Verðandi - 01.01.1882, Blaðsíða 41
(IPP OG NIÐUR.
41
Hugsaðu þjer mann, sem kemst dauðþyrstur úr vatns-
lausri eyðimörk inn í land, sem fullt er með ljúfustu
svaladrykki; hugsaðu þjer mann, sem á ekkert, ekki einu
sinni ofan í sig, og verður allt í einu stórríkur; hugsaðu
þjer mann, sem hefur verið blindur, og er allt í einu
orðinn sjáandi — nei það dugar annars ekkert, hvað þú
hugsar þjer; þú verður að hafa lifað það, að þjer hafi
fundizt allir menn vera dónar eða illmenni, en komizt svo
aftur að þeirri sannfæringu, að heimurinn sje í raun og
veru góður — í stuttu máli: þú verður að hafa lifað það,
að þykja ekki vænt um nokkurn mann, og fara svo allt í
einu að elska af öllum mætti, allri sálu og öllu hugskoti
þínu, til þess að geta gjört þjer hugmynd um það ástand,
sem jeg er í.
þ>ví nú elska jeg, jeg elska hana eins heitt og lífið í
brjóstinu á mjer, nei, nei, þúsund sinnum heitar. þú
ættir líka bara að sjá hana, jeg er viss um, að þig mundi
ekki furða á því. Hún lieitir Sigurbjörg — fallegasta
nafn, sem jeg hef lieyrt —, er úr sömu sveitinni og jeg.
þú segir ef til vill, að þetta sje ekki í fyrsta sinn,
sem jeg hafi orðið skotinn. þ>að er hverju orði sannara, að
mjer hefur oft litizt vol á konur áður, og jeg hef jafnvel
verið þeim allkunnugur. En þetta er eiginlega ekki skot;
það er allt annað. Jeg get ekki lýst mismuninum eins
greinilegaog jegvildi, því að hvorki hef jeg getað gjört mjer
grein fyrir tilfinningum mínum, þegar jeg hef verið hjá henni,
nje viljað það, en það finn jeg og veit jeg, að hvert orð,
sem hún segir, grefur sig inn í Iijarta mitt og snýr því
til trúarinnar á það sanna, fagra og góða. Áður en jeg
lærði að þekkja hana og eíska hana, fannst mjer lífið vera
einskis virði; mjer þótti það mestmegnis ljótt og mjer
leiddist það, en þú getur ekki ímyndað þjer, hvað margar
bjartar hliðarjeg hef fundið á lífinu síðan; jegveit reyndar,
að lífið er í raun og veru jafndimmt í sjálfu sjer eftir
sem áður og að það er að eins hún, sem lýsir það fyrir
mjer; en hvað gjörir það til? Auðnist mjer að búa saman