Eimreiðin - 01.05.1916, Síða 16
92
eins og foss-flaumur
af fluga-bergi.
Loks brá nú ljóma
»af Logafjöllum«.
Geislar guðs sólar
glóðu þér á hvarmi.
Opnuðust alheilar
öldungs sjónir,
greindu drottins dýrð
og daginn ljósa.
Fenginn er þér friður
og fullsæla,
eilíft unaðs-ljós
í æðsta heimi.
Veit eg, þú kveður
með kærleikum
son þinn syrgjandi,
sveit þína og land.
Farðu vel, forni
fræðimaður!
Hittast munum heilir
hinn veg grafar.
— Leiddur ljós-gyðju
lætur þú hleypt
Fáki1) flugléttum
á fagrahvels-boga.
KONRÁÐ VILHJÁLMSSON.
Sirí us.
Eftir prófessor dr. ÞORV. THÓRODDSEN.
Stjörnur byggja cf að tr cinhvcrsstadar undan sól
œtlað jarðar lýði, á ciði sjaldan jórnu
og cf sœti ýta fcr íslcndingar ciga ból
cftir rausn og frrýði, yzt í Hundastjómu.
J. Þ. Th.
Það lítur út fyrir, að skáldið hafi ímyndað sér, að Hunda-
stjarnan, sem annars er kölluð Siríus, væri fremur óvirðulegur og
afskektur bústaður; en það fer fjarri því; stjarna þessi er alls
ekki einangruð frá öðrum stjörnum, hún er nálæg Óríons-belti
Jón átti reiðhest, forkunnar góðan, með því nafni á yngri árum. Og
hestamaður var hann með afbrigðum.