Morgunblaðið - 31.03.2001, Page 49

Morgunblaðið - 31.03.2001, Page 49
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2001 49 MÉR hefur borist svofellt bréf sem ég birti með þökkum: „Gísla Jónssyni málræktar- manni frá Skilríkum mönnum. Fyrst viljum við þakka verj- anda Catilínu hlýleg orð, en við vitum að skólabróðir okkar hef- ur alltaf talið Catilínu saklausan og Cicero farið offari í eigin- hagsmunaskyni. Nokkur atriði í ísl. nútímamáli ergja okkur. Til dæmis er sífelld og ónauðsynleg notkun orðsins þjóðfélag. Menn tala um hvað sé sagt og gert „úti í þjóðfélaginu“, eins og þeir sjálfir séu ekki hluti af því. Okk- ur er spurn: hvar annars staðar eru þeir þá? Eru þeir að „tala niður“ til alþýðunnar? Var það ekki Laxness sem segir frá kynnum sínum af því kvikindi í Skandinavíu sem var kallað „samfúnnet“. Einnig er notkun orðanna „einstaklingur“ og „aðili“ einkar ljót og oft á kostnað orðsins maður. Eru orðin mað- ur og kona ekki góð og gjald- geng lengur? Annar skólabróðir okkar, Björn Þorleifsson, stundum kallaður „öryrki“, skaut því fram, þar sem við vorum, að of- notkun sagnarinnar að vera væri mikil og ónauðsynleg. T.d. eru íþróttamenn að spila vel, fyrirtæki eru að sýna góðan hagnað og svo framvegis. Íþróttamenn spila vel, fyrirtæki sýna góðan árangur; sögnin að vera er ónauðsynleg. Að öðru: Í haust kom út hjá MacMillan í London bók sem heitir The Ice Master og er eftir unga konu, Jennifer Niven. Þessi bók er um hina illræmdu för skipsins Karluk árið 1913. Leiðangrinum stýrði Vilhjálm- ur Stefánsson. Skilríkir menn lásu bók þessa um jólin og hafa síðan beðið eftir að Stofnun Vil- hjálms Stefánssonar, sem okk- ur skilst að starfi í tengslum við Háskólann á Akureyri, láti eitt- hvað frá sér fara til varnar Vil- hjálmi, en um hann er farið óvægilegum orðum, og jafnvel háðskum í bókinni, t.d. í formál- anum á bls. IX, þar sem vitnað er í Roald Amundsen og sagt að hann hafi nefnt Vilhjálm „the greatest humbug alive“ og fleira er sagt í þessa veru og þarfnast ekki skýringa. Við vildum láta þetta koma fram, þó að það heyri ekki undir íslenskt mál í þrengsta skilningi. Sittu svo heill í sæmd þinni. Kveðjur frá Skilríkum mönn- um.“  Hlymrekur handan kvað: Í Verona abbadís var á veitingahúsinu þar: „Get ég fengið ábót- a, með gulrót?“ „Já, en okurdýrt exemplar.“  Umsjónarmaður birtir með ánægju hugvekju þá sem hér fer á eftir frá Árna Björnssyni þjóðháttafræðingi og spyr jafn- framt hver sé smekkur manna í þessu efni: „Klaufaspark og klaufna- spark. Gin- og klaufaveiki er í um- ræðu þessar vikur og því klingja klaufir jórturdýra oftar við í eyrum en ella. Smekkmað- ur á mál hafði rekist á orðið klaufaför í próförk að landlýs- ingu og eitthvað angraði máltil- finningu hans. Var ekki áður talað um að einhver slæmska væri milli klaufnanna á bless- aðri kúnni? Nú var leitað til málfræðinga og svörin voru sem vænta mátti á þá lund að samkvæmt reglu ætti ekki að vera n í eignarfalli fleirtölu slíkra orða, en spurn- ingin væri samt áhugaverð. Þá var leitað til viðurkenndra mál- snillinga og viðbrögð voru þau í stuttu máli að reglan segði nei, en smekkurinn já. Einnig var á það bent að til væri fléttan geitnaskóf og margir myndu skófnapottinn hans Hjálmars tudda hjá Jóni Thoroddsen þótt á hvorugum staðnum ætti að vera n eftir reglunni. Loks var leitað í Orðabók Háskóla Íslands og þar gaf á að líta. Látra-Björg nefnir klaufna- spark í vísu á 18. öld, tímaritið Hirðir sem sjálfur Halldór Kr. Friðriksson átti hlut að eftir miðja 19. öld nefnir bæði klaufnaveiki og klaufnakirtil, Guðmundur Friðjónsson á Sandi talar um klaufnaför, Eyj- ólfur Guðmundsson á Hvoli um klaufnagang, Stephan G. Steph- ansson og Theodóra Thorodd- sen um klaufnaklór í merking- unni hrafnaspark. Fleiri dæmi er þar að finna. Ljóst virðist hvað gerst hefur. Smekkvísir menn nota eignar- fallið klaufna í samsetningum fram um 1900. Þá fara málfræð- ingar að búa til reglur sem stundum stangast á við smekk- vísina. Gin- og klaufnaveiki færi betur í munni en það sjúkdóms- heiti sem nú er notað.“  Úr bréfasímanum Reyndu að kveðja með kurteisi og stæl, karlfauskur, í þessu pæl. Enginn ljær þér nú eyra né langar í meira leirburðarstagl og holtaþokuvæl (Anonymus). Umsjónarmaður þakkar kveðjuna og gleðst yfir því að sendandi kunni Jónas Hall- grímsson.  Auk þess er lagt til: 1) Að menn steinhætti að hafa vit- laust eignarfall af kvenkynsorð- um sem enda á ing. Menn afsala sér rétti til nýtingar, ekki „til nýtingu“. Og menn krefjast tryggingar vegna byggingar, en menn krefjast ekki „trygg- ingu“, „vegna byggingu“. 2) Að í stað grískættaða orðsins „dramatúrg“ komi íslenska orð- ið leiksmiður, sbr. gr. ergos = sá sem vinnur, gerir eitthvað; ergon = verk. Og svo var það maðurinn sem hélt að búsáhöld þýddi vínglös. Aftanskrift: Fyrir glöp um- sjónarmanns var Þórður mis- nefndur Þórir á einum stað í síð- asta þætti. Bæði hann og aðrir eru beðnir velvirðingar á þessu. ÍSLENSKT MÁL Umsjónarmaður Gísli Jónsson 1103. þáttur ÞIÐ sjálfstæðis- menn eruð alltaf í bók- haldinu. Ég er nú í póli- tík en ekki neinu bókhaldi. Eitthvað á þessa leið mælti Ingi- björg Sólrún Gísladótt- ir borgarstjóri í um- ræðuþætti með oddvita sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Verið var að ræða fjármálastefnu R-listans; met hans í skattahækkunum á Reykvíkinga og skuldasöfnun borgar- innar á mesta góðæris- skeiði þjóðarinnar og stórfelldar bókhalds- blekkingar til að fela skuldirnar. Þetta umræðuefni var of óþægilegt fyrir borgarstjóra til að hún gæti rætt það málefnalega. Viðhorf borgarstjóra Það er vissulega athyglisvert að borgarstjóri skuli mæla slík orð í op- inberum sjónvarpsþætti. Borgar- stjóri er ekki einungis pólitískur oddviti meirihlutans, hann er einnig æðsti embættismaður borg- arbúa, sem ber öðrum fremur ábyrgð á því að fjármál borgarinnar séu í góðu horfi. Hann ber ábyrgð á því að bókhald borgarinnar gefi sem réttasta mynd af fjármálum hennar, sé sett fram á eins skýran hátt og kostur er og hafið yfir allan grun um blekkingar. Einhverjir hefðu ætlað að slíkur embættis- maður myndi a.m.k. ekki tala af óvirðingu um bókhald en ef til vill var borg- arstjórinn einungis að segja kjós- endum sínum það að fyrir sér væri bókhald eitt og pólitík annað. Þessi ummæli borgarstjóra rifjuð- ust ósjálfrátt upp þegar hún brást við skýrslu Borgarendurskoðunar um framkvæmdir við tengibyggingu Borgarleikhússins og Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsinu. Borg- arstjóri hafði forgöngu um þessar framkvæmdir á sínum tíma og notaði þær óspart í pólitískum tilgangi. Of- urkapp var t.d. lagt á að opna Lista- safnið í Hafnarhúsinu fyrir kosning- arnar 1998 og sú ákvörðun ein og sér hafði ómældan kostnað í för með sér. Gæluverkefni borgarstjóra Upphafleg fjárhagsáætlun vegna framkvæmdanna í Hafnarhúsinu hljóðaði upp á 370 milljónir króna (miðað við fast verðlag í des. 2000) og er kaupverð hússins ekki inni í þeirri tölu. Ný fjárhagsáætlun var síðar gerð og fór hún upp í 530 milljónir. Nú stefnir í að framkvæmdakostn- aður verði um 740 milljónir króna. Verkið fer því um 370 milljónum fram úr upphaflegum hugmyndum eða sem nemur 100% Áætlaðar heildargreiðslur borgar- sjóðs vegna tengibyggingar milli Borgarleikhússins og Kringlunnar námu upphaflega 62,5 milljónum króna. Í skýrslu borgarendurskoð- unar kemur fram að kostnaðartölur í áætluninni byggðust ekki á haldbær- um forsendum. Við verklok hafði hlutur borgarsjóðs í byggingunni meira en þrefaldast og endaði í 205 milljónum króna. Þessar framúrkeyrslur í gælu- verkefnum borgarstjórans nema samtals 512 milljónum króna miðað við upphaflegar áætlanir og skýra líklega af hverju hún er haldin svona mikilli bókhaldsfælni. Þessi fælni virðist síðan hafa orðið til þess að borgarstjóri lagði upplýsingar um kostnaðarhækkanir ekki fyrir borg- arráð þegar þær lágu fyrir eins og æðsta embættismanni borgarinnar ber skylda til að gera. Borgarstjóri víkur sér undan ábyrgð Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri tekst þó á sama hátt við þetta mál og önnur sem snúa að slæmum fjárhag borgarinnar. Fyrst segir hún ekki neitt og reynir að þegja sem lengst um málið. Þegar borgarstjóri kemst ekki lengur hjá því að ræða um málið við fjölmiðla og á borgarstjórnarfundi segir hún eins lítið og hún getur en gefur í skyn að hún hafi hvergi komið nærri. Þannig reynir hún að koma sökinni á hálfs milljarðs króna framúrkeyrslu í tveimur verkefnum á alla aðra í borgarkerfinu en sjálfa sig. Það má vera að slík viðbrögð séu mannleg en stórmannleg eru þau ekki. Er 500 milljóna króna framúrkeyrsla eðlileg? Kjartan Magnússon Borgarpólitík Borgarstjóri reynir, segir Kjartan Magn- ússon, að koma sökinni á hálfs milljarðs króna framúrkeyrslu á alla aðra í borgarkerfinu en sjálfa sig. Höfundur er borgarfulltrúi. Í 70 ÁR hefur Bún- aðarbankinn þjónað landsmönnum dyggi- lega og hefur alla tíð verið best rekni banki landsins. Þegar banka- fárviðrið geisaði á tí- unda áratugnum og ríkisbönkunum var leg- ið á hálsi fyrir ógæti- lega útlánastarfsemi var staðreyndin sú að Búnaðarbankinn var með minnstu afskrift- irnar og mun minni en hlutafélagabankarnir. Þá greiddi Búnaðar- bankinn einn banka tekjuskatt í mörg ár og segir það eitt um hversu vel hann var rekinn. Ég sat í bankaráði bankans á árunum 1990-1994 og kynntist þá all- vel rekstrarfyrirkomulagi bankans og það get ég fullyrt að í fyrirrúmi sat ávallt velferð bankans og við- skiptavinanna. Bankastjórar og bankaráðsmenn lögðu alltaf metnað sinn í að sinna sínu starfi, með vel- ferð bankans að leiðarljósi. Ég tel að það hafi bankaráðin alla tíð gert og hin farsælu ár fráfarandi bankaráðs og formanns þess hafa örugglega ekki verið dans á rósum undir sí- felldum árásum viðskiptaráðherra. Þá hafa bankastjórar, sem hafa unn- ið bankanum vel í tugi ára, mátt þola ósmekklegar dylgjur í lok farsæls starfsferils síns. Á aðalfundi bankans hélt við- skiptaráðherra ræðu, þar sem fram kom meðal annars að „óheppileg“ umræða um bankann á undanförn- um misserum og árum hefði skaðað hann. Heppilegast hefði verið fyrir ráðherra að minnast ekki á þau ósköp, því þar hefur enginn verið duglegri en ráðherrann sjálfur, að dreifa óhróðri um bankann og sýna öðrum hluthöfum, starfsfólki og við- skiptavinum megnustu fyrirlitningu með allskyns yfirlýsingum. Það hefur enginn skaðað bankann meira en einmitt ráðherrann sjálfur. Þær ávirðingar sem ráðherrann hef- ur pantað, í hinum ýmsu skúmaskot- um Framsóknarflokksins og ráðu- neytisins, til að koma höggi á forráðamenn bankans eiga eftir að gufa upp. Það hefur sýnt sig í gegnum árin, í öðrum tilbúnum málum, að þar var á ferðinni stormur í vatnsglasi. Sá málatilbúnaður sem ráðherrann hefur við- haft á undanförnum mánuðum er að mestu tilbúningur til að þjóna eiginhagsmunum ráð- herrans og skjólstæð- inga hans. Ég, sem einn af mörgum litlum hluthöfum, fagna þeirri yfirlýsingu ráðherrans, að væntanlega yrði þetta í síðasta sinn sem hann ávarp- aði aðalfund, því nú skyldi bankinn seldur. Það þýðir væntanlega, að hætt verður að leitast við að stjórna daglegum rekstri bankans úr ráðu- neytinu og þá einnig hætt þeim hráskinnsleik sem einna helst minnir á aðförina að hafskipsmönnum á sín- um tíma. „Ég skipa bankaráð“ voru algengar yfirlýsingar ráðherra, enda aldrei dottið í hug að það eru hátt í 30 þúsund aðrir hluthafar með um 30% hlutafé sem eiga einhvern rétt. Hrokinn leyfir ekki að öðruvísi sé talað, því í augum ráðherra eru 30 þúsund hluthafar hvort sem er ein- hver skítseiði sem ekki er orðum á eyðandi. Ráðherrann þurfti að koma manni að sem bankastjóra, úr sínu kjördæmi og það var aðalatriðið, og til þess reytti hann miskunnarlaust æruna af fólki, svo það mætti takast. Þetta minnir á stjórnarfar í fyrrum austrænum ríkjum, enda framsókn- armenn iðnir við að flytja Reykvík- inga nauðungarflutningum út á landsbyggðina, að hætti Stalíns, og skilja svo ekkert í því að Reykvík- ingar kjósi þá ekki. Það er ekki að furða, þótt Framsóknarflokkurinn bjóði fram í leyni til borgarstjórnar, þar sem hann hefir á að skipa tveim- ur borgarfulltrúum, en það er í engu samræmi við kjörfylgi flokksins. Það var ánægjulegt og tími til kominn að tekið væri fram fyrir hendurnar á ráðherranum og bankaráði gert kleift að ráða bankastjóra á fagleg- um grunni, þrátt fyrir að það kostaði einhver hrossakaup í bankaráði. Ég er viss um að það ágæta fólk, sem nú hefir verið kosið í bankaráð bankans, muni standa vörð um hagsmuni bankans og formaðurinn, sem er landsmönnum kunnur af farsælum störfum á öðrum vettvangi, mun örugglega ekki gefa ráðuneytinu, né ráðherranum, tækifæri til að stjórna daglegum rekstri bankans. Ráðherrann og Búnaðar- bankinn Þórir Lárusson Ríkisbankar Enginn hefur verið duglegri en ráðherrann sjálfur, segir Þórir Lárusson, að dreifa óhróðri um bankann. Höfundur er frv. bankaráðsmaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.