Eimreiðin - 01.01.1920, Síða 31
EIMREIÐIN)
BOLSJEVISMI
31
eftir var æfinnar, vann í British Museum og andaðist 1883.
Árið 1864 stofnaði hann Alþjóðafélag verkamanna, en sú
hreyfing sligaðist undir þröngsýnni þjóðernistilfinningu, er
Evrópustríðin hvervetna vöktu, og öðrum áhrifum, sem
leiddu til þess, að félagið sálaðist 1876. Hugmyndin og
markmiðið lifa þó enn þá í ýmsum myndum, t. d. í Al-
þjóðaskrifstofu verkamanna í Amsterdam, í Réttindaskrá
alþýðunnar, sem er einn af hyrningarsteinum Þjóðasam-
bandsins, í alþjóðaþingi sósíalista (kommúnista) og í bol-
sjevismanum.
Sósíalisminn grípur yfir öll lönd sem eina heild og bol-
sjevisminn er einn þátturinn í sögu hans. En hér skal
ekki farið út í allsherjarsögu þeirrar hreyfingar, því að
engin tök eru á því að gefa hugmynd um það, hve
stórkostleg hún er. Það væri ef til vill miður heppilegt að
segja, að hún hafi »byrjað sem blærinn er bylgjum slær
á rein«, en hitt er víst, að hún brýst nú fram sem storm-
ur og skekur hinar fornu mannfélagshaliir — sem vitan-
lega eru ekki bygðar á bjargi. Áhrif sósíalismans á alla
löggjöf og réltarmeðvitund síðasta aldarfjórðunginn hafa
verið meiri en svo, að auðvelt sé að gera sér grein fyrir
þeim eða meta þau, og fáum þeim, sem með athygli og
óblindaðri sálarsjón hafa fylgst með rás viðburðanna,
dylst nú lengur, að hann muni að lokum fá yfirhöndina.
Um hitt eru ærið skiftar skoðanir, hvort hann muni ráða
bót á öllum þeim þjóðfélagsmeinum, sem postular 'hans
lofa að græða. Margt hefir orðið til þess að hindra fram-
gang hans — samtakaleysi (skoðanamismunur) innan
herbúðanna og hin grimmasta mótspyrna íhaldsstefnunn-
ar; en af öllum þeim þröskuldum, er orðið hafa á vegi
hans, hefir þjóðarígurinn verið sá erfiðasti, og svo er
hætt við að verði enn um langt skeið.
En hvernig sem straumarnir lágu í verkamannahreyf-
ingunni á annan bóginn og þjóðernishreyfingum á hinn
bóginn víðsvegar um lönd, er það þó viðurkent, að fyrir
ófriðinn greiddi hver einasti verkamaður í rússneskum
borgum atkvæði sem sósialisti. Með öðrum orðum þeir voru
allir undir áhrifum Marx og bolsjevikaleiðtoganna. Þeir ósk-