Eimreiðin - 01.01.1920, Qupperneq 70
70
MERKILEGAR MYNDIR
[EIMREIÐIN
sum handritin. Hann unni mjög íslandi og öllu því, er
frætt getur oss um sögu þess. Hann hefði því síst gengið
frain hjá jafnmerkilegum skjölum fyrir menningarsögu
vora og myndir þessar eru.
Sumarið 1910 kom eg aftur til Lundúna. Fórum við
Eiríkur þá báðir einn dag í heimboð til enskrar konu,
frú H. W. Bannon, er víða hefir ferðast og oftar en einu
sinni komið hingað til lands og er ágætur málari. Man
eg eftir því, að hún var að segja okkur frá því, að til
væri mynd af Skálholtsdómkirkju í British Museum, og
að biðja okkur að skoða hana. En við sintum því lítið,
enda höfðum við þann dag um annað að hugsa. Síðan
gleymdi eg þessu alveg. Frú Bannon er ýmsum kunn hér
á landi fyrir það, að hún keypti hið fræga eintak af
Guðbrands-biblíu, er Hálskirkja í Fnjóskadal átti, — lang-
fallegasta eintakið af Guðbrands-biblíu, sem eg hefi séð.
Er það nýkomið heim aftur. Frú Bannon þessi mun hafa
gert mynd eftir mjmdinni af Skálholts-dómkirkju í Banks-
safninu, og frá henni mun magister Bogi Th. Melsteð
hafa fengið mynd þá af dómkirkjunni í Skálholti, er
hann hefir í íslendingasögu sinni. Neðan við þá mynd er
prentað: »Mynd H. W. Bannons eftir frummynd J. Cle-
yeley’s«. Raunar veit eg ekki með vissu, hver þessi H.
W. Bannon er, en eg get mér þess til, að það sé frúin.
Það er býsna vel að orði komist hjá síra Magnúsi
Péturssyni, er hann segir 1 annál sínum: »Þessir höfðu
uppteiknað og afmálað hvað þeir sáu«. Hefir hann haft
góðar frásagnir af ferðamönnunum. Hann veit, að sumt
hafa þeir teiknað, sumt málað. Og hitt er jafnsatt: Þeir
hafa gert myndir af flestu því merkilegasta, er þeir sáu.
Þarna eru myndir af einstökum húsum, bóndabæjum,
dómkirkjunni og Skálholtsstað, Heklu, Geysi, hraunum,
mannahópum, lestum, ýmis konar búningum, skrautgrip-
um, vopnum, kirkjurúst o. s. frv.
Set eg hér í sem fæstum orðum yfirlit yfir myndirnar.
Alt er myndasafnið frá Banks-ferðinni bundið inn í 4
bindi, og byrja myndirnar frá íslandi á 12. blaðsíðu 3.
bindis.