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1916, Qupperneq 2

Eimreiðin - 01.05.1916, Qupperneq 2
7« hafnar, þótt hann byggi ekki nema 3 mílur frá höfuðstaðnum; og hafði aldrei ferðast með járnbraut. í sparisjóðsbók, er hann hafði með sér á spítalann, átti hann aftur’á móti mörg þúsund krónur; svo að það var ekki fátækt, sem olli hinum miðaldarlegu lifnaðar- háttum hans. En ég þarf ekki að leita svo langt aftur í tímann sem til 1908. í verkahring mínum hér í Vendilsýslu ber það þráfaldlega við, að fólk, sem ég legg hér inn á sjúkrahúsið, fyrst og fremst biður mig um og grátbænir, að ég skuli sjá um, að það verði ekki laugað. Margir óttast baðið miklu meira en sjálfan hold- skurðinn. Sumt eldra fólk hér um slóðir til sveita þvær sér held- ur ekki nema endrum og sinnum í framan og um hendurnar. Ný- lega bað roskin kona mig að afsaka, þó maðurinn hennar væri allóhreinn, því hann hefði ekki fengist til að þvo sér í 6 vikur! fvi fer þó fjarri, að mentun manna og menning hér á Norður- Jótlandi sé nokkru minni en í öðrum landshlutum, heldur stendur hún hér að mörgu leyti framar, einkum að því er snertir húsa- kynni og bóklega þekkingu. Á öllum öldum hafa böð verið þekt og notuð af vissum mönnum og stéttum, bæði sem heilsusamlegt nautnameðal og sem lækning við ýmsum sjúkdómum og kvillum. Pað er líka ó- hætt að fullyrða, að vatn á ýmsan hátt notað er eitthvert hið bezta lyþ sem til er. Allir þekkja, hvílík undra-áhrif rétt lagðir vatnsbakstrar hafa á næstum allskonar útvortis-bólgu, einkum og sér í lagi æðabólgu, handar- og fóta-mein og minniháttar blóð- eitrun. Nú á tímum er bæði heitt og kalt vatn notað til þessara bakstra, þó einkum heitt, því notkun þess mætir yfirleitt minni mótspyrnu hjá almenningi en köldu bakstrarnir, sem margir eru sífelt hræddir við. Á seinni tímum er farið að nota kalt vatn á ýmsan hátt frekar til lækninga en áður, og við langtum fleiri sjúkdómum, og eru það einkum þýzkir, austurrískir og franskir læknar, er gengið hafa þar í broddi fylkingar. Peir nota ekki aðeins köld böð og bakstra, þegar um fullorðið fólk er að ræða, heldur og einnig við sjúkdóma hjá börnum og gamalmennum, þótt það lengi hafi verið skoðaður sem heilagur sannleiki, að kuldinn eða hið kalda vatn væri bráðskaðlegt fyrir ungbörn og háaldrað fólk. Auðvitað má ofmikið af öllu gera, og herðingu barna með köldu vatni, einkum köldum böðum, má óhætt telja viðsjárverða. Pví þess ber að gæta, að börnum er hættara við
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.