Eimreiðin - 01.01.1920, Síða 68
68
MERKILEGAR MYNDIR
[EIMREIÐIN
erkibiskup í Uppsölum, dr. Solander, sænskur grasafræð-
ingur, dr. James Lind, stjörnufræðingur frá Edinborg, og
sjóliðsforingi Gore, sem þá hafði þegar farið þrisvar sinn-
um kring um hnöttinn.
Þorvaldur Thoroddsen getur þess, að »teiknararnir«
hafl verið þrír, en ekki, hvað þeir hafi heitið. En það
sést á myndunum. Einn þeirra hét John Cleoeley. Hinir
hafa ef til vill verið bræður: John F. Miller og James
Miller. Flestar eru myndirnar teiknanir, en sumar lit-
myndir.
Fyrst höfðu þeir Banks rannsakað Suðureyjar og Orkn-
eyjar, og er því fyrri helmingur þessa myndasafns þaðan.
Eru þær í skrá skjalasafnsins nefndar:
y>Drawings, partly coloured, illustrative of Sir Joseph
Banks’s voyage to the Hebrides, Orkneys and Iceland, in
1772, by John F. Miller, J. Cleveley junior and James
Miller. 4 Volumes. Large Folio. Bequeathed by Sir Joseph
Banks.«
Þeir komu fyrst í Hafnarfjörð og fengu »dönsku húsin«
til ibúðar, enda eru fyrstu myndirnar af þeim. Þeir fóru
austur að Geysi og upp á Heklu og síðan niður að Skál-
holti og munu hafa dvalist eitthvað þar hjá Finni bisk-
upi Jónssyni. Eftir það fóru þeir aftur til Hafnarfjarðar
og ferðuðust nokkuð um Suðurnes. Sagt er, að Thodal
stiftamtmaður hafi tekið þeim vel. Sir Joseph Banks var
hið mesta ljúfmenni og ör á fé. Komst hann í vinfengi við
embættismenn og heldri menn syðra. Meðal annara heim-
sótti hann Bjarna Pálsson landlækni að Nesi við Seltjörn.
Þeir Banks voru hér við Iand fram að veturnóttum.
Eg tek hér upp ofurlítinn kafla úr annál séra Magnúsar
Péturssonar á Höskuldsstöðum um ferð þeirra, eftir Land-
fræðissögu Þorvalds Thoroddsens:
»1772 í Augusto kom á Hafnarfjörð engelskt skip ei allstórt,
með fallstykkjum og vörnum búið, var sagt um 40 manna á því.
Voru þar á herramenn praklugir að klæðum, allri viðhöfn og
siðferði, fengu þau dönsku hús eða búðir til aðseturs, héldu
stór gestaboð með mörgum réttum og drykkjum, buðu þar til
amtmönnum og æðri mönnum. Enga kauphöndlun höfðu þeir
né liðu við landsfólkið, en mælt var að skenkingar hefðu farið