Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1967, Side 38
40
TAFLA 5. Hlutfall kúa í % sem mjólka undir 3000 kg og
yfir 5000 kg á mismunandi burðartíma.
Öngulsstaðahreppur Svarlaðardalshreppur
Burðar- tími % kúa undir 3000 kg % kúa haerri en 5000 kg Sam- tals % % kúa undir 3000 kg %kúa hærri en 5000 kg Sam- tals %
Janúar 0 15,6 15,6 0 18,2 18,2
Febrúar 5,6 11,1 16,7 3,7 14,8 18,5
Marz 0 6,1 6,1 9,3 14,0 23,3
Apríl 7,4 4,4 11,8 9,6 1,0 10,6
Maí 11,9 3,0 14,9 10,8 3,6 14,4
Júnt 18,7 0 18,7 29,3 1,7 31,0
Júlí 13,2 2,6 15,8 25,0 0 25,0
Ágúst 8,1 0 8,1 0 0 0
September 14,3 0 14,3 0 1 8,3 8 3
Október 0 6,3 6,3 0
Nóvember 0 10,0 10,0 20,0 6,7 26,7
Desember 8,2 14,6 22,8 10,3 10,3 20,6
má líka sjá, að kýr, sem bera í janúar og febrúar í Svarfaðar-
dal, standa sig fyllilega eins vel og kýr bornar sömu mán-
uði í Öngulsstaðahrepp og styður að því sem áður hefur ver-
ið álitið, að vetrarfóðrunin sé lík í þessum félögum.
Það er forvitnilegt að bera þessar athuganir saman við
gamlar heimildir um sama efni. Það vill nefnilega svo vel
til að Páll Zóphóníasson skrifar grein í Búnaðárritið árið
1914 þar sem hann kemur inn á sama efni og hér er fjallað
um. Hann tekur allar kýr úr nautgriparæktarfélögunum ár-
ið 1909—10, sem hann taldi mögulegt að nota í útreikning-
inn, alls 1274. Til samanburðar eru teknar danskar og sænsk-
ar kýr. Orð rétt stendur í greininni: „í aðalatriðum ber
þessum útreikningum saman. Allir segja þeir haustið bezta
burðartímann og sumarið versta. Reynsla manna liefur líka