Morgunblaðið - 31.03.2001, Blaðsíða 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2001 35
Útsölumarkaður
GK REYKJAVÍK
er í fullum gangi á Skúlagötu 17
útsölumarkaðurinn er opinn
alla daga vikunnar frá kl. 12–18
herrafatnaður-dömufatnaður-skór-barnaskór-efni
Reykjavik Collection
Valentiono Jeans
Helmut Lang
Day
Bruuns Bazaar
Calvin Klein
Base
Ahler
Whistles
Minus
Reiss
Jigsaw
pom’dap
fluxa
SÝNING á listaverkum, sem
vísa í skírnina, Og sjá, himn-
arnir opnuðust þegar Jesú
Kristur skírðist, verður opnuð
í Grafarvogskirkju í dag, laug-
ardag, kl. 17. Sýningin hefur
yfirskriftina Og sjá, og munu
fimm listakonur vinna með
táknmál skírnarinnar í verkum
sínum. Dröfn Guðmundsdóttir,
myndhöggvari, sýnir skírnar-
font úr gleri, messing og stein-
steypu. Freyja Önundardóttir,
málari, sýnir stórt olíumálverk,
Gunnhildur Ólafsdóttir, grafík-
listamaður, sýnir tveggja
metra há grafíkverk, Hrönn
Vilhelmsdóttir, textíllistamað-
ur, sýnir stólur og skírnarkjóla
og Soffía Árnadóttir, leturlista-
maður, sýnir sandblásinn texta
í gleri.
Allar hafa listakonurnar
unnið að myndlist og hönnun í
um áratug, haldið einkasýning-
ar og tekið þátt í samsýning-
um.
Sýningin stendur út maí og
er opin á sama tíma og kirkjan.
List og trú
í Grafar-
vogskirkju
UPPHAF valdaferils nefnist á
íslensku kvikmyndin sem sýnd
verður í bíósal MÍR, Vatnsstíg
10, á sunnudag, kl. 15. Myndin
er rússnesk frá áttunda ára-
tugnum, byggð á fyrri hluta
skáldsögu Alexeis Tolstoj um
Pétur mikla sem komið hefur
út í íslenskri þýðingu.
Í myndinni segir frá því er
Pétur tekur ungur við keisara-
tign og lýsir síðan atburðum á
fyrstu valdaárum hans. Kom-
inn til valda setti Pétur sér
strax það aðaltakmark að vinna
Rússum aðgengi að opnu hafi
og síðan að efla kaupskipaflot-
ann og þjálfa menn til siglinga.
Leikstjóri myndarinnar er
Sergei Gerassimov. Í aðalhlut-
verkum eru Dmitrí Zolotúkhín,
Tamara Markova, Natalja
Bondartsúk, Nikolaj Jermenko
og Olga Strzhova.
Skýringar á ensku. Aðgang-
ur er ókeypis.
Pétur mikli
í MÍR
MÝVATNSSVEIT: Vetur,
sumar, vor og haust, nefnist
sýning Sólveigar Illugadóttur
myndlistarkonu, sem hún opn-
ar í Veislugalleríi í Listhúsinu í
Laugardal í dag, laugardag, kl.
16. Á sýningunni eru 20 olíu-
málverk. Þetta er 15. einkasýn-
ing Sólveigar en hún hefur
einnig tekið þátt í samsýning-
um.
Sýningin er opin alla daga,
nema sunnudaga, kl. 9–19.
Henni lýkur 30. apríl.
Málverk úr
Mývatnssveit
NÚ stendur yfir kvikmyndahá-
tíðin Kvikar myndir í MÍR-
salnum og Norræna húsinu. Yf-
irskrift hátíðarinnar er Pólitík.
Laugardagur
Norræna húsið: Opið kl. 14–
18. Loft: Frjáls flokkur. Gólf:
Áróðursmyndir kl. 15. Ýmsir
titlar. Í Gryfju verða sýndar
heimildamyndir. Kl. 14: Titicut
Fllies eftir Fredrick Wiseman.
Kl. 15.30: Painters Paintings
eftir Emile De Antonio.
MÍR-salurinn: Kl. 20 verður
sýnd franska/japanska kvik-
myndin Hirosima Mon Amour,
frá 1959, eftir Alain Resnais. 90
mín.
Kvikar
myndir
SJÖTUGASTA sýning á verkinu
Sjeikspír eins og hann leggur sig
verður í kvöld, laugardagskvöld,
kl. 20. Leikfélag Íslands frum-
sýndi verkið fyrir rúmu ári í Iðnó
en sýningin var flutt í Loftkast-
alann sl. sumar.
Sjeikspír eins og hann leggur
sig tekur 97 mínútur í flutningi.
Þar er farið á hraðferð í gegnum
öll verk skáldsins Williams Shake-
speares.
Með helstu hlutverk fara Hall-
dór Gylfason, Halldóra Geirharðs-
dóttir og Friðrik Friðriksson.
Morgunblaðið/Þorkell
Halldór Gylfason og Halldóra Geirharðsdóttir í hlutverkum sínum.
Sjeikspír
í 70. sinn
ÞORFINNUR Guðnason er eng-
inn venjulegur heimildarmynda-
gerðarmaður. Hann er vandvirkur,
þolinmóður og einstaklega fundvís
á forvitnileg umfjöllunarefni af öll-
um gerðum og stærðum dýrarík-
isins. Fjallar af sömu nákvæmninni
og mátulegu fjarlægð um mýs og
menn. Landsfrægur fyrir minnis-
stæðar heimildarmyndir, nánast
fjölskyldumyndir, af villtum dýrum
í okkar fátæklega lífríki. Þær eru
með því besta sem gert hefur verið
á því sviði.
Nú færir Þorfinnur sig dulítið of-
ar í fæðukeðjunni og beinir linsum
sínum að mannlífsflórunni. Staldrar
við þar sem flestir hraða sér
framhjá. Gægist undir mannlífs-
teppið, virðir fyrir sér það brot af
þjóðfélaginu sem flestir sópa þang-
að undir í umræðunni. Fjallar um
rónana, smákrimm-
ana, utangarðsmenn-
ina sem flest okkar
látumst ekki vita af.
Þeir eru þarna engu
að síður, í sinni sjúsk-
uðu neðanjarðarver-
öld, með sínum eigin
lögmálum, persónum
og leikurum. Ástandið
er e.k. þegjandi sam-
komulag; Við höfum
hafnað þeim og þeir
okkur.
Samfélag þeirra
sem orðið hafa utan-
gátta í lífsbaráttunni
er skrautlegt, þar æg-
ir saman öllum manntegundum
sem eiga það sameiginlegt að hafa
ekki fundið rétta taktinn í lífsdans-
inum. Meginviðfangsefni og titil-
persóna Lalla Johns, er fimmtugur
Íslendingur. Stæðilegur náungi
sem minnir, með ábúðarmikinn
hattinn á kollinum, tvíræðan svip
og hvöss, vakandi augu, á leikara í
aukahlutverki í vestra. Vafasaman
en ekki alvondan félaga hetjunnar;
sögupersónu sem gjaranan er fórn-
að fyrir hlé.
Þorfinnur rakst á
Lalla Johns af tilvilj-
un, fyrir fimm árum.
Síðan hefur hann
fylgst með og filmað
öldurót lífsbaráttu
mannsins, í stíl,
kenndum við Cinema
verité. Eitt kunnasta
dæmið um slík vinnu-
brögð er myndaröðin 7
Up, þar sem breski
kvikmyndaleikstjórinn
Michael Apted hefur
fylgst með hópi nokk-
urra Englendinga frá
7 ára aldri til fullorð-
insára, og sent frá sér
niðurstöðurnar á sjö ára fresti í 28
ár. Líf Lalla er einn óslitinn
tröppugangur. Myndin hefst 1997.
Lalli Johns (eftirnafnið dregið af
vörumerki utanborðsmótora), er
nýkominn úr haldi. Nú á ekki að
stíga feilspor, byrja nýtt líf. Hann
er enginn stórglæpamaður, heldur
dæmigerður, íslenskur smákrimmi
sem stelur sér til viðurværis. Er
búinn að gjalda fyrir óreiðuna með
17 árum ævi sinnar, af síðustu 30.
Undir yfirborðinu býr greinilega
góð sál, orðin hrjúf og ytra byrðið
skrápkennt eftir veraldarvolk síð-
ustu áratugina. Lalli hefur sinn
sjarma. Hann er kotroskinn, glað-
beittur og hress nagli, enn eimir
talsvert eftir af góðum húmor sem
hjálpar honum í gegnum helvíti
dagsins. Hann hefur umtalsvert
sjálfsálit: „Ég er flottur,“ segir
hann. Það er ódrepandi sannfær-
ingarkraftur í röddinni. „Ég er
ekki hræddur við neitt – nema
sjálfan mig.“ Brynjaður slíkum
kjarnorkuvopnum og krónísku
kæruleysi, er Lalli Johns langt frá
því að gefast upp. Frekar er hann
aðalborinn víkingur undirmáls-
mannanna.
Þorfinnur eltir brokkgengt við-
fangsefnið með handhelda mynda-
vélina um allar trissur, frá ýmsum
sjónarhornum. Lalli kemur víða við
þegar sá gállinn er á honum, hjá
háum sem lágum. Lengst af að
reyna að kría út aur og húsaskjól
úr kerfinu. Gengur misvel. Síðan
hellist ógæfan yfir. Brennivín, hass
og önnur vímuefni verða manninum
að fótakefli. Keisarinn og Hraunið.
Alltaf sami vítahringurinn. Þorfinn-
ur fangar hann sjálfsagt nákvæm-
lega einsog hann er klæddur. Í
myndarlok höfum við kynnst sér-
stökum einstaklingi, annars hefði
þessi ófrávíkjanlegi hluti af Íslandi
í dag verið afskrifaður með öllu
undir teppinu. Manni sem hefur
fengið okkur til að hlæja og finna
til. Sterkan að sínu leyti, hann hef-
ur fundið sín ráð við að bugast ekki
í endalausri ógæfu daganna, öm-
urlegu lífsmunstri sem hann er
ekki bógur til að breyta. Lalli er í
þeim þrönga hópi sem kann ekki
fótum sínum forráð, hann er og
verður fastur þáttur í mannlífinu.
Hvað sem tautar og raular.
Lalli Johns er snjöll mynd, blæ-
brigðarík, óvenjuleg, fræðandi,
dramatísk, jafnt sem full af kol-
svörtum húmor. Hún skipar sér á
sess með Kúreka norðursins, í há-
sæti íslenskra heimildarmynda. Á
skilið metaðsókn fyrir vönduð
vinnubrögð, dæmalausa, skoplega
en jafnframt miskunnarlausa inn-
sýn í annan heim sem reynt er að
þegja í hel og stroka út íbúana.
Eftir 90 mínútur höfum við fengið
að sjá portrett af einum þeirra
sárafáu kynlegu kvista sem enn
skrimta í þessu landi allsnægtanna.
Sennilega eru þeir best geymdir í
spíra.
Lífsrimma
Lalla Johns
KVIKMYNDIR
H á s k ó l a b í ó
Leikstjóri, handritshöfundur og
klipping Þorfinnur Guðnason. Tón-
list Miðnes. Lög e. Kamarorghest-
ana og Einar Vilberg. Kvikmynda-
tökustjórn Þorfinnur Guðnason,
Sigvaldi Kárason, Guðbergur Dav-
íðsson. Hljóðhönnun Þorbergur Á.
Erlingsson. Hljóðklipping Valgeir
Ísleifsson. Framkvæmdastjóri
Bryndís J. Gunnarsdóttir. Sýning-
artími 90 mín. Íslensk heimild-
armynd. Birta, Villingur, og Guð-
bergur Davíðsson. Árgerð 2001.
LALLI JOHNS 1 ⁄2
Sæbjörn Valdimarsson
Lalli Johns