Morgunblaðið - 31.03.2001, Blaðsíða 76
FÓLK Í FRÉTTUM
76 LAUGARDAGUR 31. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í DAG hefjast Franskir bíódagar í
Regnboganum við Hverfisgötu,
sem dreifingarfyritækið Góðar
stundir stendur að í samvinnu við
Alliance Française og Regnbog-
ann.
Af því tilefni er komin til lands-
ins Emilie Deleuze sem er leik-
stjóri kvikmyndarinnar Peau
Neuve sem verður opnunarmynd
hátíðarinnar sem hefst kl. 15.30 í
dag, og stendur til 8. apríl.
Fimm nýlegar kvikmyndir eru á
dagskrá hátíðarinnar, og segir
Emilie myndirnar gefa góða mynd
af því sem er að gerast í franskri
kvikmyndagerð. „Það vantar
kannski eina virkilega erfiða mynd,
því franskar kvikmyndir eru mun
margbreytilegri en kvikmyndir
annarra þjóða.“
Úr tölvum í þungavélar
Peau Neuve eða Fátt nýtt er
fyrsta kvikmynd Emilie í fullri
lengd, og hlaut hún góðar viðtökur
gagnrýnenda og hefur hlotið þó
nokkur verðlaun á kvikmyndahá-
tíðum víða um heim.
„Ég er ánægðust með að hafa
hlotið Fipresci-verðlaunin, mér
finnst það mjög mikil umbun,“ seg-
ir leikstjórinn, en það eru verðlaun
sem alþjóðleg samtök gagnrýnenda
veita.
Fátt nýtt fjallar um Alain, giftan
mann og föður sem vinnur við að
prufukeyra tölvuleiki. En hann er
ekki ánægður og finnur hjá sér
þörf til að breyta algjörlega til í líf-
inu. Samkvæmt ráðgjöf fer hann í
fjögurra mánaða starfsþjálfun í að
stjórna þungavélum. Þar kynnist
hann ungum manni sem gefur hon-
um nýja sýn á lífið.
„Eiginlega fékk ég hugmyndina
að myndinni út frá tveimur félög-
um mínum sem hafa algjörlega
klippt á allt sitt fyrra líf, án þess að
það væru peningavandamál eða
önnur augljós kvalræði í hjóna-
bandinu sem gera það að verkum
að fólk er neytt til að snúa blaðinu
við. En þeir hafa skapað sér næst-
um algjörlega sama líf nema ann-
ars staðar. Einn fór til Tahiti og
kvæntist þar konu sem er nákvæm
eftirmynd fyrri eiginkonunnar.
Annar hætti í vinnunni og fann sér
nákvæmlega sömu vinnu hinum
megin á hnettinum. Og það vakti
áhuga minn að fjalla um þetta fólk
sem fær einhvern veginn alveg nóg
og bara fer.“
Stjarna í aðalhlutverkinu
„Ég veit ekki hvort mig langaði
að segja eitthvað sérstakt með
þessari mynd. Ég ákvað að fjalla
um þetta fólk sem getur gert svona
hluti og þá er það mitt verkefni að
fylgja því eftir af ástúð. Því um leið
og þessar gjörðir lýsa miklu sak-
leysi, eða einsog í tilfellinu hans
Alain, bara óviti, þarf um leið ótrú-
lega mikinn kjark til að klippa á
allt, og það vekur aðdáun mína.
Þau fá að sjá og kynnast því sem
þau áttu ekki kost á áður. Það gerir
þau heillandi, og mér finnst þau
hafa rétt fyrir sér á vissan hátt.“
Aðalleikarinn heitir Samuel Le
Bihan, en íslenskir áhorfendur
gátu séð hann í kvikmyndinni Vé-
nus Beauté sem var sýnd í Há-
skólabíói fyrir ekki svo löngu.
„Hann er einn af allra vinsælustu
leikurum Frakka um þessar mund-
ir. Fólk tók fyrst eftir honum í
Vénus Beauté. Nýlega var svo
frumsýnd myndin Le pacte des
loups og nú er hann orðinn stjarna.
Hann var næstum óþekktur þegar
ég bað hann um að leika, þannig að
ef ég myndi spyrja hann núna þá
myndi hann áreiðanlega neita
mér,“ segir Emilie hlæjandi.
„Ég hitti flesta leikara í París og
Samuel var sá eini sem gat gefið
mér þetta ómeðvitaða sakleysi sem
var alveg nauðsynlegt til að per-
sónan yrði trúverðug. Hinir leik-
ararnir voru líka mjög góðir en þeir
komu með of mikið þungt drama
inn í hlutverkið. Ég þurfti einhvern
sem gat brosað til fólks og sagst
vera farinn án þess að vera meðvit-
aður um afleiðingarnar.“
Misgott gengi
„Myndin hefur gengið vel á
Spáni, í Þýskalandi, Asíu og víðar
en hún gekk ekki sérlega vel í
Frakklandi. Hún var frumsýnd í
september 1999 og þann mánuð
voru frumsýndar sautján aðrar
franskar kvikmyndir og tvær
bandarískar, og eina kvikmyndin
sem gekk eitthvað var Ma petite
Entreprise sem sýnd er hér á há-
tíðinni. Þetta er kallað svarti mán-
uðurinn.
Síðan þá er búið að koma á sér-
stökum áskriftarkosti í bíó á mjög
lágu verði sem hefur aukið aðsókn-
ina um 40%. Og ásóknin í kortin er
svo mikil að þeir eru farnir að tapa
á þeim, en geta ekki snúið til baka
nema að finna upp nýtt fyrirkomu-
lag til að bjóða í staðinn. Þetta er
mjög slæmt fyrir sjálfstæða kvik-
myndagerð, þar sem innkoman af
sýningunum er næstum engin, þær
eru einskis virði lengur.“
– Ertu bjartsýn á eigin framtíð?
„Já, ég mun gera aðra mynd, og
ég er meðal þeirra heppnu í
franska kvikmyndageiranum. Ég
geri myndir sem eru blanda af því
að vera markaðsvæn og flókin kvik-
myndagerð sem getur reynst fram-
leiðendum mínum erfitt á stundum.
Næsta mynd verður einnig um
fólk í mjög afmörkuðu umhverfi en
líkast til aðeins auðmeltanlegri,“
segir Emilie Deleuze sem hefur
ferðast um allan heim með Peau
Neuve.
Heillandi óvitar
Morgunblaðið/Arnaldur
Emilie Deleuze verður viðstödd opnun Franskra bíódaga í Regnboganum.
Marcial Di Fonzo Bo og SamuelLe Bihan í hlutverkum sínum.
Hvað gerir það að verkum að skyndilega verður lífið óbærilegt og Alain ákveður að snúa blaðinu við?
SVONEFND landsbyggðarkvöld
Músíktilrauna eru oftar en ekki
skemmtilegustu kvöldin en þá koma
saman hljómsveitir utan af landi ein-
göngu til að tryggja jafnræði með
mönnum og spara ferðakostnað fyrir
þær sveitir sem komast áfram. Þetta
eru og yfirleitt fjölbreyttustu kvöldin
þegar hljómsveitir úr ólíkum lands-
hlutum troða upp enda virðist sem
breiddin sé minni fyrir sunnan. Á
fimmtudagskvöldið léku sjö sveitir
venju fremur fjölbreytta tónlist.
Rúfuz byrjaði leikinn þetta kvöld á
torkennilegum shaman-söng og
stökk síðan af stað í rokkið. Nokkuð
vantaði upp á fyllingu í leik sveitar-
innar, kannski annan gítar eða
hljómborð, en ekki kom það að sök í
öllum laganna. Sveitarmenn stóðu
sig með prýði, sérstaklega þó bassa-
leikarinn, og lögin voru bærileg utan
að slæmur texti í öðru lagi sveitar-
innar spillti því mjög.
Prozak var næst á svið og talsvert
breytt frá tilraununum fyrir ári. Tón-
listin var enn rokkkyns og keyrslan
þétt og góð en söngurinn ekki góður.
Raddir söngvara sveitarinnar liggja
of hátt og svipar of saman til að
nokkuð fáist út úr því af viti að hafa
söngvarana tvo. Það var helst að
öskrin kæmu vel út. Ýmislegt
skemmtilegt er á ferð í lögum þeirra
Prozac-manna og takt- og hraða-
skiptingar skemmtilegar. Trommu-
leikarinn bar af en aðrir stóðu sig vel.
Berrassaðir léku hreinræktað
framúrstefnurokk. Fyrsta lagið var
mikil stuðsveifla, þar sem söngvari
sveitarinnar rumdi af list, en síðan
var farið út í meiri framúrstefnu.
Hljómborðsleikur gaf lögunum
skemmtilega fjarrænan blæ og hljóð-
in skemmtilega valin.
Lame Excuse var geysivel undir
kvöldið búin, framúrskarandi þétt
með valinn mann í hverju rúmi. Eft-
irminnilegur er leikur skrautgítar-
leikara sveitarinnar en aðrir stóðu
sig líka vel, nefni hryngítarleikara og
söngvara sem er efni í rokkstjörnu.
Lögin voru vel samin en skorti á í
frumleika sem hefði fleytt sveitinni
lengra.
Hljóðfæraskipan Input var
óvenjuleg, trommur, gítar og söngur.
Reyndar voru trommuleikaranir
tveir og spiluðu ekki alltaf sama takt-
inn sem gaf tónlistinni athyglisverð-
an taktgrunn. Gítarleikarinn stóð sig
bærilega með prýðilegan hljóm en
söngvari sveitarinnar var aftur á
móti framúrskarandi og sönglínur
góðar. Sérstaklega var þriðja lag
sveitarinnar gott. Mjög efnileg sveit.
Ísfirska poppsveitin Bimbó stakk
verulega í stúf við það sem á undan
var komið enda lék sveitin grípandi
léttrokkað popp. Lagasmíðar voru
vel af hendi leystar og víst að and-
vökulagið á eftir að slá í gegn komist
það í útvarp. Flutningur var líka góð-
ur og aðalgítarleikari sveitarinnar
óhemju traustur, aukinheldur sem
liðsmenn rödduðu afskaplega vel og
studdu ágæta söngkonu sveitarinn-
ar.
Lokasveitin þetta kvöld vitnaði í
lagabók Aleisters Crowleys og kall-
aði sig Do what thou wilt shall be the
whole of the Law. Eitthvað var
söngvari sveitarinnar að amast við
því að menn kynnu ekki að rita nafn-
ið, enda Crowley gamli flestum
gleymdur nú orðið. Tónlistin sem
sveitin lék átti þó ekkert skylt við yf-
irborðskennt blaður að hætti Crowl-
eys, heldur lék sveitin ómengaða ný-
bylgju. Stígandi var prýðileg í fyrsta
lagi þeirra félaga og með dimmradda
karlakór til að rymja undir hefði lag-
ið verið gersamlega skothelt. Næsta
lag var líka gott en það þriðja hreint
afbragð; mjög langt lag sem hefði
eins mátt vera talsvert lengra.
Bimbó sigraði nokkuð örugglega
úti í sal en dómnefnd kaus áfram
Prozac og Do what thou wilt shall be
the whole of the Law. Úrslitin fóru
síðan fram í gærkvöldi.
Fjölbreytt skemmtan
Árni Matthíasson
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
Berrassaðir frá Grundarfirði.
Input spilaði kröftugt og hrátt
rokk.
Melódíska rokksveitin Lame Excuse kemur frá Akureyri og Mývatns-
sveit.
Rufuz sýndi talsverðan metnað.
TÓNLIST
M ú s í k t i l r a u n i r
Síðasta undanúrslitakvöld
Músíktilrauna Tónabæjar, haldið
fimmtudaginn 29. mars. Fram
komu Rúfuz, Prozak, Berrassaðir,
Lame Excuse, Input, Bimbó og
Do what thou wilt shall be
the whole of the Law.
TÓNABÆR