Frjáls verslun - 01.10.1994, Blaðsíða 57
ERLENDIR FRETTAMOLAR
EIH ÞUSUND BANKAR
ERU Á ÍTALÍU
Ríkisstjórn Ítalíu, undir forystu Sil-
vio Berlusconi, hefur látið markaðs-
öflin ráða ferðinni eftir fall gamla
stjórnmálakerfis landsins og hefur
þetta m.a. haft áhrif í ítalska banka-
kerfinu. Eftir að hönd ríkisvaldsins
var sleppt af 2 stærstu bönkum Míl-
anó, Banca Commerciale Italiana og
Credito Italiano, með einkavæðingu
þeirra ’93 og ’94 söfnuðu þeir marg-
milljóna dollara sjóðum fyrr á árinu
sem talið er að nýta eigi til kaupa
hlutdeildar í öðrum bönkum eða jafn-
vel til að yfirtaka þá. Lamberto Dini,
fjármálaráðherra Ítalíu, telur brýna
þörf á sameiningu en u.þ.b. 65%
hinna 1000 banka á Ítalíu hafa aðeins
eitt eða tvö útibú og meirihluti bank-
anna hefur of lítið eigið fé.
Risafyrirtækið 3 M:
MARKAÐSSETUR SEXTÍU
ÞÚSUND VÖRUMERKI
L.D. DeSimone, forstjóri banda-
ríska fyrirtækisins 3M, hefur þurft að
endurskipuleggja rekstur fyrirtækis-
ins þar sem efnahagslægð undanfar-
inna ára og erfið verðsamkeppni hef-
ur tekið sinn toll. Eftir að sala jókst
um 60 % á seinni hluta sl. áratugs
jókst hún aðeins um 2 % að meðaltali
á árunum ’91 til ’93. DeSimone ætlar
að snúa tæknigrundvelli fyrirtækis-
ins, sem m.a. er þekkt fyrir rann-
sókna- og vöruþróunarsvið sitt, frá
grunnrannsóknum yfir í vöruþróun en
fyrirtækið markaðssetur um 60.000
ólíkar vörur. Hann hefur hvatt til
meiri hópsamvinnu innan fyrirtækis-
ins til að hraða vinnsluferli vöru frá
þróun til markaðssetningar. Tekjur á
næsta ári eru áætlaðar um 16 milljarð-
ar dollara. DeSimone telur að leiðin
að betri vöru byrji með nýjungum og
L.D. DeSimone, forstjóri banda-
ríska fyrirtækisins 3 M, sem mark-
aðssetur yfir 60 þúsund vörur, legg-
ur áherslu á nýjungar og rannsókn-
ir.
búist er við að útgjöld til rannsókna
verði 1 milljarður dollara í ár.
Um 650 bankar á Ítalíu hafa aðeins
eitt eða tvö útibú.
Christan R. Viros, stýrir sviss-
neska úrafyrirtæki TAG Heur.
Hann veit sannarlega hvað
klukkan slær.
VEIT HVAÐ
KLUKKAN
SLÆR
Verkfræðingurinn Christian R.
Viros var ráðinn meðal annarra
1986 til bjargar TAG Heuer-fyrir-
tækinu frá gjaldþroti eftir að fjöl-
skylda frá Saudi Arabíu hafði fest
kaup á því. Nú er fyrirtækið komið
í 5. sætið í sölu meðal svissneskra
úraframleiðenda en var í 15. sæti
fyrir fimm árum. Salan hefur nær
þrefaldast á þessum tíma eða í 212
milljónir dollara. „Við viljum verða
stofnun,“ segir Viros og segir þá
ekki selja úr til að segja fólki hvað
tímanum líði, heldur „seljum við
ímynd.“ Fyrirtækið eyðir 17% af
tekjum í auglýsingar og 8 % til við-
bótar í kostun íþróttaviðburða en
þrátt fyrir þetta er hagnaður eftir
skatta 25% af tekjum. Haft er eftir
John Goodall, ritstjóra hjá „Int-
ernational Wristwatch" í London
að þetta sé saga velgegni þar sem
snjallri markaðssetningu sé beitt.
57