Morgunblaðið - 31.03.2001, Síða 41

Morgunblaðið - 31.03.2001, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2001 41 Skálholti Íslandslýsingu á latínu, og kom hún út á prenti árið 1666. Þar tekur biskup skýrt fram að engar rottur finnist á Íslandi, hins vegar mergð af músum. Frá 18. öld er aft- ur á móti Íslandslýsing Eggerts Ólafssonar reist á landkönnun þeirra Bjarna Pálssonar á árunum 1752–57. Eggert segir aðeins frá rottum á einum stað á Íslandi, undir Jökli á Snæfellsnesi, þangað sem þær hafi borist nýlega með skipi sem hafi strandað undan Rifi. Eggert notaði latínuheiti sem á við svar- trottuna (Rattus rattus), en Bjarni Sæmundsson náttúrufræðingur ef- aðist um að það væri rétt greining hjá honum, enda hefði svartrotta lík- lega aldrei orðið landlæg á Íslandi. Þegar Bjarni lýsti spendýralífi Ís- lands í bók árið 1932 hélt hann því fram að fyrst hefði orðið vart við brúnrottur þar á 19. öld, og hafi þær síðan verið að breiðast út um landið, einkum við sjávarsíðuna. Þetta kemur vel heim við þá hug- mynd sem ég hef fengið af samtölum við fólk. Til dæmis má taka að móðir mín var fædd árið 1896 og alin upp frá bernsku á Gýgjarhóli í Bisk- upstungum, í einni þeirra byggða sem fjærst eru sjó. Hún sagðist aldr- ei hafa séð rottu fyrr en hún var orð- in húsmóðir á fertugsaldri í Efstadal í Laugardal. Ég efast um að rottur hafi almennt breiðst út um sveitir landsins fyrr en farið var að flytja þangað kornmat á vörubílum. Til eru þeir sem efast um að það standist að Ísland hafi verið rottu- laust á miðöldum. Ástæðan er eink- um sú að löngum hefur verið haldið fram að pestin, sem stundum er köll- uð svarti dauði, hafi borist á milli manna með rottuflóm, og faraldrar sem varla geta verið annar sjúkdóm- ur gengu vissulega um landið á 15. öld. Sú fyrri gekk um allt land, að sagt er, á árunum 1402–04, sú síðari um allt land nema Vestfirði 1494–95. En í raun er hægt að skýra gang pestarinnar með öðru móti; hún á til að berast með öðrum flóarteg- undum, sem þurfa ekki rottur til að lifa á, og hún getur líka borist sem lungnasjúkdómur sem smitast beint frá manni til manns. Rökin til að halda að miðaldaplágan hafi borist með rottuflóm eru í raun engin önn- ur en þau að mannskæður kýla- pestarfaraldur sem kom upp í Kína og Indlandi á síðasta áratug 19. ald- ar reyndist smitast með þessum hætti. Það var uppgötvað eftir margra ára rannsóknir, en fram að þeim tíma hafði engum manni dottið í hug að tengja pestina við rottur eða flær þeirra. Afar veik rök eru til að halda að miðaldaplágan hafi yfirleitt borist um Evrópu með rottum og flóm, og útilokað að svo hafi verið á Íslandi. Þannig er til dæmis vandséð hvernig rottur áttu að komast yfir stórfljót og fjallvegi svo fljótt sem pestin barst vissulega. Það styður enn fremur þá skoðun að Ísland hafi verið rottulaust á mið- öldum að engin rottubein hafa fund- ist í fornleifum frá þeim tíma, og rottur eru aldrei nefndar á Íslandi í íslenskum fornritum. Orðin sem seinna voru notuð um þessi dýr, rotta og valska, koma ekki fyrir í fornum textum íslenskum. Í einni konungasögu, Knýtlinga sögu, segir frá atburði austur við Eyrarsund, „at þar kómu inn mýss margar valskar. Þær váru miklu stærri en menn hefði fyrr sét.“ Þarna er sýni- lega gert ráð fyrir að rottur séu ókunnuglegar, jafnvel Dönum sem voru þarna á ferðinni. Heimildir: Bjarni Sæmundsson: Spendýrin (Mamm- alia Islandiæ). Reykjavík 1932. Eggert Ólafsson: Vice-Lavmand Eggert Olafsens og Land-Physici Biarne Povelsens Reise igiennem Island, foranstaltet af Vid- enskabernes Selskab i Kiøbenhavn I. Sorøe 1772. Gunnar Karlsson: „Plague without Rats: the case of fifteenth-century Iceland.“ Journal of Medieval History XXII (1996), 263–84. Gunnar Karlsson og Helgi Skúli Kjart- ansson: „Plágurnar miklu á Íslandi.“ Saga XXXII (1994), 11–74. Íslenzk fornrit XXXV. Danakonunga sög- ur. Bjarni Guðnason gaf út. Reykjavík 1982. Norse and Later Settlement and Sub- sistence in the North Atlantic. Ed. by Christopher D. Morris and D. James Rack- ham. Glasgow 1992. Þórður Þorláksson: Ísland. Stutt landlýs- ing og söguyfirlit. Ljósprentun frumútgáf- unnar í Wittenberg 1666, ásamt íslenzkri þýðingu. Reykjavík 1982. Gunnar Karlsson, prófessor í sagnfræði við HÍ. Morgunblaðið/Þorkell Ísilögð Reykjavíkurtjörn. Njálsgötu 86, s. 552 0978 Handklæði með nafni 1.500 kr.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.