Eimreiðin - 01.01.1920, Qupperneq 80
80
LESTRAR- OG ÆFINGASTOFUR
[EIMiiEIÐIN
kvaddur, upp álit sitt á ritgerðinni, og loks legði kennar-
inn dóm sinn á ritsmíðar beggja stúdentanna.
Að lokinni skoðun á þessum stofum guðfræðisdeildar
sýndi leiðsögumaður minn mér »laboratorium« heimspek-
isdeildar. Var öllu þar líkt fyrir komið og stofurnar jafn-
margar. En talsvert voru stofur þessar stærri en hinar og
einnig bókasafnið, og sást, að þeir stúdentar voru enn
fleiri, sem í þessum stofum unnu, enda er slíkt skiljan-
legt, þegar maður fær að vita, að auk heimspekisnem-
enda sækja hingað bæði stúdentar, er nema málfræði og
sögu.
Frá einum af háskólakennurum vorum hefi eg fengið
þessa lýsingu af æfingunum eins og þeim var hagað fyrir
þá, er lögðu stund á heimspekisnám: »VenjuIega valdi
kennarinn i heimspeki einhverja bók til yfirferðar, annað-
hvort eitt af höfuðritum heimspekinnar eða eitthvert hinna
nýrri heimspekisrita. Af þátttakendum skyldu jafnan tveir
hafa búið sig sérstaklega vel undir tímann, og voru þeir
valdir í lok hvers tíma til næsta tíma. Hafði annar fram-
söguna, en hinn var til vara og viðauka. Framsögumaður
átti að gefa skýrt yfirlit yfir efni þess kafla, er settur var
fyrir, og gera við hann þær athugasemdir, er honum þótti
þurfa. Að framsögunni lokinni gerði kennarinn venjulega
sínar athugasemdir við framsöguna, tók fram þau atriði,
er honum þótti ekki hafa notið sín nægilega o. s. frv. Þá
var orðið frjálst, og stýrði kennarinn umræðum sem hver
annar fundarstjóri. Var beðið um orðið o. s. frv. Allmikið
kapp var oft í umræðunum. — Stundum sömdu nem-
endur fyrirlestra um eitthvert efni, er bókin, sem yfir var
farið, gaf tilefni til eða þeim hafði hugkvæmst, eða skýrðu
frá efni bókar, er þeir höfðu lesið og aðrir af þátttakend-
um ekki. Voru síðan gerðar athugasemdir um alt slíkt af
kennaranum með umræðum á eftir«.
Eins og sést af þvi, sem hér hefir verið sagt, er æfing-
unum mismunandi fyrir komið, ekki að eins í hinum
ýmsu deildum, heldur einnig lijá hinum ýmsu kennurum.
Einnig eru tækin, sem notuð eru, næsta mismunandi.
Leiðir það eðlilega af því, hve margvíslegt það er, sem