Eimreiðin - 01.01.1920, Síða 39
EIMREIÐIN]
BOLSJEVISMI
39
allar þessar vöflur hélt svo hernaður þeirra á Rússlandi
áfram. í janúarmánuði 1919 fékk Wilson talið friðar-
þingið í París á að bjóða Rússum að koma til samninga
í Prinkipo á Prinseyju í Marmarahafinu. Það boð náði
^kki einungis til bolsjevika, heldur til allra þeirra flokka,
er þá voru að reyna að ná undir sig völdum á Rúss-
landi eða lágu í hernaði. Daginn.eftir að boðið var sent
út sagði Lundúnablaðið Times, að ef bolsjevíkar höfnuðu
því, »þá væru þeir þar með búnir að játa, að stefna
þeirra væri fjandsamleg bæði frelsi Rússa og frelsi allra
annara þjóða, og eftir þá játningu mundu stórveldin í
París ekki vaða i neinni villu um það, hvað þeim bæri
að gera því til varnar«. Bolsjevíkar voru ekki seinir á
sér að taka boðinu og buðu nú betri skilmála en nokkru
sinni áður, tjáðu sig fúsa til verslunarviðskifta við auð-
valdsstjórnirnar, buðu að gefa erlendum fésýslumönnum
rétt til námugraftar, skógarböggs og járnbrauta, lofuðu
að hætta að berjast fyrir byltingum utan Rússlands og
að borga lán þau, er Rússland hafði tekið erlendis. í
þessum efnum varð Lenin aftur að hvika frá stefnu sinni,
því það var deginum ljósara, að þjóðin gat ekki haldið
áfram að lifa í sveltikvinni og berjast við öll auðvalds-
ríkin. En bæði var það, að svona mikla tilslökun tóku
Bandamenn sem merki þess, að bolsjevíkar væru komnir
á heljarþrömina, og hitt, að afturhaldsliðið á Rússlandi
hafnaði boðinu, sem Times þótti drengilega gert, svo
Prinkipo-tilboðið var tekið aftur. Á svipaðan hátt var
farið með tilboð þeirra Nansens og Brantings í mars
1919 um að flytja matvæli til Rússlands. Lenin tók því
boði, og svo virtist sem Bandamenn hefðu í orði kveðnu
samþykt það, en þeim tókst svo að draga það á langinn,
að ekkert varð úr framkvæmdum. Hervaldssinnar, sem
öllu réðu hjá Bandamönnum, kusu heldur að sjá Rússa
svelta dálítið lengur, enda þótt þeir fullyrtu, að níutíu af
hverjum hundrað væru vinir sínir, en fjandmenn bolsje-
víka. Og það er ekki fyr en núna, eftir að alþýðan á
Bretlandi er farin að láta ensku stjórnina hafa hitann í