Morgunblaðið - 31.03.2001, Blaðsíða 37
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2001 37
Ver› a›eins í dag
UM helgina mun Nýkaup hefja
samstarf við Blómabúð Kringlunn-
ar en samstarfið er fólgið í því að
Blómabúð Kringlunnar, sem er í
eigu Inga Þórs Ásmundssonar,
mun alfarið sjá um blómasölu í Ný-
kaupi, bæði framleiðslu á tilbúnum
vöndum sem og framstillingar.
Boðið verður uppá úrval af til-
búnum vöndum í ýmsum verð-
flokkum og þá verður einnig boðið
uppá ýmsar árstíðarbundnar
vörur. Blómvendirnir munu kosta
frá 799 og uppí tæplega 4.000
krónur.
Þrjá daga í viku; síðdegis á
fimmtudögum, eftir hádegi föstu-
daga og frá hádegi á laugardögum,
mun síðan sérfræðingur vera á
staðnum og þá verða settir saman
vendir eftir óskum hvers og eins.
Þá verður hægara um vik fyrir við-
skiptavini að fá skreyttar matar-
og ostakörfur frá Nýkaupi.
Blómabúð Kringl-
unnar sér um blóma-
sölu í Nýkaupi
GJALDSKRÁ Íslandspósts á
ábyrgðarbréfum, sem afhend eru
skráðum viðtakanda, hækkaði um
allt að 62% frá og með 19. mars sl. Þá
urðu til tvær tegundir ábyrgðar-
bréfa, annars vegar ábyrgðarbréf af-
hent skráðum viðtakanda og hinsveg-
ar ábyrgðarbréf afhent á ákvörðun-
arstað, sem er nýjung.
Hækkunin er mest á ábyrgðar-
bréfum skráðum á viðtakanda í
lægsta þyngdarflokki, 0-100 g.
Gjaldskrá ábyrgðarbréfa sem af-
hent eru á ákvörðunarstað eru um
14% hærri en kostnaður við sending-
ar ábyrgðarbréfa fyrir 19. mars og er
það í samræmi við almennar gjald-
skrárhækkanir hjá Íslandspósti.
Áskell Jónsson, framkvæmdstjóri
markaðs- og sölusviðs, segir stranga
afhendingarskilmála, eins og verið
hafa á ábyrgðarbréfum, vera kostn-
aðarsama og því var ákveðið að láta
gamla ábyrgðarbréfið, sem ætíð var
skráð á viðtakanda, mæta þeim
kostnaði en bjóða í staðinn upp á
ódýrari kost.
„Síðan farið var að keyra út
ábyrgðarbréfin til heimila og fyrir-
tækja árið 1999 hefur það oft og tíð-
um valdið miklum töfum við afhend-
ingu að aðeins skráður viðtakandi
bréfsins mátti taka við því en ekki
maki eða annað heimilisfólk – nema
gegn umboði frá hinum skráða við-
takanda. Með tilkomu nýju tegund-
arinnar getur sendandi ábyrgðar-
bréfa ákveðið hvort einungis megi
afhenda bréfið í eigin hendur viðkom-
andi aðila eða hvort afhenda megi
bréfið þeim sem staddur er á skráðu
póstfangi.“
Sent á pósthús
ef enginn er heima
Ef tilraun til afhendingar tekst
ekki, þ.e. enginn er heima, eða ef um
er að ræða ábyrgðarbréf afhent
skráðum viðtakanda og sá aðili er
ekki heima er skilin eftir tilkynning
og viðkomandi getur náð í bréfið á
næsta pósthús.
Til að hægt sé að afhenda bréfið á
pósthúsi þarf að framvísa skilríkjum
eða umboði hvort sem um er að ræða
ábyrgðarbréf afhent skráðum viðtak-
anda eða ábyrgðarbréf afhent á
ákvörðunarstað.
Gulur er litur nýja
ábyrgðarmiðans
Fyrir hina nýju tegund ábyrgðar-
bréfa hefur verið útbúinn nýr
ábyrgðarmiði sem er gulur að lit með
númeraröð sem byrjar á RA en miði
fyrir ábyrgðarbréf afhent skráðum
viðtakanda er eins og áður í bláum lit.
Ef senda á ábyrgðarbréf til út-
landa er einungis í boði ein tegund
ábyrgðarbréfa enda er afhendingar-
mátinn mismunandi eftir löndum.
Ábyrgðarbréf frá útlöndum fást
einungis afhent skráðum viðtakanda
enda hefur sendanda erlendis þá ekki
verið boðin önnur þjónusta.
Tvær tegundir ábyrgðarbréfa í boði hjá Íslandspósti
Allt að 62% verð-
hækkun á gjaldskrá
Morgunblaðið/Þorkell
Í KJÖLFAR mikillar umræðu um
verð á papriku undanfarið hafa
sumir kaupmenn lækkað verð á
papriku í um og yfir 300 krónur.
„Það komst einhver glímu-
skjálfti í markaðinn í vikunni og
við fylgjum markaðnum,“ segir
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Bónus.
Kílóið af papriku kostaði þegar
opnaði í Bónus í gær 339 krónur
en fór skömmu síðar niður í 289
krónur. Hann sagði að fleiri teg-
undir hefðu lækkað í verði, ban-
anakílóið sem selt var í Bónusi í
byrjun viku á 189 krónur var kom-
ið niður í 69 krónur í gær, kílóið af
tómötum og agúrkum var selt á
199 krónur og appelsínukílóið
kostaði 99 krónur.
„Þessi verðlækkun kemur í kjöl-
far athyglinnar sem paprikuverð
hefur hlotið undanfarna daga,“
segir Gísli Sigurbergsson, kaup-
maður í Fjarðarkaupum, sem
sagði að kílóið af papriku hefði
kostað 295 krónur þegar opnað
var í gær. Hann sagði á hinn bóg-
inn að verð kynni að hækka eða
lækka, allt eftir því hver viðbrögð
keppinauta yrðu.
Sigurjón Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Krónunnar, sagði í
gær að þar á bæ muni verðið
lækka í takt við markaðinn. „Ég
er með paprikukílóið á 349 krónur
kílóið í dagsbyrjun en mun fylgj-
ast grannt með verðinu hjá sam-
keppnisaðilum í dag.“
Í Nettó kostaði paprikukílóið
299 krónur í gær og að sögn Ólafs
Inga Gunnarssonar hjá Nettó var
óvíst hversu lengi það verð héld-
ist. Hann sagði að í Nettó hefðu
jarðarber einnig lækkað mikið í
verði.
Aðrir kaupmenn sem rætt var
við í gær fylgdust grannt með
markaðnum en voru ekki búnir að
lækka verðið á papriku.
Kaupmenn keppast við að
lækka verð á papriku
Kílóverð á papr-
iku komið í undir
300 krónur