Morgunblaðið - 31.03.2001, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 31.03.2001, Blaðsíða 30
ERLENT 30 LAUGARDAGUR 31. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Nýr sýningarsalur Opið hús í dag kl. 11-16 Við erum á horni Brautarholts og Mjölnisholts, rétt fyrir ofan Hlemm. - persónulega eldhúsið Eldaskálinn Brautarholti 3, 105 Reykjavík S: 562 1420, www.invita.com Invita á Íslandi í 20 ár Ýmis afmælistilboð EITRAÐIR þörungar sem breitt höfðu úr sér við suður- strönd Noregs og drepið þar nærri 1.000 tonn af eldislaxi virðist vera á undanhaldi. „Síðustu mælingar sýna að þörungum er farið að fækka í hafinu á þessu svæði,“ hefur Reuters eftir Olav Lekve, tals- manns Fiskistofu Noregs. Gizk- aði Lekve á, að þörungarnir, sem valda dauða fiska með því að stífla tálknin á þeim, hefðu sl. hálfan mánuð kæft á bilinu 900- 1000 tonn af eldislaxi. Þetta er mesta tjón sem þörungaplága hefur valdið í Noregi til þessa. Fyrra met var sett í maí 1998, þegar um 800 tonn af eldisfiski drápust. Spáði Lekve því að þör- ungabreiðan héldi áfram að skreppa saman á næstu dögum. Gusmao hættir XANANA Gusmao, leiðtogi sjálfstæðishreyfingar Austur- Tímor, hefur tilkynnt að hann hyggist draga sig í hlé frá stjórnmálum og muni ekki verða í fram- boði í kom- andi forseta- kosningum í landinu. Gengið hafði verið út frá því sem vísu, að Gusmao, sem í yfir tuttugu ár var óumdeildur leiðtogi baráttu Austur-Tímorbúa gegn yfirráð- um Indónesíu, yrði kjörinn fyrsti forseti sjálfstæðis Austur- Tímors í kosningum sem fara eiga fram síðar á þessu ári. Margrét prinsessa á sjúkrahúsi MARGRÉT prinsessa, yngri systir Elísabetar Englands- drottningar, hefur misst afl í vinstri hluta líkamans eftir slag sem hún fékk á þriðjudag. Upp- lýsti skrifstofa drottningar þetta í gær. Margrét, sem er sjötug að aldri, hefur nú þrisvar sinnum fengið slag, en hún hefur lengi reykt mikið. STUTT Þörungar á undan- haldi Xanana Gusmao BRESKA verslanakeðjan Marks & Spencer tilkynnti í fyrradag að rekstri allra verslana hennar á meginlandi Evrópu yrði hætt fyr- ir lok ársins. 3.350 starfsmönnum í sjö löndum verður sagt upp störfum. Mikil reiði var meðal starfs- manna Marks & Spencer í Frakk- landi þar sem fyrirtækið hefur rekið átján verslanir, þar af helminginn í París. Starfsmenn þeirra eru alls 1.700. „Ég hef eytt tíu árum í þetta fyrirtæki, hjálp- að því að vaxa. En að lokum sviku Englendingarnir okkur. Þeir studdu okkur ekki og höfðu ekki trú á okkur,“ sagði 29 ára starfskona Marks & Spencer í París. Matvörusala fyrirtækisins hef- ur gengið vel í París en fatn- aðardeildin átt í miklum erf- iðleikum. Nokkur hagnaður var af rekstri verslananna í Frakk- landi árið 1997 en síðan þá hafa þær verið reknar með tapi. Salan minnkaði um tæp 9% á síðasta ári. Viðskiptavinir safnast hér sam- an við lokaðar dyr verslunar Marks & Spencer í miðborg Par- ísar. Versluninni var lokað í gær þegar starfsmönnum hennar var skýrt frá því að rekstrinum yrði hætt. Marks & Spencer lokar verslunum AP BASKNESKA aðskilnaðarhreyfing- in ETA gáfu í gær út viðvörun til evrópskra ferðamanna að þeim væri hollara að halda sig fjarri vinsælum ferðamannastöðum Spánar, þar sem hreyfingin liti á slíka staði sem vett- vang fyrir „vopnaðar aðgerðir“ sín- ar. Í yfirlýsingu frá ETA sem birt var í basknesku dagblöðunum Gara og Egunkaria segir: „ETA vill að þeir sem kjósa að verja orlofs- og frítíma sínum á þessum ferða- mannastöðum viti, að samtökin líta á þessa staði sem vettvang fyrir að- gerðir sínar. Svo að forðast megi óæskilegar afleiðingar mælum við eindregið með því að þeir fari ekki á þessa staði. Þar sem [Spánn] er ferðamannasvæði sem aðallega er sótt af Evrópumönnum er þessari áskorun sérstaklega beint til þeirra.“ Tilkynningin virtist vísbending um, að ETA hyggi á nýja sprengju- tilræðaherferð gegn ferðamannaiðn- aðinum á Spáni. Í yfirlýsingunni gekkst ETA við tilræði sem framið var á hóteli í Katalóníu hinn 17. marz sl., þegar lögreglumaður lét lífið er bílsprengja sprakk í strand- bænum Rosas og önnur daginn eftir í nágrenni Valencia. Í báðum tilvikum var sprengjun- um komið fyrir á ferðamannastöðum í grennd við hótel. Í tilkynningunni viðurkenndi ETA ennfremur að hafa stolið 1.600 kg af sprengiefni úr verksmiðju í Grenoble í Suðaustur- Frakklandi hinn 8. marz sl. Spánarferða- menn varaðir við San Sebastian. AFP. STUÐNINGUR meðal Norðmanna við aðild að Evrópusambandinu (ESB) hefur tekið dýfu að und- anförnu, sam- kvæmt niðurstöð- um nýjustu skoðanakönnunar- innar um þetta efni. Samkvæmt nið- urstöðum könnun- arinnar, sem Op- inion gerði og birtar voru í Aftenposten, eru nú 46,9% þjóð- arinnar fylgjandi inngöngu í ESB en 53,1% á móti. Hefur afstaða Norðmanna til ESB ekki verið nei- kvæðari frá því fyrir þjóðarat- kvæðagreiðsluna um aðildarsamn- inginn í nóvember 1994. Fylgi við ESB-aðild náði hámarki í könn- unum í fyrrasum- ar, 56,1%, en mið- að við niður- stöðuna nú hafa yfir 9% lands- manna skipt um skoðun síðan. Telja stjórnmálaskýrendur senni- legt að umtalið í kring um kúariðu- fárið og gin- og klaufaveikifarald- urinn í ESB hafi orðið til að spilla ímynd þess í hugum margra. Stuðningur við ESB minnkar Skoðanakönnun í Noregi JENS Stoltenberg, forsætis- ráðherra Noregs, hefur lofað, að undir hans stjórn verði öll- um nýjum ríkisstofn- unum komið fyrir úti á landi, að sögn Dags- avisen. Þar að auki verða nokkrar stofnanir fluttar frá Ósló. Norska ríkisstjórnin hefur samþykkt, að hér eftir verði nýjum ríkisstofnunum komið fyrir utan Óslóar, og áætlað er, að við það muni störfum utan höfuðborgarinnar fjölga um mörg þúsund á næstu árum. Auk þess verða nokkrar stofnanir fluttar út á land, til dæmis strandgæslan, sem fer til Álasunds, og rafmagnseft- irlitið, sem verður í Túnsbergi. Kom þetta fram í norskum fjöl- miðlum í gær. Stoltenberg útilokar raunar ekki, að ný störf hjá ríkinu verði til í Ósló, en þá aðeins að vandlega athuguðu máli. Forsætisráðherra Noregs Ný störf hjá rík- inu út á land Jens Stoltenberg KATHLEEN Treanor sagði að sér hefði orðið illt þegar hún las útdrátt úr væntanlegri bók um Timothy McVeigh og sprengjutilræðið í Okla- hómaborg 1995, þegar 168 manns fórust, þ. á m. fjögurra ára dóttir og tengdaforeldrar Treanors. „Þakka ykkur fyrir að gera [McVeigh] að píslarvotti,“ sagði Treanor hæðnislega og beindi orðum sínum til höfunda bókarinnar, tveggja bandarískra fréttamanna. Í viðtölum við þá viðurkenndi McVeigh í fyrsta sinn beinlínis að hafa staðið að sprengjutilræðinu. Hann hefur verið dæmdur til dauða og á að fullnægja dómnum 16. maí nk. Hann segir ennfremur í bókinni að hann hafi enga samúð með fórnar- lömbunum, og sagði að þau 19 börn sem fórust hafi verið „fórnarkostn- aður“. Tilræðið segir hann hafa verið hefnd fyrir aðgerðir bandarísku al- ríkislögreglunnar. „Þessi bók gerir að engu tilgang- inn með því að taka [McVeigh] af lífi,“ sagði Treanor. „Þetta veitir honum þann vettvang sem hann var að leita að.“ Hún hvatti fólk til að kaupa ekki bókina. Faðir McVeighs, Bill McVeigh, ætlar ekki að vera viðstaddur aftöku sonar síns, og vonar að hann láti í ljós iðrun vegna verknaðarins, að því er blaðið USA Today greindi frá í gær. Sagði Bill það samkvæmt beiðni Timothys að hann yrði ekki meðal þeirra sex sem verða vitni að aftökunni. Fordæma bók um McVeigh Oklahóma, Washington. AP, Reuters.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.