Eimreiðin - 01.05.1916, Page 78
154
bændura, að leggja á sig þann kostnað, að fyrna svo mikil hey í
meðalári, sem svarar helming þeirra heyja, er aflast árlega, heldur
en að hafa heyskortinn jafn-yfirvofandi árlega, eins og nú tíðkast al-
ment. Kostnaðinn við svo miklar fyrningar telur hann eigi meiri en
51 kr. á ári á meðaljörð, en á þann hátt einan sé bústofninn örugg-
ur. »í þessu máli á ekki að beita valdboðum eða hótunum um sekt-
ir. Það, sem þarf að framkvæma í því, verður að fást með frjálsum
samtökum bænda. En landsstjórnin verður að gangast fyrir því, að
þessi samtök komist á, og styrkja bændur ríflega af almanna fé til
framkvæmdanna.« í’annig kemst höf. að orði í grein sinni. Það,
sem næst liggur fyrir, er, að athuga, hvernig fijálsum samtökum verði
fljótast komið á og haganlegast fyrir komið.
Guðm. Hannesson: Kringum bæinn. Um frágang og
umgengni utanhúss á sveitabæjum. Bendir hann á margt smekk-
leysið og trassaskapinn, sem víða er orðinn svo gamall í hettunni, svo
rótgróinn, að fæstir gefa því gaum. Forugt hlað, umgirt opinni for og
illa hirtum fjós- og öskuhaugum, er vitanlega heimilisfólkinu til óþrifn-
aðar, skammar og heilsuspillis — og því mjög gagnlegt, að jafn-
glöggur maður og þjóðkunnur, og höf. er, taki mál það til athugunar
fyrir almenning.
V. St.
ALMANAK ÓLAFS ÞORGEIRSSONAR 1916. XXII. ár.
Winnipeg 1915.
1 þessum árg. er fyrst löng og snjöll ritgerð um séra Matth.
Jochumsson og ritstörf hans (áttræðisafmælisgrein), ásamt mynd af
honum, eftir séra Friðrik J. Bergmann. Og síðar er þar
önnur falleg grein eftir hann uni Símon Símonsson og konu hans
Valdísi Guðmundsdóttur (gullbrúðkaupsgrein), ásamt mynd af þeim.
Auk þess eru þar grein um Brasilíuferðir Þingeyinga, eftir Þ ó r h.
Bja r n a r s o n biskup, grein um 40 ára afmælishátíð Nýja-íslands,
eftir útgefandann, og um 40 ára búendur Nýja-íslands með myndum
af þeim. í’ar er og kvæði eftir Gutt. J. Guttormsson, »Sandy Bar«,
»Endurminningar frá æskustöðvunum« (Þingeyjarsýslu) eftir S i g f ú s
Magnússon, og enn fleiri greinar (oÞuríður Sveinsdóttir« og
»Einar H. Johnson«, með myndum), ásamt yfirliti yfir helztu viðburði
og mannalát meðal íslendinga í Vesturheimi.
Almanak Ó. Þorg. er jafnan mjög Iæsilegt og eigulegt, bæði til
fróðleiks og skemtunar. En því miður mun sala þess vera bönnuð á
íslandi sökum einkaleyfis Khafnarháskóla til almanakssölu á íslandi.
V. G.