Morgunblaðið - 31.03.2001, Blaðsíða 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 31. MARS 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
TVEIR unglingspiltar voru hætt
komnir þegar þeir lentu í snjóflóði
rétt utan við skíðasvæði Seyðfirð-
inga á milli klukkan fimm og hálf-
sex á fimmtudag. Piltarnir voru
ásamt fjórum félögum sínum að
renna sér á snjóbrettum þegar flóð-
ið fór af stað og flaut annar ofan á
því niður brekkuna en hinn lenti í
sprungu á milli snjófleka. Hvor-
ugan þeirra sakaði.
Að sögn Emils Tómassonar, snjó-
flóðaeftirlitsmanns veðurstofunnar
á Seyðisfirði, var um stórt flekaflóð
að ræða og mældist það um 400
metrar á breidd en fallbreidd þess
var um 200 metrar. Það sem líklega
hefur bjargað piltunum er að flóðið
fór hægt fram enda var snjórinn
þungur og brekkan aflíðandi. Stálið
í flóðinu var rúmir tveir metrar og
sat annar piltanna, Bergþór Rún-
arsson, uppi á slíkum tveggja metra
þykkum jaka á meðan flóðið rann
fram.
Ekki er vitað um að snjóflóð hafi
fallið áður á þessum stað og segir
Emil líklegt að veðurfar und-
anfarna daga hafi valdið því að
þessi skilyrði mynduðust. Þrátt fyr-
ir að gott veður hafi verið allra síð-
ustu daga var hret sem stóð að vest-
an á mánudag og þriðjudag og
þannig hafi skafið ofan í hvilftina
þar sem flóðið féll. Síðan hafi pilt-
arnir líklega komið flóðinu af stað
þar sem þeir voru að renna sér í
brekkunni.
Hélt að þetta yrði sitt síðasta
Ívar Pétur Kjartansson sem er 14
ára slapp ótrúlega vel úr snjóflóð-
inu en hann rann í sprungu á milli
tveggja snjófleka þá 200 metra sem
fallbreidd þess var. Honum var að
vonum brugðið þegar flóðið fór af
stað. „Við vorum bara að renna
okkur þarna þegar ég sá sprungu
myndast fyrir neðan mig og ég
hugsaði með mér að sem betur fer
væri þetta fyrir neðan mig. En þá
leit ég upp og sá að önnur sprunga
hafði myndast fyrir ofan. Þá var
neðri sprungan komin aðeins neðar
og þeir kögglar sem fylgdu henni
svo ég renndi mér lengra niður, en
svo náði efra flóðið mér og ég varð
á milli.“ Ívar klemmdist þó ekki á
milli flekanna því þeir náðu aldrei
alveg saman en rann í sprungunni á
milli flekanna niður alla brekkuna.
Hann segist hafa orðið mjög
hræddur og á tímabili hélt hann að
þetta væri sitt síðasta: „Ég grófst
næstum því undir því ég fann kögg-
ul fljúga rétt yfir hausinn á mér og
snjógleraugun mín brotnuðu. Þann-
ig að lappirnar á mér skulfu og ég
var bara í algjöru sjokki þegar vin-
ir mínir komu og spurðu hvort það
væri ekki allt í lagi með mig.“
Ívar heldur að ferðin niður
brekkuna hafi tekið tæpa mínútu
en litlar drunur heyrðust í flóðinu.
„Það var ekki það mikill hraði á
þessu,“ segir hann og prísar sig
sælan. „Ef þetta hefði verið í stærri
brekku hefði flóðið náð almenni-
legri ferð en sem betur fer náði það
ekki það mikilli ferð.“
Móðir Ívars, Guðrún Katrín
Árnadóttir, segir mikilvægt að
menn læri af þessari reynslu. Því
hafa foreldrar á staðnum þegar
óskað eftir að piltarnir verði frædd-
ir um hættur og rétt viðbrögð við
aðstæður eins og þær sem þeir
lentu í á fimmtudag.
Tveir piltar hætt komnir í snjóflóði fyrir ofan Seyðisfjörð
Bárust 200
metra með
snjóflóðinu
Ljósmynd/Guðjón M. Jónsson
Emil Tómasson mælir snjóflóðið í gærmorgun.
SAMNINGANEFND Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna ósk-
aði á fundi hjá ríkissáttasemjara í
gær eftir viðræðum við einstök sam-
tök sjómanna, þar sem sameiginleg-
ar viðræður hefðu ekki borið árang-
ur.
LÍÚ óskaði eftir því að viðræður
yrðu fyrst hafnar við Vélstjórafélag
Íslands og Sjómannasamband Ís-
lands, hvort í sínu lagi, en síðar
munu fara fram viðræður útvegs-
manna við Farmanna- og fiski-
mannasamband Íslands. Verkfall
sjómanna skellur á annað kvöld, hafi
ekki samist fyrir þann tíma.
Í orðsendingu frá samninganefnd
FFSÍ í gær kom fram að útvegs-
menn óskuðu ekki lengur eftir við-
ræðum við fulltrúa FFSÍ í yfir-
standandi kjaradeilu sjómanna á
fiskiskipum og útvegsmanna. Í
fréttatilkynningu frá ríkissátta-
semjara kom hins vegar fram að til
að fyrirbyggja misskilning vildi rík-
issáttasemjari taka fram að LÍÚ
hefði ekki slitið viðræðum við FFSÍ,
heldur óskað eftir viðræðum við ein-
stök samtök sjómanna. Friðrik J.
Arngrímsson, framkvæmdastjóri
LÍÚ og formaður samninganefndar
útvegsmanna, segir að eins og við-
ræður hafi þróast undanfarnar vik-
ur sé ljóst að ræða verði við sjó-
mannasamtökin hver í sínu lagi.
„Við merkjum það ekki að Far-
manna- og fiskimannasambandið sé
í þessum viðræðum af heilindum.
Þvert á móti. Þessu er þveröfugt
farið með samninganefndir Vél-
stjórafélags Íslands og Sjómanna-
sambands Íslands en þar eru menn
að leggja sig verulega fram til að
reyna að ná samningi. Það er hins
vegar ennþá verulega langt í land
með að svo geti orðið,“ segir Friðrik.
Samninganefnd FFSÍ hefur lýst
yfir vilja sínum til þess að halda
áfram kjaraviðræðum við fulltrúa
útvegsmanna. Grétar Mar Jónsson,
forseti FFSÍ, segir þessa ósk út-
vegsmanna skjóta nokkuð skökku
við þar sem þeir hafi kvartað undan
því á síðastliðnu ári að samtök sjó-
manna kæmu ekki sameinuð til
kjaraviðræðna. Hann harmar þessa
afstöðu fulltrúa útgerðarmanna,
sem sé gróf tilraun til að reka fleyg í
samstarf samtaka sjómanna, með
það að markmiði að styrkja samn-
ingsstöðu útvegsmanna í kjaradeil-
unni. „Það mun hins vegar ekki bera
árangur því samstaðan meðal sjó-
mannasamtakanna er með ágætum.
Þetta þýðir hins vegar að deilan er
komin í strand enn einu sinni,“ segir
Grétar.
Sjómannaverkfall skellur á annað kvöld hafi ekki samist
Útvegsmenn vilja ræða við
einstök félög sjómanna
Flötur kominn/13
SVARS frá samgönguráðuneytinu
vegna bréfs Flugmálastjórnar um
rekstur Leiguflugs Ísleifs Ottesen
og flugslysið í Skerjafirði er ekki að
vænta fyrr en eftir helgina, að sögn
Jakobs Fals Garðarssonar, aðstoð-
armanns Sturlu Böðvarssonar sam-
gönguráðherra. Sturla er nú stadd-
ur í Kaupmannahöfn þar sem hann
er við opnun á nýrri skrifstofu Eim-
skipafélagsins. Hann er væntanleg-
ur til landsins á morgun.
Embættismenn samgönguráðu-
neytisins fóru í gær yfir svarbréf
Flugmálastjórnar frá því í fyrradag,
þar sem Flugmálastjórn telur í svari
sínu ekki ástæðu til að segja upp
flugrekstrarleyfi til áætlunarflugs
við Leiguflug Ísleifs Ottesen, LÍO.
Það verður því ekki fyrr en eftir
helgi sem samgönguráðherra ákveð-
ur hvort ráðuneytið segir samningn-
um upp um áætlunarflug við LÍÓ.
Ráðherra bað um umsögn Flug-
málastjórnar og í tilefni þess fór
fram sérstök úttekt á LÍO dagana
27. og 28. þessa mánaðar. Tekið var
á tæpum 50 atriðum í rekstrinum,
allt frá viðhaldssamningum og far-
þegalistum til þjálfunar í neyðartil-
vikum.
Svar
væntan-
legt eftir
helgina
Hætta á/42
Ráðuneytið um bréf
Flugmálastjórnar
ÖKUMAÐUR var handtekinn í
Mjóddinni í Breiðholti síðdegis
í gær grunaður um ölvun við
akstur. Að sögn lögreglu hafði
ökumaðurinn fyrst bakkað á
stólpa við Fannarfell en ekið á
brott og skilið afturstuðarann
eftir, sem losnaði af bílnum við
ákeyrsluna.
Því næst hélt ökumaðurinn
niður í Mjódd þar sem hann ók
á sex kyrrstæða bíla og kast-
aðist einn þeirra á gangandi
vegfaranda sem slasaðist
minniháttar. Bíll ökumannsins
og einn hinna sem hann ók á
voru fluttir af vettvangi með
kranabíl, nokkuð skemmdir.
Ók ölv-
aður á
sex bíla