Morgunblaðið - 31.03.2001, Síða 8

Morgunblaðið - 31.03.2001, Síða 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 31. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Námskynning 2001 Níu háskólar kynntir NÁMSKYNNINGfyrir nám á há-skólastigi verður á morgun í húsnæði Há- skóla Íslands í Odda og aðalbyggingu frá kl. 13 til 17. Halldóra Tómadóttir ,kynningarfulltrúi HÍ, hefur haft umsjón með þessari námskynningu, hún var spurð um um- fang hennar. „Það eru níu háskólar sem kynna þarna starf- semi sína, þeir eru starf- ræktir í Reykjavík, á Ak- ureyri, á Bifröst og á Hvanneyri.“ – Sýnir reynslan að mikil þörf sé á svona kynningu? „Já, sérstaklega eftir að háskólarnir urðu svona margir. Kynningunni er ekki aðeins beint að nýstúdent- um heldur öllum sem hafa áhuga á háskólanámi. Námsráðgjöf HÍ verður einnig á kynningunni og mun fólk geta leitað til hennar og fengið ráð um námsval.“ – Hvaða níu háskólar kynna starfsemi sína á morgun? „Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn í Reykja- vík, Kennaraháskóli Íslands, Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri, Listaháskóli Íslands, Tónlistarskólinn í Reykjavík, Tækniskóli Íslands og Við- skiptaháskólinn á Bifröst.“ – Hvernig er námskynning- unni háttað? „Hver háskóli og deildir innan þeirra koma með kynningarefni, bæði bæklinga og dreifirit. Auk þess verða kennarar og nem- endur frá öllum deildum og geta svarað spurningum og svo eru margir skólar sem verða með tæknivædda sýningu, þ.e. mynd- bönd, tölvur. Þetta er ekki að- eins prentuð kynning heldur einnig myndasýning. Svo hafa skólarnir uppfært heimasíður sínar og getur fólk farið heim og skoðað þar í tölvunni sinni nánar það nám sem til boða stendur í hverjum og einum skóla. Gerð var heimasíða í sambandi við þessa kynningu þar sem hægt erað komast inn á heimasíður allra skólanna. Sú heimasíða hefur vefslóðina www.nams- kynning.is“ – Hvaða kosti hefur svona kynning? „Meginkosturinn er að kenn- arar komast í bein tengsl við til- vonandi nemendur sem geta spurt og fengið svör um tilhögun alls konar námsgreina. Þótt fólk lesi kennsluskrár þá kemur ekki allt þar fram og þá er gott að geta spurt. Kynntar verða um 122 námsleiðir“ – Er mikið um að fólk sé mjög óvisst um hvað það vill taka sér fyrir hendur í komandi námi? „Já. Fjölbreytnin er orðin slík að það er nauðsynlegt að sjá hvað er í boði til þess að geta at- hugað alla möguleika. Þeir sem eru t.d. hér í Reykja- vík vita kannski ekki hvað er að gerast á Akureyri, á Bifröst eða á Hvanneyri. En á kynningunni á morgun verða fjórir til fimm kennarar og nemendur frá hverjum skóla sem kynna starfsemina sem þar fer fram.“ – Er mikið um að vera í ís- lensku háskólalífi? „Það er greinilega mikil gróska í íslensku háskólalífi og mikill metnaður hjá háskólunum til að gera vel og fara nýjar leið- ir. Ýmsar nýjar brautir eru að hefja starfsemi og má þar nefna upplýsingadeild við Háskólann á Akureyri, upplýsingatæknideild tók til starfa fyrir skömmu við Tækniskólann, táknmálsfræði er ný grein sem kennd er við Há- skóla Íslands, viðskiptalögfræði verður nú kennd við Við- skiptaháskólann á Bifröst. Há- skólinn í Reykjavík ætlar að auka umfang starfsemi sinnar og þannig mætti lengi telja.“ – Verða námsmöguleikar er- lendis kynntir á morgun? „Alþjóðaskrifstofa háskóla- stigsins og Fulbright-stofnunin verða með kynningu á þeim möguleikum sem bjóðast nem- endum sem vilja taka hluta af námi sínu erlendis. Samband ís- lenskra námsmanna verður einnig með kynningu. Stúdenta- ráð verður og með upplýsinga- miðlun, svo og Félagsstofnun stúdenta sem veitir upplýsingar um íbúðir fyrir námsmenn og at- vinnumiðlun fyrir námsmenn. Þá verða gefnar þar upplýsingar um dagvist fyrir börn náms- fólks.“ – Er háskólanám nægilega mikið í umræðunni í fjölmiðlum yfirleitt að þínu mati? „Það mætti vera meira. Það mætti líka gera almenningi ljós- ari grein fyrir hvað háskóla- menntun af ýmsu tagi felur í sér og til hvers hún er.“ – Er háskólasamfélagið þá of einangrað í samfélaginu? „Það hefur kannski verið það en háskólarnir hafa markvisst aukið tengsl sín við atvinnulífið, auk þess sem þeir sjá vinnumarkaðinum fyr- ir hæfum starfskröft- um. Ég held að há- skólarnir séu að reyna að ná betur til al- mennings og sýna fram á að háskólanám er ekki annað en eðlilegur hluti af lífi í nútímasamfélagi. Ungu fólki stendur stundum ógn af háskólum, halda að þetta séu gamlar og rykfallnar stofnanir þar sem einstaklingurinn missir völdin í eigin lífi en þannig eru nútímaháskólar ekki, þar fer fram blómlegt starf og félagslíf. Halldóra Tómasdóttir  Halldóra Tómasdóttir fæddist í Reykjavík 1967. Hún lauk stúd- entsprófi frá Verslunarskóla Ís- lands 1987. Hún tók BA-próf í ís- lensku frá Háskóla Íslands 1993 og BA-próf í dönsku tók hún frá Kaupmannahafnarháskóla 1999. Hún hefur starfað m.a. hjá Þjóð- arbókhlöðunni og er nú kynning- arfulltrúi hjá Háskóla Íslands. Halldóra er gift Úlfari Trausta Þorvaldssyni sölumanni og ráð- gjafa. Háskólarnir hafa mark- visst aukið tengsl sín við atvinnulífið ÍSLENSKIR lýtalæknar fara eftir alþjóðlegum stöðlum sem heimila notkun sílikons í brjóstafyllingar og er innflutningur á efninu sam- kvæmt þessum stöðlum. Þórir Har- aldsson, aðstoðarmaður heilbrigð- isráðherra, sagði sílikonnotkunina bundna samþykktum Evrópska efnahagssvæðisins um þau lækn- ingatæki og lækningavörur sem notuð væru í löndum svæðisins. „Það gilda strangar samhæfðar reglur á Evrópska efnahagssvæð- inu sem við förum eftir líkt og aðr- ar Evrópuþjóðir,“ sagði Þórir en Katrín Fjeldsted, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, hefur gagnrýnt notk- un sílikons í brjóstafyllingar þar sem slíkt hefur verið bannað víða erlendis. Þórir svaraði þeirri gagn- rýni þannig að á meðan Evrópu- staðlarnir væru með þeim hætti sem nú er yrði bann við notkun sílikonfyllinga á Íslandi klárlega metið sem viðskiptaþvingun og því yrði þarafleiðandi ekki komið á hér á landi. Aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra um sílikonfyllingar Bann yrði metið sem viðskiptaþvingun Skítt með krónuræfilinn, sjáðu bara um að dýrið gangi ekki laust, Birgir minn.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.