Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1920, Síða 45

Eimreiðin - 01.01.1920, Síða 45
EIMREIÐINl BOLSJEVISMI 45 þessi, sem rífa niður hina æfagömlu þjóðfélagsskipun og byggja upp aðra, sem er henni gerólík? Þar sem yðar fjársjóður er, þar er og yðar hjarta, en hér veltur einmitt á fjársjóðum margra þúsunda manna. Þegar hús nábúans brennur, er mínu hætt. Hinar auðugu stéttir um heim allan óttast, að hreyfingin grafi um sig, og kjósa því helst að sjá ána stemda að ósi. Þær æpa, og fjöldinn fylgir þeim svo í blindni. Ekkert hefir kynt svo haturs- eldinn, sem bolsjevíkar eru steiktir á, sem vonbrigði auð- mannanna í hinum vestlægari löndum Evrópu og í Ame- ríku. Auðsuppsprettur Rússlands eru takmarkalausar, og þessir menn gerðu sér vonir um að ausa þar upp gulli að styrjöldinni afstaðinni; en um slíkt gæti ekki verið að ræða, ef bolsjevíkar kæmu í öllu sínum vilja fram, því þá yrðu gæði landsins sameiginleg eign allrar þjóðarinnar og ekkert tækifæri fyrir einstaklinginn að auðgast á kost- nað fjöldans. Námur Rússlands og olíulindir eru óþrot- legar, en auðsuppsprettur framtíðarinnar eru um fram alt steinolía og rafmagn. í auðugum löndum eins og Eng- landi, Ameríku og Frakklandi er því gremja gullkóng- anna yfir því, að útilokast frá rússnesku kjötkötlunum, beinlínis afskapleg. Það væri hægur vandi að sanna það með endalausum rökum og óteljandi tilvitnunum í blöð og rit þessara þjóða, að það er ágirndin — »rót alls ills« —, sem mestu hefir ráðið um fjandskap þeirra til lýð- veldisins á Rússlandi, En slíkt væri miður heppilegt að láta uppskátt — þótt úlfseyrunum hætti til að gægjast út nndan sauðargærunni —, og því verður að leita annara ráða. Og þó að það sé enn þá svo með ljúgvitnin eins og það var fyrir nítján öldum, að þeim hættir við að bera á milli, þá eru þau samt ekki nærri því úrelt enn þá. Það hefir löngum kveðið við þann tóninn í blöðunum í Vestur-Evrópu, að bolsjevíkar væru í raun og veru í minnihluta á Rússlandi og að það væri með ofbeldi einu, að þeir héidu völdum. Alt af hafa verið að koma sögur um, að veldi þeirra væri á fallanda fæti; stundum hefir verið sagt, að bændalýðurinn væri að ganga undan merkjum þeirra, eða ef ekki bændur, þá einhver önnur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.