Morgunblaðið - 31.03.2001, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2001 73
DAGBÓK
Ábyrgð –
áreiðanleiki
Gullsmiðir
Fallegar kápur
stuttar og síðar
þykkar og
þunnar
Úrval af yfirhöfnum
á góðu tilboðsverði
Opið laugardaga
frá kl. 10—16
Mörkinni 6,
sími 588 5518
!" #$
%" # " $ $
& '(
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbarn dagsins:
Feimni þín stendur í vegi
fyrir því að kostir þínir fái
að njóta sín í samskiptum
við aðra.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Reyndu ekki að komast yfir
alla hluti í einu. Það býður
heim hættu á alls konar mis-
tökum og þegar allt kemur til
alls; á morgun er annar dag-
ur.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þótt einhverjir öfundist út í
þig og telji þig hafa lítið sem
ekkert fyrir hlutunum, skaltu
láta það sem vind um eyru
þjóta. Þú vinnur fyrir þínu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú mátt alltaf reikna með ein-
hverjum töfum varðandi
meginviðfansgefni þitt svo ef
til vill ættir þú að hafa annað í
takinu til öryggis.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þótt allur sé varinn góður,
getur sá tími komið að bezt
henti að hlaupa til eftir hug-
boði sínu. Mundu bara að
brjóta ekki allar brýr að baki
þér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Taktu þér tíma, ef þú vilt vera
einn með sjálfum þér. Það
byggir þig upp til frekari
átaka. Gættu þess að gera
ekki of mikið úr hlutunum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú ættir að gefa þér tóm til
þess að skemmta þér svolítið.
Að vinna bara og sofa gengur
ekki til lengdar. Lífið snýst
um svo margt annað; m.a.
þig!
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Láttu ekki spenninginn yfir
atvinnutækifærunum fara
með þig. Vertu bara eðlilegur
og láttu verkin tala. Þannig
nærðu því sem þú átt skilið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er engu líkara en tæki-
færin raðist upp sérstaklega
fyrir þig. Vertu samt ekki
kærulaus; þú þarft að velja og
skjótt skipast veður í lofti.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Láttu ekki hanka þig á því að
þú hafir ekki unnið heima-
vinnuna þína. Hafðu öll rök á
hreinu svo þeir sem hlusta
geti sannfærzt af máli þínu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú þarft að finna uppbyggj-
andi útrás fyrir orku þína.
Það er ekki nóg bara að ham-
ast þetta út í loftið; þú þarft
að skapa eitthvað í leiðinni.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þér hefur orðið á í messunni
og stendur nú uppi með bux-
urnar á hælunum. Reyndu
ekki að fela mistökin heldur
bættu úr þeim með bros á
vör.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Leyfðu vinum þínum að njóta
velgengni þinnar með þér.
Þeir munu aldrei gleyma því
og einn góðan veðurdag
kannt þú að þurfa á hjálp að
halda.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
60 ÁRA afmæli. Nk.mánudag, 2. apríl,
verður sextug Erna María
Ragnarsdóttir, búsett í
Lapinlahti, Finnlandi. Hún
tekur á móti gestum á morg-
un, sunnudaginn 1. apríl, kl.
14–18 á heimili frænku sinn-
ar, Dagnýjar Davíðsdóttur,
Grenibyggð 21 í Mosfellsbæ.
80 ÁRA afmæli. Ámorgun, sunnudag-
inn 1. apríl, verður áttræður
Þórður Jón Pálsson, kenn-
ari, Aflagranda 40, Reykja-
vík. Þórður tekur á móti vin-
um og vandamönnum á
afmælisdaginn kl. 15–18 í
félagsaðstöðunni á Afla-
granda 40.
„REGLA Goldwaters“ er
mörgum kunnug, en Harry
Goldwater var um langt
árabil einn þekktasti
keppnisstjóri í Bandaríkj-
unum. Hann var oft kall-
aður að spilaborðinu vegna
útspils frá rangri hendi.
Þegar slíkt gerist getur
sagnhafi valið um nokkra
kosti og meðal annars
krafist að banna útspil í
viðkomandi lit. Samkvæmt
reglu Goldwaters ætti
sagnhafi alltaf að taka út-
spilið gilt, því ef spilari er
svo utan við sig að vita
ekki hver eigi að spila út,
má ætla að hann viti ekki
hverju hann eigi að spila
út!
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ DG1094
♥ D4
♦ K73
♣ KD5
Vestur Austur
♠ K653 ♠ 7
♥ Á8 ♥ KG7653
♦ D ♦ 10542
♣ Á108762 ♣ 43
Suður
♠ Á82
♥ 1092
♦ ÁG986
♣ G9
Vestur Norður Austur Suður
Strom Goldman Hoie Eisenberg
-- 1 spaði Pass 1 grand *
2 lauf Pass Pass 3 spaðar
Pass 3 grönd Allir pass
* Krafa.
Spilið að ofan kom upp á
HM í Stokkhólmi árið 1970
og er frá viðureign Norð-
manna og Bandaríkja-
manna á fyrri stigum
mótsins. Eins og sjá má er
þriggja granda samningur
þeirra Goldmans og Eisen-
bergs ekki upp á marga
fiska, en gæti þó vel unnist
í reynd – ekki síst með
laufi út. Sagnhafi myndi
taka slaginn í borði og
svína spaðadrottningu.
Með hjartaásinn sem inn-
komu kemur vel til álita
hjá vestri að drepa strax
og halda laufsókninni
áfram, en þá vinnst spilið.
Verri vörn hefur svo sann-
arlega sést.
En ekki reyndi á Norð-
mennina í þessum efnum.
Áður en Strom í vestur gat
spilað út smáu laufi hafði
makker hans Hoie sent
lauffjarkann inn á mitt
borð. Keppnisstjóri var
kvaddur til og Eisenberg
ákvað að banna laufútspil,
enda leist honum illa á eig-
ið vald í litnum. Ekki kom
til greina að spila út spaða
frá vesturhendinni, svo
Strom varð að velja tígul
eða hjarta. Hann kaus
hjartaásinn, sem gerði
stormandi lukku hjá félaga
hans og skömmu síðar
hafði vörnin tekið átta
fyrstu slagina – 400 í AV.
Broadway Billy Eisen-
berg hefði betur tekið
mark á reglu Goldwaters
og krafist útspils í laufi!
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
LJÓÐABROT
VÍSUR
...Eik veit eg standa
í bláfjalli
regindigra
og ríka að kvistum,
hver af vovindum
vatzt og knúðist,
barðist baðmur,
en blöð losnuðu.
Kvist leit eg standa
í kyrrum dal
lágan og lítinn,
laufum grænan;
hann af byl skæðum
barðist hvergi,
en geymdi blóm og barr
í blálogni...
Stefán Ólafsson.
FYRIR síðustu umferð í Ís-
landsmóti skákfélaga voru
Tafldeild Bolungarvíkur og
Skákfélagið Grand Rokk
jöfn og efst. Bolvíkingum
dugði að ná jafnmörgum
vinningum og Grand-
rokkarar til að komast
upp í efstu deild. Ástæð-
an fyrir því var sú að í
umferðinni á undan
höfðu Vestfirðingarnir
knáu borið sigur úr být-
um í innbyrðis viðureign
félaganna. Staðan kom
upp í viðureign risanna í
2. deild en hvítu mönnun-
um stýrði hin gamal-
kunna kempa Jón Krist-
insson (2290), gegn Tómasi
Björnssyni (2250). 38. Be7!
Hxf3 Svartur var varnar-
laus þar sem hvítur mátar
bæði eftir 38... Hxe7 39.
Hxf8# og 38... Dxe7 39.
Dxe7 Hxe7 40. Hxf8#. 39.
Hxf3 og svartur gafst upp,
enda fátt til varnar.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Með morgunkaffinu
Nú verðum við að
taka á þessari meng-
un í hafinu.
Þetta eru hjónin sem búa í yndislega litla húsinu þar
sem er svo lágt til lofts.
10, 12 og 14 tommu
Verð frá kr. 1.500
Wokpanna, gæði í gegn
Klapparstíg 44 - sími 562 3614