Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1967, Page 105
107
ur sem í eru tvö eða fleiri næringarefni. í þess stað héti sá
áburður blandaður sem í eru minnst tvö aðaláburðarefn-
anna köfnunarefnis (N), fosfórs (P) og kalíums (K).
TAFLA 1. Blandaður áburður (Dæmi).
Blandaður áburður Dæmi
Þr/giklur áburður — NPK-áburður 22-11-11 Og 9-14-14
Tvígildur áburður = NP, NK, og PK .... aramóníumfosföt, kalíumnítrat
og kalísuperfosfat.
Eingildur áburður — N, P og K Kjarni, þrífosfat og kalí.
Styrkleiki áburðarins er gefinn upp sem prósentmagn af
köfnunarefni, nýtanlegum fosfórsýringi (P2O5) og leysan-
legu kalí (K20). Nýtanlegur fosfór er summan af vatnsleys-
anlegum og sítratleysanlegum fosfór og leysanlegt kalíum er
jafn auðnýtt og rafbundið kalíum í jarðvegi. Styrkleiki tún-
áburðarins frá 1966 er til dæmis 22—11—11 eða 22% af köfn-
unarefni 11% af nýtanlegu P205 og 11% af leysanlegu K20.
Hlutföll áburðarins, það er hlutföll milli aðalnæringarefn-
anna N, P ag K eru í þessum túnáburði 2:1:1.
Við höfum litið á tvö undirstöðuatriði fyrir öllum um-
ræðum um blandaðan áburð:
1. Hvað er blandaður áburður? Skilgreining.
2. Hvernig er samsetning hans gefin til kynna? Styrkleiki
og hlutföll.
3. Blandaður áburður og einhliða áburðartegundir.
Notkun blandaðs áburðar hefur verið hvað mest í Banda-
ríkjunum, en hefur einnig farið ört vaxandi á Norðurlönd-
um. Töflur 2 og 3.
Styrkleiki blandaðs áburðar, hvað snertir aðaláburðar-
efnin hefur farið vaxandi frá því notkun blandaðs áburðar
hófst. Hráefnin sem notuð eru í blandaða áburðinn eru
hreinni efni en áður. í stað lágprósent lífrænna sambanda