Morgunblaðið - 31.03.2001, Síða 60

Morgunblaðið - 31.03.2001, Síða 60
MINNINGAR 60 LAUGARDAGUR 31. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Kæri bróðir, það er ekki auðvelt að skrifa þér línu á þessari stundu. Fráfall þitt var svo snöggt að ég er varla búinn að átta mig á raunveru- leikanum. Ýmsar góðar minningar koma upp í hugann þegar litið er til baka. Þegar hefðbundinni skóla- göngu lauk fórstu að vinna utan heim- ilis í Sláturhúsinu, fórst á vertíðir, stundaðir sjó nokkrar vertíðir og vannst við laxeldi, en alltaf togaði sveitin þig heim. Þar undir þú þér best. Ég naut þeirrar gæfu að eiga samleið með þér nær alla ævi. Lengi áttum við heima í Garði og naut ég þinnar alkunnu hjálpsemi t.d. þegar ég byrja minn búskap, þá varst þú alltaf tilbúinn að rétta hjálpar- hönd. Erfitt hefði þetta orðið ef þín hönd hefði ekki verið til staðar. Alltaf komstu í göngur hvernig sem stóð á, því það var þitt yndi að ganga í Garðs- heiði og ekki lést þú þitt eftir liggja þegar í réttirnar var komið. Barngóð- ur varst þú og nutu börnin okkar Þor- bjargar þess sérstaklega meðan þú bjóst í foreldrahúsum. Alltaf þegar við hittumst eða töluðum í síma spurðir þú hvernig búskapurinn gengi og þótt ég og mín fjölskylda séum flutt í Sandgerði þá spurðir þú áfram hvernig búskapurinn gengi þótt smár væri. Þetta segir best hvert hugurinn leitaði. Þú hafðir svo gaman af að syngja og nú er stórt skarð höggviðí gamla kórinn okkar. Þegar þið Kristín hófuð sambúð í Háagerðinu stóð það ætíð opið ef við vorum í kaupstaðarferð. Snyrtimenni varst þú, hvergi mátti vera rusl þá tókstu það og fjarlægðir. Elsku bróð- ir, lífið varð of stutt, við áttum eftir að gera svo margt saman, þú hafðir svo mikinn áhuga á að við gerðum æsku- stöðvar okkar að fjölskyldugarði. Við ætluðum að vera saman á ættarmóti í sumar, þín verður sárt saknað. Elsku Kristín, Alexander, Berg- BJÖRN ÁGÚST SIGURÐSSON ✝ Björn Ágúst Sig-urðsson fæddist að Garði í Keldu- hverfi 4. apríl 1955. Hann lést 25. mars síðastliðinn. Foreldr- ar hans eru Sigurður Jónsson, bóndi í Garði, og Jóhanna Ólafsdóttir húsfrú. Systkini Björns Ágústar eru Ólafur Brynjar, f. 1946, Jón, f. 1950, Sigurgeir, f. 1956, og Halldóra Friðný, f. 1962, d. 1974. Sambýliskona hans er Kristín Björnsdóttir, f. 1961. Börn þeirra eru Alexander, f. 1989, og Berglind, f. 1991. Áður átti hann soninn Svein Björnsson, f. 1980, fóstursonur Björns Ágúst- ar er Arnar Þór Arnarson, f. 1983. Útför Björns Ágústar fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. lind, Arnar Þór, Sveinn, pabbi og mamma, í dag fylgjum við góðum sam- býlismanni, föður, syni og bróður síðustu spor- in. Þau spor verða erfið og þung, en Guð mun styrkja okkur í þessari sorg og mun minning um góðan dreng lifa í hjarta okkar. Þinn bróðir, Jón Sigurðsson. Elsku Ágúst. Þetta er eitt það erfiðasta sem ég hef þurft að gera um ævina. Það svona er að byrja að síast inn að þú sért farinn. Ég veit að það á eftir að verða ótrúlega skrýtið að hafa þig ekki til að stríða manni og skjóta á mann lengur. Þú varst óþreytandi í að stríða litlu frænku. Minningarnar hrannast upp, flest- ar frá því ég var lítil stelpa í sveitinni hjá ömmu, afa og þér. Þú og pabbi átt- uð herbergi uppi á lofti sem var þeim kostum búið að þar voru fataskápar undir súðinni. Þar geymdirðu mótor- hjólahjálminn, fötin þín, og síðast en ekki síst áttirðu ALLTAF amerískt tyggjó; grænt, gult eða hvítt. Ég man þegar ég var tveggja eða þriggja ára og stalst í skápinn þinn þegar þú varst ekki heima og fékk mér tyggjó. Mamma varð frekar mikið reið, og ég man hvað hún skammaði mig, og ætl- aði sko að kenna mér að það mætti ekki taka eitthvað án þess að spyrja um leyfi fyrst. Ég var bara lítill telpu- hnokki og þú hafðir alltaf gefið mér tyggjó þegar mig langaði í það... og núna langaði mig í tyggjó. Mamma lét mig spýta því út úr mér. Þegar þú svo komst heim aftur, lét mamma mig segja þér að ég hefði stolið tyggjóinu hjá þér, og ætlaðist til að þú myndir skamma mig líka. En nei, ég held að svarið sem við fengum frá þér muni seint líða mér úr minni. „Hvað, auð- vitað má hún fá tyggjó stelpan.“ Þar með var lexían fyrir bí. Mótorhjólið þitt var örugglega eitt það mest spennandi tæki sem ég hef komist í kynni við. Ég man þegar ég og Sveinn vorum lítil og fengum að sitja á hjólinu, bæði saman og hvort í sínu lagi. Ég var svo mikil frekja að helst hefði ég viljað vera alein á því allan tímann. Þú áttir allskonar spennandi dót sem ég man eftir. Fyrst má telja rússajeppann, einn sá undarlegasti bíll sem ég hef komið inn í. Endalaust gátum við krakkarnir leikið okkur í þessum bíl. Næst má nefna snjósleðann, og svo véldrekinn, talstöðin og haglabyssan. Ég ætla svosem ekki að tíunda all- ar skemmtilegu stundirnar sem við áttum saman, sumar ætla ég að geyma fyrir mig. Ég man samt eftir fyrstu skólatöskunni minni. Þú gafst mér hana í jólagjöf jólin áður en ég átti að byrja í skólanum. Hún var dökkgræn, með skærappelsínugulu, renndu hólfi framaná. Jólaboðið hjá ykkur Kristínu núna fyrir síðustu áramót verður mér líka minnisstætt. Ég var ekkert voðalega hrifin af því að fara í enn eitt jólaboðið þessi jólin, sérstaklega þar sem ég er ein hérna fyrir norðan á mínum aldri, og finnst ég stundum ekki alveg eiga heima í samræðum fullorðna fólksins, þó svo ég eigi að heita fullorðin mann- eskja, að verða 21 árs. Þetta reyndist samt vera mjög skemmtilegt jólaboð, líklega skemmtilegasta jólaboðið þetta árið. Við hlustuðum á upptöku frá hagyrðingamóti sem haldið hafði verið um haustið, og enduðum svo kvöldið á að spila trivial pursuit fram eftir nóttu. Þar fékk einstakur húm- orinn þinn, sem aldrei var í meira en seilingarfjarlægð, að njóta sín vel. Ég mun aldrei gleyma púkasvipn- um og stríðnisglottinu, sem var eitt helsta einkenni þitt. Ég kveð þig með söknuð í hjarta, en ég veit að þú ert kominn til systur þinnar, hennar Halldóru Friðnýjar og ég veit að þið hafið það gott og vakið yfir okkur. Farðu vel með þig þar til við hittumst á ný! Þín frænka, Halldóra Friðný. Sofðu, sofðu góði, sefa grátinn þinn. Vef ég ljúflings ljóði litla drenginn minn. Syngur yfir sundi sár og þungur niður. Þey, þey, þey, í blundi þér er búinn friður. (Guðm. Guðmundsson.) Elsku Ágúst. Þessar ljóðlínur var ég að læra fyrir söngpróf þegar ég frétti andlát þitt. Þær hafa verið mér ofarlega í huga síðan og finnst mér þær hæfa vel þeirri hugsun sem býr í huga mér núna. Við áttum það sameiginlegt að okk- ur þótti gaman að syngja og fórum bæði í smásöngnám og síðan vorum við að bera okkur saman. Þegar ég flutti í Garð bjóst þú enn í föðurhúsum og varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast þér nokkuð vel. Af mörgu er hægt að taka, t.d. vorum við einu sinni bæði stödd í Reykjavík og fórum saman að kaupa jólagjafir. Það var sko ekki sama hvað keypt væri heldur hvað hentaði hverj- um og einum best. Brynja Dögg minnist þess hve gaman það var þegar Ágúst frændi kom yfir á mótorhjólinu og bauð henni oft að fara með sér einn hring. Alltaf varstu til staðar ef mikið stóð til í búskapnum og þótti þér það alveg sjálfsagt. Svo kynntistu Kristínu og þið fóruð að búa á Húsavík. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar og ekki vantaði gestrisnina. Hér væri hægt að minn- ast svo margs en ég læt hér staðar numið. Elsku Kristín, Sveinn, Arnar Þór, Alexander, Berglind, tengdamamma, tengdapabbi, Binni, Sigurgeir og Jón. Missir ykkar er mikill og fá orð hugga víst lítið á slíkri stundu. Megi góður Guð styrkja ykkur og hugga í sorg ykkar. Ykkar Þorbjörg. Í dag kveð ég minn besta vin. Ég á örfáa aðra vini sem líka eru bestu vin- ir og Björn Ágúst var svo sannarlega í þeim hópi. Það var því ólýsanlegt reiðarslag þegar sú fregn barst síð- degis sl. sunnudag að Gústi væri dá- inn. Sorg og reiði náði algjörum tök- um á mér. Sorg yfir því að missa góðan vin og sorg yfir þeim mikla missi sem Stína, börnin og aðrir ást- vinir hans þurfa að upplifa og með einhverjum hætti að yfirstíga. Við Gústi vorum jafnaldrar. Ól- umst upp í Kelduhvefinu, þeirri góðu sveit. Uppfræðsluna fengum við í Skúlagarði og í Lundi. Fermingar- fræðsluna hjá séra Sigurvin og stað- festingu skírnarinnar í Garðskirkju. Þetta voru góð ár og okkur alltaf vel til vina. Við vorum þó ekki óaðskilj- anlegir og kanski svolítið ólíkir. Gústi hafði t.d. minni íþróttaáhuga heldur en ég en kom þó alltaf á æfingar. Þar held ég að félagsskapurinn hafi skipt Gústa meira máli heldur en íþróttirn- ar sjálfar. Þeir Garðsmenn komu gjarnan á dráttarvél og man ég vel aðdáun mína og öfund á aksturshæfi- leikum Gústa. Þeir voru langt um- fram mína og flestra annarra. Að skyldunámi loknu skildi leiðir okkar að nokkru yfir vetrartímann. Við unn- um þó saman í Landgræðslunni í a.m.k. tvö sumur og einnig á Slátur- húsinu á Kópaskeri. Dansleiki og ann- að skemmtanahald sóttum við stíft. Spiluðum líka saman brigde og feng- um þar viðurnefnin Svalur og Valur. Það var alltaf létt yfir hlutunum þar sem Gústi var. Hann var hrókur alls fagnaðar og hafði sérlega skemmti- lega frásagnargáfu og þegar hann var í essinu sínu hermdi hann eftir sveit- ungum sínum og gerði það listavel. Þessar skemmtilegu minningar verða ekki frá okkur teknar. Leiðir okkar liggja síðan aftur saman á Húsavík. Ég hafði sest þar að á undan en ekki löngu seinna er Gústi líka kominn mér til mikillar ánægju. Á milli fjöl- skyldna okkar tókst fljótt góð vinátta. Við unnum einnig saman hjá Skipa- afgreiðslu Húsavíkur, ég sem fram- kvæmdastjóri og Gústi sem bílstjóri og tækjamaður. Gústi var góður starfsmaður, samviskusamur, dug- legur og eldklár. En hann gerði kröf- ur til annarra og það fór í taugarnar á honum ef menn skiluðu ekki sínu. Eftir að ég flutti suður héldum við enn mjög góðu sambandi, heimsótt- um hvor annan þegar við höfðum tækifæri til og ræddum málin í síma þess á milli. Vinnan lá þungt á honum. Hann var ekki sáttur. Ég hvatti hann til þess að breyta til, en því miður lét hann ekki verða af því. En ef til vill var fleira sem lá þungt á honum og ef til vill gekk hann ekki alveg heill til skógar. Við Magga heimsóttum þau Stínu og Gústa nú fyrir mánuði. Það var notaleg stund. Það lá sérlega vel á Gústa. Hann hlakkaði mikið til söng- ferðar sem þau ætlaðu að fara í til Þýskalands með Karlakórnum Hreim nú um páskana. Einnig ræddum við um fyrirhugaða útilegu með vinum okkar úr Kelduhverfinu og fjölskyld- um þeirra. Það var á hreinu að Gústi ætlaði ekki að missa af henni aftur. En því miður, þar verður skarð sem ekki verður fyllt. Björn Ágúst var góður drengur. Ég vil þakka honum allar þær mörgu ánægjulegu stundir sem við áttum saman á hans alltof stuttu ævi. Elsku Stína, við Magga sendum þér og börnunum okkar innilegustu samúð- arkveðjur svo og öllum öðrum að- standendum. Guð styrki ykkur öll í ykkar miklu sorg. Farnist þér vel, Gústi minn, á Guðs vegum. Árni Grétar. Nú ert þú farinn pabbi minn og svo mörg orð ósögð. Þetta er alveg ótrú- lega ósanngjarnt að þú skulir vera farinn frá okkur svona fljótt. Þegar presturinn kom til mín með þessar hörmulegu fréttir hugsaði ég, pabbi minn, nei það getur ekki verið, ekki þú, það bara gat ekki verið. Hvernig stendur á þessari ósanngirni, af hverju þurfa sumir að deyja svona fljótt, af hverju verða ekki allir gaml- ir? Það var svo margt sem við áttum eftir að gera saman, margt sem við áttum eftir að tala um en svona er líf- ið. Sumir segja að þeir deyi ungir sem guðirnir elska og það hlýtur að vera satt fyrst þú fórst svona fljótt. Þó að við höfum ekki alltaf verið í stöðugu sambandi voru það góðir tímar þegar við hittumst eða töluðum saman í síma. Ég man alltaf eftir því þegar ég var lítill er ég kom heim með þér þeg- ar við bruddum v6 tyggjóið og hlust- uðum á Gylfa Ægisson, ég hef síðan þá alltaf haft frekar gaman að Gylfa Ægissyni. Og svo þegar þú keyrðir um með mann á mótorhjólinu, það líð- ur seint úr minni. Núna getur maður bara rifjað upp þá góðu tíma sem við áttum saman, því að því miður verða þeir ekki fleiri. Getur maður einhvern tímann sætt sig við að þú sért farinn? Ég held ekki en kannski lærir maður að lifa með sorginni og hugsa um okk- ar góðu stundir saman. Æi, hvað það er sárt að þú sért farinn. Ég er alltaf að vona að ég vakni upp við vondan draum, en lífið er ekki svo einfalt, þú ert því miður alfarinn. Ég sakna þín sárt og ég mun alltaf elska þig. Sveinn Björnsson. Kæri vinur, það er með söknuði sem ég skrifa þessar línur. Síðan fregnin barst á sunnudag hafa minn- ingarnar streymt fram látlaust. Ég trúi alls ekki að þú eigir ekki eftir að stinga inn nefinu og spyrja hvort þú sért að trufla mig, standa í gættinni og leika þér að því að beygla eyrað á dyrakarminum og segja „það er bara eitt sem ég var að spá í til að vera viss“. Nákvæmlega þannig varstu, svo samviskusamur að ég þurfti ekki að hafa áhyggjur ef ég skrifaði eitt- hvað ekki rétt, sást þú það strax og bentir á það og hafðir oftast rétt fyrir þér. Minntir á það sem gleymdist, ef einhvern tímann var búið að nefna það mundir þú það og oft óskaði ég þess að ég hefði þó ekki væri nema helming af minni þínu. Aldrei þurfti að hafa áhyggjur af því að eitthvað klikkaði, þú varst 100% maður hér í vinnunni. Þegar ég talaði við þig um hádegið hefði ég aldrei trúað að það væri í síð- asta skipti sem ég heyrði í þér, erindið var að athuga hvað væri búið að gáma fyrir skipið sem kom sólahring fyrr en áætlað var, því eins og ég vissi mundir þú nákvæmlega hvaða gámar voru eftir, þannig að við gátum talað um hvort ástæða væri til að fá keyrslu að ofan, en komum okkur saman um að það væri óþarfi að eyða þessum sólríka degi í vinnu. Síðan koma þess- ar hræðilegu fréttir og við sitjum eftir harmi slegin, og dofin. Aldrei aftur eigum við eftir að hlæja að því þegar þú varst næstum búin að keyra á mig á gámalyftaran- um, ég var á hjóli og þú sást mig ekki fyrr en ég stökk af því og hálfdatt of- an í grjótið. Og í síðustu viku þegar ég var að labba á sama stað þegar þú varst að koma af bryggjunni og ég fór alveg út af veginum, til að vera örugg. Hlógum við bæði þegar þú fórst hjá og ég veit að við hugsum það sama. Það eru margar góðar minningar að ylja sér við, úr ferðum okkar er- lendis til dæmis. Það er stórt skarð höggvið hér hjá okkur og við söknum þín, það er erfitt að sætta sig við að þú sért ekki meðal okkar lengur og að við getum ekkert gert til að endur- heimta vin og vinnufélaga. Elsku Kristín okkar, Sveinn, Arnar Þór, Alexander, Berglind og Sigurður og Jóhanna, ykkur öllum og öðrum aðstandendum vottum við dýpstu samúð og hugsum til ykkar á þessum erfiðu tímum. Megi góður guð styrkja ykkur. F.h. vinnufélaga. Rannveig. Hann Gústi frá Garði? Nei, það get- ur ekki verið! Þetta voru mín fyrstu orð þegar mér var tilkynnt að Björn Ágúst Sigurðsson frá Garði í Keldu- hverfi hefði kvatt þessa jarðvist. Hugurinn fór að reika til áranna 1973–1974 þegar Gústi og Stebbi (móðurbróðir minn) voru alltaf saman – þá bjó ég í Sultum og var nú ekki nema 5 ára. En ég man svo vel þegar þeir vin- irnir voru að taka sig til á fótboltaæf- ingar – múnderingin – legghlífarnar og ekki mátti gleyma hárbandinu til að halda/hemja síða toppinn og hárið allt! Svo brunuðu þessir töffarar um allar sveitir á mótorhjólunum sínum, það var alltaf líflegt og mikið fjör í kring um Gústa og Stebba. Síðar flutti ég með móður minni til Grímsstaða á Fjöllum og var ekki amalegt þegar þeir komu síðla sum- ars eitt árið til aðstoðar þegar heyannir voru í sveitinni, þá komu þeir upp yfir Hólssand og auðvitað á mótorhjólunum, jafnhressir og hlát- urmildir og alltaf. Síðan hef ég vitað af þeim bræðrum frá Garði svona úr fjarlægð eins og margir fylgjast með gömlum sveit- ungum sínum og skyldfólki. Vonin styrkir veikan þrótt, vonin kvíða hrindir, vonin hverja vökunótt vonarljósin kyndir. (P.Ó.) Innilegar samúðarkveðjur sendi ég Stínu og börnum, bræðrum Gústa og fjölskyldum, foreldrum Gústa og öðr- um aðstandendum. Halla Jensdóttir frá Sultum í Kelduhverfi. MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. Birting afmælis- og minningargreina
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.