Morgunblaðið - 31.03.2001, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 31.03.2001, Qupperneq 26
VIÐSKIPTI 26 LAUGARDAGUR 31. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ HAGNAÐUR Kaupfélags Eyfirð- inga á síðasta ári nam 736 millj- ónum króna og er þetta 92% aukn- ing frá fyrra ári. Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að töluverðar breytingar hafi orðið á rekstri þess á árinu. Þar beri hæst að öll hluta- bréf KEA í BGB-Snæfelli hf., sem áður var dótturfélag KEA, hafi í fyrra verið seld í skiptum fyrir hlutabréf í Samherja hf. og það félag sé ekki í samstæðuuppgjöri KEA nú. Auk þessa hafi hlutabréf KEA í Húsasmiðjunni hf. verið seld á árinu. Tekjur og gjöld af eignarhlutum í öðrum félögum hækka úr 559 millj- ónum króna í 1.431 milljón króna milli ára, eða um 872 milljónir króna og er þar aðallega um sölu- hagnað af bréfum í Húsasmiðjunni hf. og BGB-Snæfelli hf. að ræða. Þetta er skýring þess að fjármuna- liðirnir voru mun jákvæðari á síð- asta ári en árið 1999 þrátt fyrir að liðurinn vaxtagjöld, verðbætur og gengismunur hafi verið neikvæður um 950 milljónir króna í fyrra en 483 milljónir króna árið 1999. Inni í þessum lið er gjaldfærsla á 250 milljóna króna tapi af skiptasamn- ingum sem ekki hefur verið lokað. Bæði ytri og innri aðstæður erfiðar Í tilkynningu félagsins segir að á liðnu ári hafi KEA gengið í gegnum einhverja mestu breytingartíma sem orðið hafi í 115 ára sögu félags- ins. Rekstrinum hafi verið skipt upp í sjálfstæð hlutafélög og breyt- ingar oft verið miklar. Samanburð- ur milli ára sé vandmeðfarinn þar sem félagið sé að breytast úr rekstrarfélagi í eignarhalds- og fjármálafyrirtæki. Á þessu ári verði KEA gert upp sem eignarhalds- og fjármálafyrirtæki. „Síðastliðið ár var að mínu mati erfiðasti tíminn í því breytingaferli sem hófst á síðari hluta árs 1998. Þarna á ég bæði við þær breytingar sem snúa að uppbyggingu og inn- viðum félagsins sjálfs og einnig þær ytri aðstæður sem við var að glíma en þær voru okkur erfiðar á ýmsum sviðum. Almennur kostnaður félagsins jókst meira en búist var við auk þess sem hækkanir á vöxt- um og fall krónunnar hafði mikil áhrif á heildarrekstur félagsins. Hið jákvæða er þó að við höfum náð verulegum árangri í rekstri félags- ins á árinu enda hækkar vergur hagnaður samstæðunnar um tæpar 190 milljónir króna,“ segir Eiríkur S. Jóhannsson, kaupfélagsstjóri. Aðalfundur KEA verður haldinn 28. apríl og mun stjórn félagsins leggja til að greiddur verði 10% arður af samvinnuhlutabréfum í B- deild stofnsjóðs. Einnig er lagt til að greiddir verði 4% vextir á stofn- sjóð félagsmanna í A-deild stofn- sjóðs eins og hann hafi verið í árs- lok 2000. Mikill söluhagn- aður hjá KEA &  -  ./                                                        !        "        #   ! $   . *)- . ,++  )+.   0.(  100 , *+, !" ) -0( 0 00- !" * .0 )-03 %&''( (&%()  )*%  +,-  .- '+ '  )&+/* /&.',  +.' ..* )(0%1                           ! "  ! "  ! "        )1 1-  )1 1- ##           BIRGIR Þór Runólfsson, dósent við hagfræðiskor Háskóla Íslands, segir að samkeppnislögin séu ófram- kvæmanleg og þær grunnaðferðir sem Samkeppnisstofnun notar til að mæla markaðsráðandi stöðu ekki eiga sér neinar fræðilegar forsend- ur. Þetta kom fram í máli Birgis Þórs á hádegisverðarfundi Sam- bands ungra sjálfstæðismanna um samkeppnismál, sem haldinn var í gær. Framsögumenn á fundinum auk Birgis Þórs voru Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, og Kolbeinn Kristins- son, framkvæmdastjóri Myllunnar– Brauðs hf. Birgir Þór fjallaði um það í erindi sínu hvort og þá hvaða hagfræði lægi að baki frumvarpi til sam- keppnislaga frá árinu 1993 og frum- varpi til laga um breytingu á sam- keppnislögum sem tóku gildi í desember síðastliðnum. Hann sagði að í greinargerð með frumvörpunum gætti víða ósamræmis og fram kæmu skoðanir sem væru í algjöru ósamræmi við allar hagfræðikenn- ingar og hagfræðirannsóknir. Allt það sem í lögunum snéri að sam- keppni á markaði væri með sama hætti, og lögin væru í raun algjör- lega óframkvæmanleg. Þá gagnrýndi Birgir Þór þær grunnaðferðir sem Samkeppnis- stofnun notar til að mæla markaðs- ráðandi stöðu og sagði þær ekki við- urkenndar innan hagfræðinnar og ekki eiga sér neinar fræðilegar for- sendur. Hins vegar væru þær við- urkenndar meðal samkeppnisstofn- ana víðs vegar um heiminn. Breytingar óhjákvæmilegar Ari Edwald sagði að það væri ekki hlutverk Samkeppnisstofnunar að stýra uppbyggingu íslensks atvinnu- lífs. Hún réðist á frjálsum markaði og stofnunin ætti fyrst og fremst að einbeita sér gegn ólögmætu atferli. Hann sagði að það sem skipti mestu máli væri að bregðast við mis- notkun á markaðsráðandi stöðu, en ekki að banna markaðsráðandi stöðu í sjálfri sér. Þetta hafi verið kjarninn í athugasemdum Samtaka atvinnu- lífsins og flestra annarra samtaka í íslensku atvinnu- og viðskiptalífi við frumvarp til laga að breyttum sam- keppnislögum. „Því miður kusu við- skiptaráðherra og alþingismenn að hundsa þessar athugasemdir alger- lega. Ég tel þessa afgreiðslu slíkan ágalla á lögunum sem nú gilda, að það sé óhjákvæmilegt að gera á þeim frekari breytingar,“ sagði Ari. Samkeppnisráð fór offari Kolbeinn Kristinsson gerði grein fyrir máli samkeppnisráðs gegn samruna Myllunnar–Brauðs og Samsölubakarísins, en samkeppnis- ráð tapaði málinu hjá áfrýjunar- nefnd samkeppnismála. Kolbeinn sagði að raunin væri sú að samruninn hefði enginn áhrif haft á kjör viðskiptavina Myllunnar– Brauðs. Frá samruna félagana þar til í dag hefði verð á framleiðsluvör- um Myllunar–Brauðs hækkað í tví- gang, eða samtals um 7,5%, en á sama tímabili hefði vísitala neyslu- verðs hækkað um 11,8%. Samein- ingin var framkvæmd seint á árinu 1998 og sagði Kolbeinn tap Myll- unnar–Brauðs á því ári hafa verið 17 milljónir króna, en hagnað ársins 1999 verið um 62 milljónir. Veltan hefði hins vegar verið svipuð bæði árin. „Hér var engin slík hætta á ferð, og fór samkeppnisráð offari í þessu máli sem og í mörgum öðrum mál- um. Ef áfrýjunarnefndar nyti ekki við væri skaði úrskurða samkeppn- isráðs verulegur fyrir íslenskt efna- hagslíf og íbúa landsins,“ sagði Kol- beinn. Morgunblaðið/Arnaldur Birgir Þór Runólfsson, dósent við Háskóla Íslands, flytur framsöguerindi sitt á fundi SUS um samkeppnismál. Samkeppnislögin óframkvæmanleg TAP SR-mjöls hf. á síðasta ári nam 799 milljónum króna samanborið við 267 milljóna króna tap árið 1999. Þá er uppleyst skattaleg skuldbinding félagsins frá fyrri ár- um, en sú færsla nemur 128 millj- ónum króna á þessu ári. Skattalegt hagræði vegna taprekstrar árið 2000 er ekki fært til tekna. Fjár- munagjöld félagsins námu 368 milljónum króna en árið 1999 var sambærileg tala jákvæð um 35 milljónir. Breytingin skýrist af mikilli lækkun krónunnar auk þess sem skammtímaskuldir félagsins eru verulega meiri undir lok ársins en í fyrra og félagið því viðkvæm- ara fyrir gengisbreytingum en ella. Vaxtaálag innlendra banka hefur allt að því þrefaldast á tveimur ár- um, að því er fram kemur í tilkynn- ingu til Verðbréfaþings Íslands. Fjárfest í varanlegum rekstr- arfjármunum fyrir 596 millj. Hækkun skulda er tilkomin vegna birgðabreytinga milli ára, en einnig fjárfestinga í dótturfélögum, fjárfestingum í verksmiðjum og eignfærðum endurbótum. Lágt verð afurða á erlendum mörkuðum, hátt orkuverð og lækkun á íslensku krónunni sem varð aðallega á síð- ustu mánuðum ársins er meginor- sök slæmrar afkomu félagsins. Fjárfesting í varanlegum rekstr- arfjármunum á árinu nam 596 milljónum króna á árinu og er meginhluti hennar vegna kaupa á skipi og veiðiheimildum af Útgerð- arfélagi Akureyringa samtals um 458 milljónir króna og fékk Út- gerðarfélagið 120 milljónir króna að nafnverði hlutafjár í SR-mjöli sem endurgjald. Aðrar fjárfesting- ar námu um 138 milljónum króna. Í tilkynningu kemur fram að óvissa ríki á mörkuðum m.a. vegna díoxínumræðu, kúariðu og gin- og klaufaveiki. Verð á mjöli og lýsi hefur þó hækkað að undanförnu. Ekki er fyrirsjáanlegt að olíuverð lækki á næstunni og mun það hafa neikvæð áhrif á rekstur verksmiðja félagsins og skipa þess. „Á fyrstu 3 mánuðum þessa árs er búið að vinnu úr um 147 þúsund tonnum af loðnu. Í fyrra var slegið met í vinnslu á vetrarvertíð, 187 þúsund tonn voru þá unnin. Ljóst er að ef ekki hefði komið til verkfalls hefði verið unnið mun meira magn. Þótt verkfalli hafi verið aflýst eftir nokkra daga, fór mikilvægur tími til spillis, leita þurfti að loðnunni á ný auk þess sem veður hamlaði veiði,“ að því er fram kemur í til- kynningu. Stjórn SR-mjöls gerir ekki til- lögu um greiðslu arðs til hluthafa. Dagsetning aðalfundar hefur ekki verið ákvörðuð. Tap SR-mjöls 799 milljónir         2 23   $ &45                                6$ $           !        "        #   ! $            ) //, )(* ) ()+ /.)  4)/.  1-. 4111 -*.. $ - ,/* - .,) $ 410 ,0 +3 4-00+3 1,/ .&',% '%' )&/(,  ,)*   .,  /. 7,)   )&(%+ )&+/%  ., ,+ '1 7%0%-1 '*/       #             %& '()*         ! "  ! "  ! "        )1 1-  )1 1- ##          
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.