Morgunblaðið - 31.03.2001, Blaðsíða 65
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2001 65
S‡ning
alla
helgina
Á MORGUN, sunnudag, er fimmti
sunnudagur í föstu og að venju hald-
inn heilagur boðunardagur Maríu.
Messað verður í Dómkirkjunni bæði
klukkan 11 og 14. Í messunni fyrir
hádegi verður altarisganga.
Kl. 14 predikar Ingibjörg Pálma-
dóttir heilbrigðisráðherra við guðs-
þjónustuna, Sigrún Hjálmtýsdóttir
syngur einsöng og sr. Hjálmar Jóns-
son þjónar fyrir altari. Kirkjunefnd
kvenna Dómkirkjunnar verður með
kaffisölu í safnaðarheimilinu eftir
messu.
Kirkjunefndin er kvenfélag í Dóm-
kirkjusöfnuðinum. Störf kirkju-
nefndarinnar hafa frá byrjun verið
tvenns konar. Annars vegar að fegra
kirkjuna og færa henni ýmsan bún-
að. Nú er kirkjunefndin að kaupa
flygil fyrir kirkjuna og er að ljúka
fjáröflun sinni fyrir það verkefni.
Hinn hluti starfs kirkjunefndarinnar
eru margháttuð hjálpar- og þjón-
ustustörf fyrir söfnuð og samfélag.
Samkvæmt eðli þess hluta starfsins
er hljótt um það en ekki síður eru
líknarstörf kirkjunefndarinnar dýr-
mæt og þakksamlega þegin. Allir eru
hjartanlega velkomnir á sunnudag-
inn.
Dómkirkjan.
Kirkjustarf
aldraðra
Á UNDANFÖRNUM árum hafa
Ellimálaráð Reykjavíkurprófasts-
dæma og kirkjurnar í prófastsdæm-
unum staðið fyrir sameiginlegri
föstuguðsþjónustu sem er sérstak-
lega ætluð eldri borgurum. Að þessu
sinni verður föstuguðsþjónustan í
Hjallakirkju nk. fimmtudag 5. apríl
kl. 14:00. Sr. Íris Kristjánsdóttir pré-
dikar og þjónar fyrir altari og sr.
Miyako Þórðarson túlkar á táknmáli.
Tónlistarflutning annast dr. Sigur-
jón Árni Eyjólfsson, Daníel Jónas-
son og Jón Ólafur Sigurðsson org-
anisti. Eftir guðsþjónustuna eru
kaffiveitingar í boði sóknarnefndar
Hjallakirkju. Allir eru velkomnir og
eru eldri borgarar sérstaklega hvatt-
ir til að taka þátt í guðsþjónustunni
þennan dag.
Basar Kvenfélags
Fríkirkjunnar í
Hafnarfirði
Í DAG, laugardaginn 31. mars, verð-
ur hinn árlegi basar Kvenfélags Frí-
kirkjunnar í Hafnarfirði. Basarinn
hefst kl. 14:00 og er í safnaðarheimili
Fríkirkjunnar við Linnetsstíg. Basar
kvenfélagsins er ætíð skemmtilegur
þáttur í bæjarlífinu í Hafnarfirði
enda leggja konurnar mikla vinnu í
allan undirbúning og viða að sér
varningi úr öllum áttum; kökur,
prjónavörur og margvíslegar gjafa-
vörur sem að sjálfsögðu er selt á
vægu verði. Allur ágóði af basarnum
fer að sjálfsögðu í starf kirkjunnar
en kvenfélagið hefur um áratuga-
skeið lagt mikið af mörkum til þess
að fegra kirkjuna og styðja allt safn-
aðarstarf.
Fræðslumorgunn
í Hallgrímskirkju
SÍÐASTI fræðslumorgunn vetrar-
ins í Hallgrímskirkju verður næst-
komandi sunnudag kl. 10:00 og mun
dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson þá
ræða um efnið „Lúther og barnatrú-
in“. Svo sem kunnugt er lagði Lúther
mikla áherslu á trúarlegt uppeldi og
fræðslu og á rétt barnsins til að vera
barn, sömuleiðis lagði hann áherslu á
mikilvægi barnatrúarinnar. Hvers
vegna? Margir varðveita barnatrúna
og vísa oft til hennar þegar spurt er
„ertu trúaður?“ og Jesús Kristur
benti á börnin sem fyrirmynd trú-
aðra. Er hægt að draga einhvern
lærdóm af þessu við trúarlegt upp-
eldi í nútímanum? Dr. Sigurjón Árni
er einn fremsti fræðimaður okkar
um lútherska guðfræði og verður án
efa fróðlegt að heyra hvaða tökum
hann tekur þetta efni. Að erindinu
loknu kl. 11:00 hefst síðan guðsþjón-
usta í umsjá séra Jóns Dalbú Hró-
bjartssonar.
Kvöldmessa við
kertaljós
í Hallgrímskirkju
SUNNUDAGINN 1. apríl verður
kvöldmessa kl. 20:00 í Hallgríms-
kirkju.
Kvöldmessur einu sinni í mánuði
hafa nú verið í nokkur misseri og er
það viðbót við hefðbundið helgihald í
Hallgrímskirkju. Kvöldmessurnar
eru með einföldu formi, þar sem lögð
er áhersla á söng, tilbeiðslu og íhug-
un. Á bænastund gefst fólki kostur á
að tendra bænaljós, skrifa bænir á
bænaseðla eða krjúpa við altarið.
Brotning brauðsins fer fram með
hefðbundnum hætti.
Hópur úr Mótettukór Hallgríms-
kirkju leiðir söng undir stjórn Harð-
ar Áskelssonar kantors, sem einnig
leikur á orgel kirkjunnar. Sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson hefur hugvekju
og þjónar fyrir altari.
Ungt fólk úr Hallgrímssöfnuði að-
stoðar.
Kaffihúsamessa
í Landakirkju
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 1. apríl
ætlum við að njóta lífsins í kaffihúsa-
messu í safnaðarheimili Landa-
kirkju. Tónsmíðafélag Vestmanna-
eyja leiðir tónlistina og öll tökum við
undir við rjúkandi kaffibolla eða
ískaldan kirkjudjúsinn.
Auk Tónsmíðafélagsins mun kór
Framhaldsskólans í Vestmannaeyj-
um syngja nokkur lög. Kaffihúsa-
messurnar hafa notið mikilla vin-
sælda, en þessi verður sú síðasta í
vetur og því eru allir hvattir til að
mæta í þessa lofgjörðarstund.
Stundin hefst kl. 20:30 og eru allir
velkomnir til að eyða notalegri
kvöldstund við sannarlega kaffihúsa-
stemmningu.
Prestar og sóknarnefnd
Landakirkju.
Léttmessa
í Árbæjarkirkju
ÞRIÐJA léttmessan á árinu verður
sunnudag kl. 20. Þessar guðsþjón-
ustur hafa verið vel sóttar af fólki. Í
þessum guðsþjónustum er leitast við
að hafa fjölbreytta tónlist sem styður
við boðun kirkjunnar. Að þessu sinni
mun hljómsveitin „Játning“ spila og
syngja úrval gospel-laga. Bolli Pétur
Bollason, guðfræðingur og leiðtogi í
æskulýðsstarfi kirkjunnar, flytur
hugleiðingu.
Kaffi og ávaxtasafi á eftir.
Samstarfshópur um léttmessur.
Safnaðarstarf
Neskirkja. Kirkjustarf eldri borgara
í dag kl. 14:00. Jómfrú María í tali og
tónum. Kaffiveitingar. Munið kirkju-
bílinn. Allir velkomnir.
Digraneskirkja. Tónleikar kl. 17:00.
Kirkjukórinn í Vík í Mýrdal og kór
Digraneskirkju.
Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyrir
8., 9. og 10. bekk kl. 20-23:00.
KEFAS: Samkoma í dag, laugardag,
kl. 14:00. Ræðumaður Sigrún Ein-
arsdóttir. Þriðjudag: Brauðsbrotn-
ing og bænastund kl. 20:30. Miðviku-
dag: Samverustund unga fólksins kl.
20:30. Allir hjartanlega velkomnir.
Hvammstangakirkja. Sunnudaga-
skóli kl. 11:00.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli kl. 11:00.
TTT-starf (10-12 ára) kl. 13:00. Um-
sjón Hreiðar Örn Stefánsson.
Heilbrigðisráð-
herra prédikar í
Dómkirkjunni
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Dómkirkjan