Morgunblaðið - 31.03.2001, Blaðsíða 1
TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 31. MARS 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 31. MARS 2001
OLÍA var farin að menga strendur
dönsku eyjanna Bogø og Farø í gær
en í fyrrinótt fóru um 1.900 tonn af
olíu í sjóinn er flutningaskip sigldi á
olíuskip. Þessi hegri var einn af
mörgum fuglum, sem urðu olíunni
að bráð, en hreinsunarstarfið geng-
ur þó vel og líklegt, að skaðinn
verði minni en á horfðist um tíma.
Hjálpar það til, að veðrið er gott en
aftur á móti er hnausþykk olían
mjög erfið viðureignar.
AP
Mengunar-
bráð
Fimm féllu fyrir byssukúlum í borg-
inni Nablus þegar ísraelskir her-
menn skutu á Palestínumenn sem
voru að kasta grjóti og mólótov-
kokkteilum að hermönnunum. Sá
sjötti var felldur í borginni Ram-
allah. Fjörutíu og sjö Palestínumenn
særðust í átökunum.
Bæði Palestínumenn og ísraelskir
arabar höfðu verið hvattir til mót-
mælaaðgerða í gær, þegar 25 ár voru
liðin síðan Ísraelsher felldi sex ísra-
elska araba sem mótmæltu hertöku
arabísks landsvæðis í norðurhluta
Ísraels. Heimastjórn Palestínu-
manna aflýsti vikulegum kvöldfundi
sínum í Ramallah, sem er á Vestur-
bakkanum, vegna þess að Ísraelar
meinuðu tólf embættismönnum að
fara frá Gaza-svæðinu til Ramallah,
að því er palestínskir embættismenn
greindu frá.
Einn helsti samningafulltrúi Pal-
estínumanna, Saeb Erekat, gagn-
rýndi Bandaríkjastjórn harðlega
fyrir að hafa sl. þriðjudag beitt neit-
unarvaldi gegn ályktun öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna um að alþjóð-
legir eftirlitsmenn skyldu sendir til
svæða Palestínumanna.
„Það er útlit fyrir að Bandaríkin
hafi ákveðið að vernda hersetumenn-
ina, það er að segja Ísraela, og virða
að vettugi rétt palestínsku þjóðar-
innar til alþjóðlegrar verndar,“ sagði
Erekat í útvarpsviðtali í Egypta-
landi.
Felldu sex manns
á „degi reiðinnar“
SEX Palestínumenn féllu í átökum við ísraelska hermenn á Vest-
urbakkanum í gær þegar minnst var árásar Ísraela á arabíska mót-
mælendur árið 1976. Í gær var einnig vikulegur „dagur reiðinnar“
meðal Palestínumanna.
Nablus, Gaza, Washington. AFP, Reuters.
Reuters
Palestínskur drengur sem tók þátt í mótmælum í borginni Ramallah í
gær. Hann hefur um mittið eftirlíkingu af sprengjum eins og sjálfs-
morðssveitir skæruliða hafa notað í tilræðum gegn Ísraelum.
HEIMILDARMENN í Belgrad fullyrtu í gær að
Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu,
hefði verið handtekinn á heimili sínu og færður í
hús dómsyfirvalda í borginni. Að sögn sjónvarps-
stöðvarinnar CNN virtist sem Milosevic hefði feng-
ið að snúa aftur til bústaðarins eftir yfirheyrslu og
verið fagnað af mannfjölda fyrir utan. Sýndar voru
sjónvarpsmyndir af honum með fólkinu. Útvarps-
stöðin B-92 í Belgrad ræddi í síma við forsetann
fyrrverandi um miðnættið að íslenskum tíma. „Ég
hef það gott og er að fá mér kaffibolla,“ sagði hann.
Sagðist hann aðspurður ekki kippa sér upp við
fréttirnar af því að hann hefði verið handtekinn.
Opinber tilkynning um handtökuna af hálfu júgó-
slavneskra yfirvalda hafði ekki gefin út um mið-
nætti í gærkvöldi. Fréttaskýrendur veltu því fyrir
sér hvort stjórnvöld í Belgrad hefðu sett á svið
handtöku til að geta fullyrt að þau hefðu reynt að
hlíta skilyrðum sem Bandaríkjamenn hafa sett fyr-
ir því að veita þeim tugmilljóna dollara lán. Þar er
sagt að Júgóslavíustjórn verði að „grípa til að-
gerða“ gegn Milosevic. Viðbrögð á Vesturlöndum
voru víða varfærnisleg meðan beðið var opinberrar
tilkynningar um handtökuna og sama var að segja
um viðbrögð almennings í Júgóslavíu, fáir voru á
götum úti í höfuðborginni.
„Ég veit ekki hvað hann er ákærður fyrir en hvað
sem því líður er hann ábyrgur fyrir fjöldamörgum
hræðilegum hlutum,“ sagði þjóðernissinninn Vuk
Draskovic, sem oftast var meðal andstæðinga Milo-
sevic, í samtali við BBC snemma í gærkvöldi.
Heimildarmenn fullyrtu að tekist hefði að telja
Milosevic á að fara með lögreglumönnunum en
stjórnvöld hefðu lagt áherslu á að handtakan hefði
ekki átök í för með sér. CNN sagði að embætt-
ismenn í Washington hefðu fengið örugga staðfest-
ingu á handtökunni hjá júgóslavneskum stjórnvöld-
um og litið væri á aðgerðina sem mikilvægt skref í
rétta átt. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands,
fagnaði tíðindunum í yfirlýsingu í gær.
Fréttamenn sáu bílalest aka að húsi dómsyfir-
valda í miðborginni og voru tveir bílanna með
skyggðar rúður sem gerði ókleift að sjá hverjir
voru í þeim. Sjónvarpsstöð í Belgrad sagði að for-
setinn fyrrverandi hefði verið í öðrum bílnum og
hafði það eftir lögreglumanni á staðnum. Hundruð
stuðningsmanna Milosevic söfnuðust í gærdag
saman í auðmannahverfinu Dedinje í Belgrad er
fréttir bárust af því að lögregla væri með liðsafnað í
grennd við bústað leiðtogans fyrrverandi, sem nú
er formaður sósíalistaflokksins. Voru þingmenn úr
flokki hans í hópnum. Hafði verið skýrt frá því fyrr
um daginn að lögreglubíll, sjúkrabíll og nokkur far-
artæki sérsveita á vegum yfirvalda hefðu sést við
húsið og var getum leitt að því að handtaka væri í
bígerð.
Bandaríkjamenn settu á sínum tíma nýrri stjórn
lýðræðisaflanna í Júgóslavíu, er tók við síðastliðið
haust, frest til 1. apríl til að handtaka forsetann
fyrrverandi en hann hefur verið ákærður fyrir
stríðsglæpi. Bandaríkjamenn vilja að réttað verði í
máli Milosevic hjá alþjóðastríðsglæpadómstólnum í
Haag. Vojislav Kostunica, forseti Júgóslavíu, hefur
staðfastlega neitað að framselja Milosevic og segir
hann að dómstóllinn í Haag sé ekki hlutlaus. Marg-
ir landar Kostunica eru honum sammála en sumir
vilja tafarlaust framselja forsetann fyrrverandi.
Líkur hafa þótt benda til þess að farinn yrði sá
millivegur að ákæra Milosevic fyrir fjármálaspill-
ingu og aðra glæpi gegn íbúum Júgóslavíu á 13 ára
valdaferli hans.
Sagður hafa verið hand-
tekinn og sleppt á ný
Belgrad, Washington. Reuters, AFP.
AP
Lögreglumennirnir í Belgrad aka öðrum af
tveimur jeppum sínum inn á lóð húsakynna
dómsyfirvalda í gærkvöldi. Fullyrt var að
Slobodan Milosevic væri í öðrum bílnum.
Óljósar fregnir af aðgerðum gegn Slobodan Milosevic í Belgrad
ÞÝZKA sambandsríkisstjórnin hef-
ur beðið yfirvöld í þýzku sam-
bandslöndunum sextán að vera
viðbúin því að láta bólusetja búfé á
svæðum í kringum hvern þann stað
sem gin- og klaufaveiki kann að
stinga sér niður. Tilkynnti Renate
Künast, ráðherra landbúnaðar- og
neytendaverndarmála, þetta í gær.
„Slíkar neyðarbólusetningar gætu
reynzt skynsamlegar til þess að forð-
ast að annað eins hryllingsástand
skapist og í Bretlandi og til að sýna
dýrum mannúð,“ tjáði Künast þýzku
fréttastofunni dpa.
Þótt grunsemdir hafi vaknað um
að gin- og klaufaveiki hafi borizt í
dýr á þýzkum búum nálægt Hol-
landi, þar sem ellefu tilfelli hafa
greinzt, hefur ekkert tilfelli enn ver-
ið staðfest í Þýzkalandi.
Í Bretlandi virtust stjórnvöld í
gær hins vegar vera að bakka frá
hugmyndum um að grípa til bólu-
setningar vegna gin- og klaufaveik-
innar, sem nú hefur verið staðfest á
779 brezkum býlum og sláturhúsum.
Útbreiðsla gin- og
klaufaveiki
Undirbúa
bólu-
setningu
Berlín, Lundúnum. AFP, Reuters.
SAMFÉLAGINU stafar nú
meiri ógn af tölvuþrjótum en
hryðjuverkamönnum af gamla
skólanum, að mati Robins Cooks,
utanríkisráðherra Bretlands.
Cook sagði í ræðu á breska
þinginu á fimmtudag að hryðju-
verkamenn og undirróðurshópar
beindu sjónum sínum í vaxandi
mæli að rafeindabúnaði og tölvu-
kerfum sem stjórna mikilvægum
samfélagsþáttum á borð við sam-
göngukerfi og dreifingu vatns og
orku. „Árás á tölvukerfi gæti
lamað stofnanir samfélagsins á
skemmri tíma en hernaðar-
aðgerðir,“ sagði Cook. Hann
upplýsti að starfsemi bresku
leyniþjónustunnar hefði verið
endurskoðuð til samræmis við
breyttar aðstæður, því nú giltu
önnur lögmál en á tímum kalda
stríðsins.
Stjórnvöld í Bretlandi eru
uggandi yfir fyrirhuguðum að-
gerðum anarkista og öfga-
vinstrimanna, sem hóta að lama
starfsemi í fjármálahverfinu í
Lundúnum í „and-kapítalískum“
mótmælum í maí. Mótmælaað-
gerðir þessara hópa ollu nokk-
urri ókyrrð í miðborginni fyrir
ári, þegar stytta af Winston
Churchill var „skreytt“ með
hanakambi úr grastorfi og ráðist
var á veitingastað McDonalds-
skyndibitakeðjunnar. Þá tókst
um sex þúsund mótmælendum
að trufla umferð og starfsemi í
fjármálahverfinu fyrir tveimur
árum.
Tölvu-
þrjótar að
verða
mesta ógnin
London. The Daily Telegraph.