Morgunblaðið - 31.03.2001, Blaðsíða 59
mjög gaman að tala við hana. Ég
hjálpaði henni líka þegar ég kom
heim um helgar. Núna hitti ég
hana síðast laugardaginn 24. mars.
En daginn eftir kom kallið, hún var
farin yfir móðuna miklu.
Guð blessi fjölskyldu hennar og
vini.
Heiðar Örn Heimisson.
Ég var á leið upp Ártúnsbrekk-
una í Reykjavík þegar síminn
hringdi. Á nærgætinn hátt sagði
röddin í símanum að hún Jódís frá
Veðramóti væri dáin.
Um stund nam tíminn staðar.
Líkt og mynd á þili brá fyrir í hug-
skoti mínu endurminningum um
kynni af fágætri persónu.
Á vormánuðum árið 1999 hlýnaði
mér um hjartaræturnar þegar Jó-
dís, þessi kraftmikli bifvélavirki í
Áka kom að máli við mig og spurði
hvort ekki vantaði aðstoð í hesta-
mennskuna. Gott orð fór af Jódísi
svo við Björn réðum hana strax til
starfa.
Um sumarið stóð Jódís sem
klettur í hafinu og leysti þrautir
líðandi stundar af stakri prýði og
ljúfmennsku. Síðastliðið sumar
leiddi Jódís svo ásamt fleira fólki
hópa erlendra hestamanna yfir
Kjöl og sýndi þá á sér fleiri góðar
hliðar.
Sterk útgeislun, glaðværð og
dugnaður voru aðalsmerki hennar í
daglegum samskiptum.
Náttúrudýrkun og sérstæð
glöggskyggni á hesta og umgengni
við hross nýttust fullkomnlega í
hlutverkinu sem hún leysti svo vel
af hendi fyrir Hestasport.
Fregnin um fráfall Jódísar hefur
borist til vinhópsins erlendis sem
sárt syrgir nú fararstjórann af Kili.
Í sjóði minninga þessa fólks er
myndin af Íslandi brotin og einn
hlutinn týndur.
Það er skarð fyrir skildi því
sviptivindar dauðans hafa enn á ný
feykt á braut blaði úr blómkörfu
mannlífsins í Skagafirði.
Ég og starfsfólk Hestasports
vottum ættingjum og vinum Jódís-
ar okkar dýpstu samúð og kveðjum
hana með þakklæti fyrir samskipt-
in með ljóði eftir Friðrik Guðna
Þorleifsson:
Þau ljós sem skærast lýsa
þau ljós sem skína glaðast
þau bera mesta birtu
en brenna líka hraðast
og fyrr en okkur uggir
fer um þau harður bylur
er dauðans dómur fellur
og dóm þann enginn skilur.
Magnús Sigmundsson.
Þegar við minnumst Jódísar
Hönnu sjáum við hana fyrir okkur
glaða og ánægða, því að þannig var
hún oftast. Hún gladdi svo marga
með nærveru sinni einni og er
óhætt að segja að hún hafi verið
hrókur alls fagnaðar hvar sem hún
var. Þess vegna er svo erfitt að
hugsa sér lífið án hennar.
Hún tók sér margt fyrir hendur
og þá af miklum dugnaði og krafti.
Hún var ósérhlífin og flíkaði ekki
tilfinningum sínum og manni
fannst hún oft gera í því að leyna
kvenleika sínum, sem hún mátti þó
vera mjög stolt af. Flestir minnast
hennar líklega á hestbaki, í íþrótt-
um, að skemmta sér eða í skítugum
vinnugalla að gera við bíla. En hún
var líka ákaflega snyrtileg og átti
t.d. ekki í neinum erfiðleikum að
sauma á sig kjól fyrir útskriftina
eða önnur tækifæri.
Við eigum margar góðar og dýr-
mætar minningar um Jódísi og það
er ljóst að fráfall hennar skilur eft-
ir sig stórt skarð sem aldrei verður
fyllt aftur. Við erum þakklát fyrir
þennan tíma sem við áttum saman
þó að hann hafi verið allt, allt of
stuttur.
Það er erfiður tími framundan
fyrir alla þá sem þekktu Jódísi og
elskuðu. Guð styrki okkur öll í
þessari miklu sorg.
Við vottum fjölskyldu og vinum
Jódísar Hönnu okkar innilegustu
samúð.
Ásta og Þröstur.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2001 59
✝ Lilja Víglunds-dóttir fæddist á
Sléttu í Mjóafirði í
S-Múlasýslu 28. des-
ember 1903. Hún
lést á heimili sínu á
Hrafnistu í Hafnar-
firði 25. mars síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Jónína
Guðrún, húsmóðir
og verkakona, f. 5.
júlí 1863, d. í Nes-
kaupstað 10. apríl
1954, Þorsteinsdótt-
ir, bónda í Geirshlíð
í Flókadal í Borgar-
firði, Þorsteinssonar bónda á
Hurðarbaki í Reykholtsdal, Þið-
rikssonar, og Víglundur, bóndi og
útgerðarmaður á Krossi í Mjóa-
firði, f. á Grunnasundsnesi í
Helgafellssveit 2. október 1877,
d. í Neskaupstað 4. nóvember
1945, Þorgrímsson, bónda á Stað-
arbakka í Helgafellssveit, Víg-
lundssonar. Móðir Víglundar var
Kristín Theodóra verkakona, f. í
Gröf í Staðarsveit á Snæfellsnesi,
f. 15. október 1855, d. í Stykk-
ishólmi 27. desember 1908, Svein-
björnsdóttir, bónda í Gröf og
Arnarstöðum efri í Helgafells-
sveit, Jónsssonar, bónda á Grís-
hóli í Helgafellssveit á Snæfells-
nesi, Jónssonar. Alsystkini Lilju
voru: Þorsteinn Þórður, skóla-
stjóri og sparisjóðsstjóri í Vest-
mannaeyjum, f. 19. október 1899,
d. 3. september 1985, kona hans
var Ingigerður Jóhannsdóttir, f.
6. september 1902, d. 10. desem-
ber 1993; Kristín Theodóra, veit-
inga- og kaupkona á Seyðisfirði,
f. 12. október 1901, d. 19. apríl
1987, maður hennar var Axel Em-
il Nielsen verslunarmaður, f. 16.
nóvember 1898, d. 5. mars 1936;
Svavar, útgerðarmaður í Nes-
kaupstað og Hafnarfirði, f. 28.
desember 1903, d. 10. mars 1954,
fyrri kona hans var Halldóra Sig-
fúsdóttir, f. 19. maí 1906, d. 14.
mars 1944, síðari kona hans var
Guðrún Benediktsdóttir, f. 9.
október 1912, d. 20. nóvember
1972; Haraldur, tollvörður og
lögregluþjónn á Seyðisfirði, f. 9.
júlí 1905, d. 21.10.1974, kona
hans var Arnbjörg Sverrisdóttir,
f. 16. febrúar 1905, d. 4. nóvem-
ber 1989. Hálfsystkini Lilju sam-
feðra voru: Danilía, f. 4. október
1893, d. 13. desember 1893; Víg-
1959, kaupmaður, maki: Jóna
Björg Óskarsdóttir, f. 25.10.
1959, Dagný Petra, f. 23.12. 1961,
húsmóðir, maki: Magni Björn
Sveinsson, f. 6.2. 1959, Gunnur
Björk, f. 17.8. 1969, iðn.tæknifr.
3) Inga Jóhanna húsmóðir, f.
30.11. 1927, maki: Hjörleifur
Guðnason múrarameistari, f. 5.6.
1925. Þeirra börn eru Lilja Dóra,
f. 7.10.1947, verslunarmaður,
Guðmunda, f. 23.4. 1949, versl-
unarmaður, maki: Þórður Yngvi
Sigursveinsson, f, 4.6. 1948, Guð-
jón, f. 18.6. 1955, bæjarstjóri,
maki: Rósa Elísabet Guðjónsdótt-
ir, f. 26.7. 1959, Guðni, f. 8.11.
1957, framkv.stjóri, maki: Rósa
Sveinsdóttir, f. 26.9. 1963, Hall-
dór, f. 9.11. 1960, trésmíðameist-
ari, maki: Erna Þórsdóttir, f.
28.7. 1963, Sigrún, f. 25.8. 1962,
húsmóðir, maki: Magnús Örn
Guðmundsson, f. 7.12. 1956, og
Jónína Björk, f. 24.5.1966, hús-
móðir, maki: Bergur Guðnason, f.
24.12. 1964. 4) Víglundur Svavar,
trésmíðameistari, umsjónarmað-
ur á Reykjalundi, f. 1.5. 1939,
maki: Auður Sveinsdóttir, lækna-
ritari, f. 8.3. 1940. Þeirra börn
eru Lilja, f. 26.8. 1970, við-
skiptafr., sambýlismaður: Snorri
Ómarsson, f. 4.9. 1971, og Hall-
dór, f. 30.8. 1975, nemi, unnusta:
Harpa Ýr Erlendsdóttir, f. 9.2.
1978.
Foreldrar Lilju slitu samvistir
er hún var á þriðja ári og ólst hún
upp hjá foreldrum stjúpmóður
sinnar, þeim Gunnari Jónssyni í
Holti og Nikólínu Sigurðardóttur,
til tíu ára aldurs er hún flutti með
föður sínum og stjúpmóður, Jón-
ínu Sigríði Gunnarsdóttur, að
Krossi. Halldór og Lilja hófu sinn
búskap á Krossi en fluttust árið
1929 að Nesi í Norðfirði, eins og
kauptúnið hét þá. Lengst af með-
an bæði lifðu bjuggu þau í Heið-
arbýli, sem Halldór endurbyggði
að mestu, og voru þau ævinlega
kennd við það heimili. Halldór
vann lengst af við trésmíði og
Lilja vann yfirleitt utan heimilis.
Með þeim komu frá Mjóafirði
Katrín, móðir Halldórs, sem var
hjá þeim í nokkur ár, og Eyjólfur,
bróðir Halldórs, og var hann þar
til heimilis ævilangt. Hjá þeim
voru einnig til heimilis um tíma
faðir Lilju og stjúpa. Oft tóku þau
kostgangara og áttu þar ýmsir
einstæðingar skjól. Árið 1978
fékk Lilja vist á Hrafnistu í Hafn-
arfirði þar sem hún átti heimili til
dauðadags.
Útför Lilju verður gerð frá
Norðfjarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
lundur, sjómaður og
verkamaður í Nes-
kaupstað, f. 3. des-
ember 1894, d.
20.desember 1976,
maki hans var Ragn-
heiður Pétursdóttir,
f. 9. ágúst 1904, d. 1.
nóvember 1999;
Gunnar Jóhann Sig-
urjón, bóndi og út-
gerðarmaður í Mjóa-
firði og Reyðarfirði,
f. 4. júní 1913, d. 24.
október 1984, kona
hans var Ásta Ket-
ilsdóttir, f. 12. des-
ember 1914.
Lilja giftist 28. október 1922
Halldóri trésmíðameistara, f. 2.
apríl 1900, d. 24. janúar 1976, Jó-
hannssyni, bónda á Reykjum og
Krossi í Mjóafirði, f. 21. septem-
ber 1860, d. 3. maí 1924, Mar-
teinssonar, bónda á Parti í Sand-
vík, Magnússonar. Móðir Hall-
dórs var Katrín, f. 2. október
1862, d. 4. nóvember 1950, Gísla-
dóttir, bónda í Mjóafirði, Eyjólfs-
sonar, og Halldóru Eyjólfsdóttur,
ljósmóður í Mjóafirði. Móðir Jó-
hanns var Dagbjört Eyjólfsdóttir,
bónda í Keldudal í Skagafirði,
Gunnlaugssonar, og konu hans,
Þórönnu Magnúsdóttur, bónda á
Starrastöðum, Magnússonar.
Halldór og Ingigerður, kona Þor-
steins Þórðar, voru systkini. Börn
Halldórs og Lilju eru: 1) Aðal-
steinn, kaupmaður og síðar
bóndi, f. 10.4. 1921, d. 13.8. 1998,
maki: Auður Bjarnadóttir hús-
móðir, f. 25.6. 1926. Þeirra börn
eru Hlín, f. 27.4. 1946, meina-
tæknir, Hákon, f. 22.7. 1947,
vatnalíffræðingur, maki: Signý
Gestsdóttir, f. 17.4. 1945, María,
f. 13.12. 1948, læknaritari, maki:
Brynjar Júlíusson, f. 25.1. 1948,
Lilja, f. 3.11.1951, hjúkrunarfæð-
ingur, maki: Einar Þórarinsson, f.
23.3. 1949, og Bjarni, f. 9.11.
1956, verslunarmaður, maki: Sig-
urborg Hákonardóttir, f. 28.8.
1961. 2) Gunnur Nikólína hús-
móðir, f. 9.12. 1926, maki: Gunnar
Davíðsson, bifreiðarstjóri og
kaupmaður, f. 23.7. 1923. Þeirra
börn eru Lilja Dóra, f. 22.5. 1948,
lyfjatæknir, maki: Ingibergur El-
íasson, f. 6.11. 1946, Rúnar Már, f.
16.3. 1957, framkv.stj., sambýlis-
kona: Aldís Stefánsdóttir, f. 31.5.
1963, Víglundur Jón, f. 29.12.
Elsku amma. Nú hefur þú fengið
hvíldina sem þú þráðir orðið og tal-
aðir oft um síðustu árin þín. Marg-
ar góðar minningar eigum við
systkinin frá sumarferðum okkar
til ömmu og afa á Norðfjörð. Sum
okkar fengu að dvelja allt sumarið
hjá ykkur og fóru meira að segja í
síldarsöltun á þeim gömlu, góðu ár-
um. Minnisstætt er okkur öllum
hve gaman var að fylgjast með
samspili afa og ömmu. Þau höfðu
mjög ólíkt skap og var afi alveg ein-
staklega stríðinn. Oft hætti hann
ekki fyrr en amma var komin upp á
háa c-ið. Þá skemmti afi sér vel og
auðvitað hló hún að þessu öllu sam-
an. Við minnumst allra ferðanna
þeirra til okkar í Eyjum. Þá hafði
afi með sér kvikmyndavélina sína
og ennþá hlæjum við að því hvað afi
var nákvæmur. Auðvitað þurfti að
mynda alla stórfjölskylduna –
mömmu, pabba og ungana sjö. Þá
var labbað í halarófu eftir verönd-
inni og oft mátti sjá óþolinmæði á
litlu andlitunum, því við þurftum að
labba aftur og aftur þar til afi var
ánægður með árangurinn.
Við munum líka vel eftir brids-
kvöldunum í Heiðarbýli, en þá var
líf og fjör hjá ömmu og afa. Eitt það
skemmtilegasta sem þau gerðu var
að spila brids. Við kölluðum þetta
stundum heilögu kvöldin í Heiðar-
býli.
Elsku amma. Þú þurftir mikið að
hafa fyrir lífinu eins og fólk af þinni
kynslóð, en eitt var það sem alltaf
var til nóg af hjá ömmu og afa, það
var hjartahlýjan sem sýndi sig best
í því að þau sáu um Jónínu móður
ömmu um skeið. Einnig fluttu inn á
heimili þeirra Víglundur faðir
ömmu og Jónína seinni kona hans.
Eyjólfur bróðir afa dvaldi hjá þeim
alla tíð og einnig Katrín móðir afa,
hún bjó hjá þeim til ársins 1935.
Auk þess var amma alltaf með kost-
gangara til margra ára og þótti
okkur krökkunum þetta svolítið
kynlegir kvistir, en allt voru þetta
ágætis menn og okkur góðir. Einnig
vann amma oft utan heimilis og í
frístundum saumaði hún og prjón-
aði. Eru mörg falleg verk til eftir
hana. Alltaf á jólunum fengu barna-
börnin og barnabarnabörnin fallega
sokka og vettlinga í jólagjöf sem
amma hafði prjónað. Var barnahóp-
urinn svo stór að hún byrjaði strax
eftir jól að prjóna fyrir næstu jól.
Þau eru ekki svo mörg árin síðan
hún gat þetta ekki lengur.
Við fundum líka vel hvað ömmu
hrakaði þegar hún gat ekki lengur
gert neina handavinnu.
Amma var búin að dvelja á
Hrafnistu í Hafnarfirði yfir 20 ár og
þar leið henni afskaplega vel. Talaði
hún oft um hvað allir væru henni
góðir og hve vel væri hugsað um þá
sem þarna væru. Viljum við þakka
öllu þessu frábæra fólki fyrir þá
hlýju og vinsemd sem þau sýndu
ömmu okkar alla tíð.
Elsku amma, þá ertu komin til
afa og má mikið vera ef hann er
ekki farinn að stríða þér pínulítið.
Nú vitum við að þér líður vel og þú
ert ánægð á nýjum stað. Elsku
mamma, Lína og Víglundur, ykkur
vottum við okkar innilegustu sam-
úð.
Bless, elsku amma, sjáumst síðar.
Börn Ingu og Hjörleifs,
Vestmannaeyjum.
LILJA
VÍGLUNDSDÓTTIR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
7
8
#
$
)
$
#3
3
3
8G
F;6 *' )
<H
(*!2
=
1/
2!6
5$
/
3
&
#*%.))!
&
8 *I&*%.))! ! *
5.
&**+
&&( )
8 *I&**+ !&&
3+&0
%%
8 *I&*%.))! &
! **+
8 *I&**+
+
' '$ 2
/
#
D
#
#
)# +
)3
3
4'
0
0**+
3 !*)
0*%.))! 2