Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1916, Qupperneq 76

Eimreiðin - 01.05.1916, Qupperneq 76
152 að íslenzki gróðurinn sé ávalt hinn staðbezti. En vill ekki Haldór rækta íslenzkt fræ? Smágrein eftir Ásg. Torfason um gaddavír er mjög þarfur leiðarvísir til að reyna, hve vírnum sé ryðhætt. Ekki vanþörf á, að vekja menn til umhugsunar um. að kaupa vírinn ekki óreyndan. Hörmulegt að sjá, hve illa menn veija fé sínu, með því að gera girð- ingar úr vír, sem kolryðgar strax á i. ári. — Skyldi það vera frá- gangssök, að koma á almennu eftirliti með öllum þeim vír, er flyzt til landsins? Sig. Guðmundsson: Um búreikninga. Ytarleg grein, bygð á athugunum og reynslu höfundar. En er litið er á, hversu rfslenzkir bændur eru frábitnir allri reikningsfærslu, þá er augljóst, að til- lögur höf. koma fjöldanum ekki að verulegu liði. Víst er um það, að tilfinnanlegur skortur er á búreikningum og allskonar búnaðarathugun- um, er kemur bændum sjálfum í koll, og gerir innlendri búfræði erfitt uppdráttar. Gagnlegt er það mjög, að um búreikninga sé talað í ræðu og riti — þá líkindi til, að augu manna opnist fyrir nauðsyn þeirra. Þá er grein eftir bændaöldunginn Torfa Bjarnason um hallcerisvarnarmálib. Sýnir hann þar glögglega fram á, að aðgerðir þingsins í því máli séu hvergi nærri fullnægjandi. Að fóðurforðabúr, bjargráðasjóður og hverskonar hallærisvarnir, sem hið opinbera kemur á fót, séu máttlítið kák, með öllu ónóg trygging, meðan bændur bind- ist ekki frjálsum samtökum að bæta ásetninginn að mun. í’egar allur almenningur sjái og skilji voðann, er sí og æ vofir yfir íslenzkum bún- aði, þá verði bústofninum fyrst borgið. Þessi aðvörunarorð hins merka, nú látna, manns ættu að geta verið brýn hvatningarorð til yngri manna, til að vinna að því, að samtök þessi komist á, og áhuginn á því fari sívaxandi, að horfellirinn hverfi úr búnaðarsögu ís- lands. — XXIX. ár. Guðm. Davíðsson: Nokkur orh um æjbarvörp. Jafnframt því sem grein þessi er skemtileg frásögn athuguls manns, sem hefir verið varpbóndi í 18 ár, og nokkrar bendingar um meðferð á vörp- um, þá er hún einnig nokkur vel valin alvöruorð til »veiðiþjófanna«. Svo kalllar höf. menn þá. er virða að vettugi landslög og mannúðar, og drepa, særa og styggja æðarfuglinn við strendur landsins. Sýnir hann fram á, hvernig gagn skotmanna geti aldrei verið nema örlítið, í samanburði við tjón það, er þeir gera varpeigendum. Jón Hannesson: Hey'ójiun. Höf. drepur á nokkur atriði hennar. Greinin er hugleiðingar um ýmsar umbætur, er honum þykir gjörlegar og komið gætu að notum. Bendir á, að aðal-framfaramál búnaðarins sé, að heyaflinn og not hans geti aukist. Minnist hann á 4 leiðir til þess: i. aukna ræktun, 2. að flýta heyskapnum, 3. að lengja heyskapartímann, 4. að spara hey og bæta. — Áðal-framtíðar- málið er vitaskuld aukin ræktun, er hingað til hefir fyrst og fremst strandað á áburðarskorti, sem meðal annars hefir stafað af illri áburð- arhirðingu. Bendir höf. lauslega á nokkra búhnykki til áburðarauka, og sýnir fram á, að æskilegt væri, að bændur gætu komist að raun
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.