Eimreiðin - 01.01.1920, Page 17
fílMREIÐIN]
JÓHANN SIGURJÓNSSON
17
birtist enn á ný hans auðuga skáldgáfa og glæsilegu hæfi-
leikar. En skuggi Njálu fellur svo fast og þungt yfir
það, að hætt er við að það þess vegna njóti sín al-
drei til hálfs. Að minsta kosti ekki í augum íslendinga.
Um útlendinga gegnir alt öðru máli, fæstum þeirra er
Njála kunn, enda hefir leikritið hlotið hið mesta lof hjá
mörgum útlendum ritdómurum.
V.
Nokkru eftir að Fjalla-Eyvindur kom út kvæntist Jóhann
danskri konu, frú Ingeborg Thidemand. Sambúð þeirra
hjóna kvað hafa verið óvenjulega ástúðleg, þau voru
trygðavinir og félagar, sem héldu saman í bliðu og stríðu,
og mátti hvorugt af öðru sjá. Öllum, sem til þekkja, kem-
ur saman um, að hún hafi veitt honum ómetanlega aðstoð
á listamannsbraut hans.
Heimsstyrjöldin skall yfir skömmu eftir að Jóhann var
orðinn frægur maður, og má nærri geta, hvílíkt tjón hann
hefir haft af þvi. En þó fór frægð hans vaxandi ár frá
ári, ritgerðir birtust um hann í þýskum, frakkneskum,
enskum og amerískum blöðum og tímaritum, og mun
tæpast hafa verið ritað meira um nokkurn norrænan rit-
höfund á síðari árum. Einn merkur frakkneskur ritdóm-
ari komst svo að orði, að hann stæði þegar jafnfætis
Ibsen, Björnson og Strindberg, og kynni ef til vill að fara
fram úr þeim fyr en nokkurn grunaði. Sá heiður hlotn-
aðist honum einnig, að rit hans voru þýdd á ensku og
tekin 1 ritsafn er nefnist Scandinavian classics. Er ritsafn
það gefið út af »Oxford University Press«, og höfðu birst
þar áður rit eftir Holberg, Tegnér, Strindberg, Björnson,
Kirkegaard og Snorra Sturluson, en ekki fleiri. Nú hefir
Jóhann Sigurjónsson bætst í hópinn og eru þar þá tveir
íslendingar, annar frá 13. en hinn frá 20. öld. Sjaldan
mun ungum rithöfundi hafa veitst meiri sæmd.
En það var fleira en ritstörfin og ritfrægðin, sem hann
hafði hugann á hin síðustu árin. í rauninni var hann ó-
venjulega verklundaður, í höfði hans brutust sífelt um
áform og ráðagerðir um hin og önnur fyrirtæki, og ef
2