Morgunblaðið - 31.03.2001, Page 22

Morgunblaðið - 31.03.2001, Page 22
AKUREYRI 22 LAUGARDAGUR 31. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fulltrúakjör á ársfund ASÍ Samkvæmt lögum Einingar-Iðju fara kosningar fulltrúa fé- lagsins á ársfund Alþýðusambands Íslands fram að við- hafðri allsherjaratkvæðagreiðslu í samræmi við reglugerð ASÍ um slíkar kosningar. Félagið hefur rétt til að senda 10 fulltrúa á ársfundinn, sem haldinn verður á Hótel Loftleiðum í Reykjavík dagana 28.- 29. maí 2001. Framboðslistum eða tillögum um fulltrúa til þessa ársfund- ar, þar sem tilgreind eru nöfn aðalfulltrúa í samræmi við framanskráð og jafn margra til vara, ber að skila á skrif- stofu félagsins á Skipagötu 14, Akureyri, eigi síðar en kl. 12 á hádegi mánudaginn 9. apríl 2001. Hverjum framboðs- lista skulu fylgja meðmæli 80 fullgildra félagsmanna. Akureyri 29. mars 2001. Stjórn Einingar-Iðju SÓKNARPRESTUR Gríms- eyinga, séra Magnús Gunnarsson, prestur á Dalvík, lagði á sig sjö tíma siglingu til og frá Dalvík til að fara yfir boðskap páskanna með skólabörnunum í Grunnskól- anum í Grímsey. Séra Magnús kom í skólann rétt um hádegisbil eftir sjóferð í þungri undiröldu. Meðan Magnús kenndi skóla- börnunum brast á bylur og er Sæ- fari lagði frá Grímsey sást ekki í heiðgula ferjuna í sortanum. En boðskapur páskahátíðarinnar komst til skila – þökk sé séra Magnúsi. Sóknarpresturinn heimsótti skólabörn í Grímsey Var sjö tíma á sjó Morgunblaðið/Helga Mattína Sr. Magnús Gunnarsson með skólabörnum í Grímsey. NÝR leikskóli, Iðavöllur, verður formlega opnaður í dag, laugardag, en börnin fluttu inn í leikskólann sinn nú fyrr í vikunni. Húsið er nýtt og reisulegt en það var byggt á grunni gamla Iðavallar sem orðinn var úr sér genginn og lúinn. „Þetta er í alla staði afar vandað og glæsilegt hús og það eru allir mjög ánægðir með að vera komnir hingað inn,“ sagði Kristlaug Svav- arsdóttir leikskólastjóri. Hún sagði að í húsinu væri afar skemmtileg birta, vinnuumhverfið væri þægilegt og andrúmsloftið gott. Húsið, sem er um 650 fermetrar að stærð, býður upp á 90 rými og er þar um að ræða umtalsverða fjölgun frá því sem áður var á Iðavöllum, en þar voru 24 rými. Nokkur biðlisti hafði orðið til á meðan þetta milli- bilsástand varði og unnið var við byggingu leikskólans, en nú strax eftir helgi verða tekin inn 22 ný börn á leikskólann. „Við byrjum á því að hafa þau hér í hópaaðlögun, það hefur verið reynt áður og gefist vel,“ sagði Kristlaug. Á meðan leikskólinn var í bygg- ingu voru börnin í húsnæði í Gler- árkirkju en þau fluttu öll formlega með dótið sitt fyrir í vikunni. „Það var alveg ágætt að vera í kirkjunni, en auðvitað þykir okkur mjög gott að vera núna komin heim,“ sagði Kristlaug. Flest barnanna búa á Oddeyri, þannig að nú er mun styttra að fara í leikskólann en áður þegar farið var á milli bæjarhluta. Iðavöllur skiptist í fjórar deildir en þær heita, Jötunheimur, Þrym- heimur, Glaðheimur og Álfheimur. Kristlaug sagði að það hefði ekki vafist lengi fyrir börnunum að læra þessi nýju nöfn sem uppruna sinn eiga í goðafræðinni. „Við vorum í fyrstu hrædd um að þau næðu ekki þessum erfiðu nöfnum, en raunin var önnur, þau voru fljót að læra þau.“ Um 30 manns starfa á Iðavöllum þegar allt er talið. Nýr og stærri Iðavöllur risinn Morgunblaðið/Kristján Nýja húsnæði leikskólans Iðavallar á Akureyri er hið glæsilegasta og verður tekið formlega í notkun í dag. Börnin fluttu inn í húsnæðið fyrr í vikunni og una hag sínum vel. GÖNGUDEILD sem starfar í tengslum við geðdeild Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri hefur ver- ið opnuð í húsnæði þar sem barna- deild FSA var áður, á þriðju hæð í elstu byggingu sjúkrahússins. Elsa Guðmundsdóttir, yfirlæknir á göngudeild, sagði að slík þjónusta hefði ekki áður verið í boði á Ak- ureyri en nú væri bætt úr brýnni þörf. „Með því að opna þess deild komum við á móts við auknar þarfir í samfélaginu fyrir þjónustu af þessu tagi,“ sagði Elsa. Hún sagði að á göngudeildinni yrði komið til móts við þá skjól- stæðinga sem ekki þurfa að leggj- ast inn á legudeildir og eins yrði með tilkomu deildarinnar hægt að útskrifa fólk fyrr af legudeildum og þannig losa um rými sem væru mjög ásetin þar. Húsnæðið þegar of lítið Húsnæðið hefur verið lagað að hinni nýju starfsemi, en það er 3– 400 fermetrar að stærð. Elsa sagði að húsnæðið væri í raun þegar of lítið, því þörfin fyrir þjónustu væri það mikil. Hún sagði að ekki væri endilega víst að um endanlegt hús- næði yrði að ræða, en starfsemin færi nú af stað og það væri fyrir mestu. „Það hefur alltaf vantað þennan þátt inn í geðlæknisþjón- ustuna hér í bænum, þannig að nú verður bætt úr brýnni þörf. Þetta er, ef svo má segja, punkturinn yfir i-ið,“ sagði Elsa. Hún sagði að fyrir væru legu- deild, dagdeild, tvö áfangaheimili, í Álfabyggð og Skútagili, og þá væri athvarfið Lautin starfandi í Þing- vallastræti. „Það er aukin vakning í þjóð- félaginu fyrir þessum málum, fólk er opnara fyrir einkennum geðsjúk- dóma, þekkingin hefur aukist og fordómarnir eru minni,“ sagði Elsa. Göngudeildin verður opin dag- lega frá kl. 8 til 16. Morgunblaðið/Margrét Þóra Starfsfólk göngudeildar, í fremri röð frá vinstri eru Hulda Baldursdóttir deildarstjóri, Guðrún Jóhannesdóttir læknaritari, Jónheiður Kristjánsdóttir mótttökuritari og Elsa Guðmundsdóttir yfirlæknir en í aftari röð eru Þormóður Svavarsson félagsráðgjafi, Rúnar Andrason sálfræðingur, Rögnvaldur Símonarson iðjuþjálfi, Sig- mundur Sigfússon forstöðulæknir og Brynjólfur Ingvarsson geðlæknir. Göngudeild fyrir geðsjúka opnuð hjá FSA FIMM ættliðir í beinan karllegg hittust á dögunum á Seli, hjúkrunar- deild Fjórðungssjúkrahússins á Ak- ureyri. Á myndinni eru f.v. sá elsti Leó Sigurðsson, fæddur 1911, Sig- urður Leósson, fæddur 1934, Sigurð- ur L. Sigurðsson, fæddur 1963, Elv- ar Már Sigurðsson, fæddur 1982 og í fangi hans sá yngsti, Elvar Birgir Elvarsson, fæddur árið 2000. Fimm ættliðir í karllegg Stjórnarkjör Eining-Iðja auglýsir hér með eftir listum eða tillögum um menn í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarráðs fyrir starfsárið 2001-2002 að viðhafðri allsherjaratkvæða- greiðslu. Ber samkvæmt því að skila lista skipuðum formanni, vara- formanni, ritara og gjaldkera ásamt 65 manns í trúnaðar- ráð, tveimur skoðunarmönnum reikninga og einum til vara eða tillögur um menn í eitthvert, einhver eða öll stjórnar- sætin, sem kjósa skal til. Hverjum framboðslista eða til- lögu skulu fylgja meðmæli minnst 80 fullgildra félags- manna. Listum eða tillögum ber að skila á skrifstofu félagsins Skipagötu 14 Akureyri eigi síðar en kl. 1200 á hádegi mánudaginn 9. apríl 2001. Akureyri 29. mars 2001. Stjórn Einingar-Iðju

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.