Morgunblaðið - 31.03.2001, Blaðsíða 29
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2001 29
Bíldshöfða 6 · Sími 515 7025 Tryggvabraut 5 · Akureyri · Sími 462 2700 www.brimborg.is
Opið frá 9 - 18 virka daga og 11 - 16 laugardaga
Skrd. 6/2000. Ekinn 11.000 km
Vél: 2685 cc, 163 hö. diesel
5 dyra, sjálfskiptur
Verð 4.680.000 kr.
Leitaðu að notuðum bíl á
brimborg.is með öflugri og
hraðvirkri leitarvél. Komdu í
1000 fermetra sýningarsal
okkar að Bíldshöfða 6 og
skoðaðu fjölda notaðra úrvals-
bíla. Settu öryggið á oddinn
og tryggðu þér góðan bíl.
75% af auglýstum
Úrvalsbílum hafa selst
innan viku.
Búnaður m.a.
Rafmagn í rúðum
Aksturstölva
Dökklitað gler
Leðurpakki
Rafhituð framsæti
17" álfelgur
Geislaspilari
Viðarklæðning í mælaborði
Loftkæling
Hátt og lágt drif
Líknabelgir
Metallic lakk
Veltistýri
Þokuljós
Hæðarstillanleg 3 punkta öryggisbelti
Samlæsingar
Rafmagn í bílstjórasæti.
O.m.fl.
●
●
●
●
●
●
●
●
●
●
●
●
●
●
●
●
●
●
Mercedes Benz M 270cdi
SOFFANÍAS Cecilsson hf. á Grundarfirði hefur bætt
við þriðja skipinu í útgerð sína. Nýja skipið heitir
Grundfirðingur SH en hét áður Hringur SH og var gert
út frá Grundarfirði. Grundfirðingur SH er um 150
brúttólesta stálskip, smíðað í Garðabæ árið 1972. Það
var lengt árið 1973 og aftur árið 1990 og er nú 35,45
metrar á lengd. Skipið var yfirbyggt árið 1985. Fyrir
gerir Soffanías Cecilsson hf. út Sóley SH og Sigur-
borgu SH. Skipstjóri á Grundfirðing SH er Gunnar Þór
Friðriksson.
Ljósmynd/Guðlaugur Albertsson
Gera út þrjú skip
NÝVERIÐ bættist nýr bátur við í
flota Stöðfirðinga þegar Narfi SU
kom til heimahafnar í fyrsta sinn.
Narfi SU er um það bil sex brúttó-
rúmlestir að stærð og er af gerðinni
Cleopatra Fisherman 28, smíðaður
hjá Trefjum ehf. í Hafnarfirði.
Báturinn er búinn 420 hestafla vél
og ganghraði hans er um 25 sjómíl-
ur. Það er fyrirtækið Lukka ehf. á
Stöðvarfirði sem kaupir þennan bát
en eigendur þess eru feðgarnir Ár-
sæll Guðnason á Stöðvarfirði og
Guðni Ársælsson sem búsettur er á
Fáksrúðsfirði.
Ársæll sagði að heimferðin hafi
gengið vel og að reynslan af bátnum
á heimferðinni lofaði góðu. Hann
væri því mjög ánægður með bátinn.
Þetta er sjöundi báturinn sem Ár-
sæll kaupir en sjómannsferill hans er
nú orðinn yfir 40 ár.
Narfi SU verður gerður út á línu-
veiðar en fyrir eiga þeir feðgar ný-
legan bát sömu gerðar og nýi bát-
urinn en hann keyptu þeir sumarið
1999. Eldri báturinn verður gerður
út samhliða nýja bátnum en verður
seldur strax og kaupandi finnst.
Kvótastaða útgerðarinnar er ágæt
og mun nýi báturinn fara fljótlega á
veiðar.
Morgunblaðið/Bjarni Gíslason
Narfi SU á siglingu í Stöðvarfirði.
Nýr bátur til
Stöðvarfjarðar
Stöðvarfjörður. Morgunblaðið.
ÚTFLUTNINGSRÁÐ Íslands hef-
ur gefið út samantekt um tolla á ís-
lenskar sjávarafurðir í innflutningi
til ESB-ríkja. Samantektin, sem
unnin var af Ernu Björnsdóttur, er
hugsuð sem svar við þeim fjölda
fyrirspurna sem Útflutningsráði
berst frá sjávarútvegsfyrirtækjum
varðandi tollákvæði við sölu á
vörum til ESB-ríkja. Henni er ætl-
að að auðvelda aðgengi íslenskra
fyrirtækja að þessum upplýsingum
og tryggja réttan og hagkvæman
innflutning á vörum til ESB-
ríkjanna.
Íslenskar sjávarafurðir njóta
þess í mörgum tilvikum að á þær er
lagður lægri tollur en á afurðir ann-
arra ríkja. Þetta styrkir samkeppn-
isstöðu íslenskra vara á ESB-mark-
aði og eykur mikilvægi þess að
skilgreina uppruna vörunnar, sér-
staklega þegar keypt er hráefni frá
þriðja landi og unnið hérlendis.
Samantektin fjallar um ákvæði
sem ná yfir kafla samkvæmt HS-
tollflokkuninni. Í henni er gefinn
upp tollur á sjávarafurðir með upp-
runa á Íslandi eða á Evrópska efna-
hagssvæðinu annars vegar, og ann-
an uppruna hins vegar.
Að auki eru tilgreindir magnkvót-
ar sem í gildi eru fyrir árið 2001 og
tollur á þær vörur sem falla undir
þá. Í viðaukum er síðan að finna
reglugerðir ESB sem taka til magn-
kvóta og niðurfellinga tolla og lista
yfir þær vörur sem falla þar undir.
Samantektina er hægt að nálgast
á skrifstofu Útflutningsráðs Íslands
og er hún send fyrirtækjum þeim að
kostnaðarlausu. Hana er einnig að
finna á vefnum www.utflutnings-
rad.is
Samantekt um tolla
til ESB-ríkja
alltaf á miðvikudögum