Morgunblaðið - 31.03.2001, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2001 41
Skálholti Íslandslýsingu á latínu, og
kom hún út á prenti árið 1666. Þar
tekur biskup skýrt fram að engar
rottur finnist á Íslandi, hins vegar
mergð af músum. Frá 18. öld er aft-
ur á móti Íslandslýsing Eggerts
Ólafssonar reist á landkönnun
þeirra Bjarna Pálssonar á árunum
1752–57. Eggert segir aðeins frá
rottum á einum stað á Íslandi, undir
Jökli á Snæfellsnesi, þangað sem
þær hafi borist nýlega með skipi sem
hafi strandað undan Rifi. Eggert
notaði latínuheiti sem á við svar-
trottuna (Rattus rattus), en Bjarni
Sæmundsson náttúrufræðingur ef-
aðist um að það væri rétt greining
hjá honum, enda hefði svartrotta lík-
lega aldrei orðið landlæg á Íslandi.
Þegar Bjarni lýsti spendýralífi Ís-
lands í bók árið 1932 hélt hann því
fram að fyrst hefði orðið vart við
brúnrottur þar á 19. öld, og hafi þær
síðan verið að breiðast út um landið,
einkum við sjávarsíðuna.
Þetta kemur vel heim við þá hug-
mynd sem ég hef fengið af samtölum
við fólk. Til dæmis má taka að móðir
mín var fædd árið 1896 og alin upp
frá bernsku á Gýgjarhóli í Bisk-
upstungum, í einni þeirra byggða
sem fjærst eru sjó. Hún sagðist aldr-
ei hafa séð rottu fyrr en hún var orð-
in húsmóðir á fertugsaldri í Efstadal
í Laugardal. Ég efast um að rottur
hafi almennt breiðst út um sveitir
landsins fyrr en farið var að flytja
þangað kornmat á vörubílum.
Til eru þeir sem efast um að það
standist að Ísland hafi verið rottu-
laust á miðöldum. Ástæðan er eink-
um sú að löngum hefur verið haldið
fram að pestin, sem stundum er köll-
uð svarti dauði, hafi borist á milli
manna með rottuflóm, og faraldrar
sem varla geta verið annar sjúkdóm-
ur gengu vissulega um landið á 15.
öld. Sú fyrri gekk um allt land, að
sagt er, á árunum 1402–04, sú síðari
um allt land nema Vestfirði 1494–95.
En í raun er hægt að skýra gang
pestarinnar með öðru móti; hún á til
að berast með öðrum flóarteg-
undum, sem þurfa ekki rottur til að
lifa á, og hún getur líka borist sem
lungnasjúkdómur sem smitast beint
frá manni til manns. Rökin til að
halda að miðaldaplágan hafi borist
með rottuflóm eru í raun engin önn-
ur en þau að mannskæður kýla-
pestarfaraldur sem kom upp í Kína
og Indlandi á síðasta áratug 19. ald-
ar reyndist smitast með þessum
hætti. Það var uppgötvað eftir
margra ára rannsóknir, en fram að
þeim tíma hafði engum manni dottið
í hug að tengja pestina við rottur eða
flær þeirra. Afar veik rök eru til að
halda að miðaldaplágan hafi yfirleitt
borist um Evrópu með rottum og
flóm, og útilokað að svo hafi verið á
Íslandi. Þannig er til dæmis vandséð
hvernig rottur áttu að komast yfir
stórfljót og fjallvegi svo fljótt sem
pestin barst vissulega.
Það styður enn fremur þá skoðun
að Ísland hafi verið rottulaust á mið-
öldum að engin rottubein hafa fund-
ist í fornleifum frá þeim tíma, og
rottur eru aldrei nefndar á Íslandi í
íslenskum fornritum. Orðin sem
seinna voru notuð um þessi dýr,
rotta og valska, koma ekki fyrir í
fornum textum íslenskum. Í einni
konungasögu, Knýtlinga sögu, segir
frá atburði austur við Eyrarsund,
„at þar kómu inn mýss margar
valskar. Þær váru miklu stærri en
menn hefði fyrr sét.“ Þarna er sýni-
lega gert ráð fyrir að rottur séu
ókunnuglegar, jafnvel Dönum sem
voru þarna á ferðinni.
Heimildir:
Bjarni Sæmundsson: Spendýrin (Mamm-
alia Islandiæ). Reykjavík 1932.
Eggert Ólafsson: Vice-Lavmand Eggert
Olafsens og Land-Physici Biarne Povelsens
Reise igiennem Island, foranstaltet af Vid-
enskabernes Selskab i Kiøbenhavn I. Sorøe
1772.
Gunnar Karlsson: „Plague without Rats:
the case of fifteenth-century Iceland.“
Journal of Medieval History XXII (1996),
263–84.
Gunnar Karlsson og Helgi Skúli Kjart-
ansson: „Plágurnar miklu á Íslandi.“ Saga
XXXII (1994), 11–74.
Íslenzk fornrit XXXV. Danakonunga sög-
ur. Bjarni Guðnason gaf út. Reykjavík
1982.
Norse and Later Settlement and Sub-
sistence in the North Atlantic. Ed. by
Christopher D. Morris and D. James Rack-
ham. Glasgow 1992.
Þórður Þorláksson: Ísland. Stutt landlýs-
ing og söguyfirlit. Ljósprentun frumútgáf-
unnar í Wittenberg 1666, ásamt íslenzkri
þýðingu. Reykjavík 1982.
Gunnar Karlsson, prófessor í sagnfræði
við HÍ.
Morgunblaðið/Þorkell
Ísilögð Reykjavíkurtjörn.
Njálsgötu 86,
s. 552 0978
Handklæði
með nafni
1.500 kr.